You are currently viewing Ragnar, Ari, Ralfs og Helgi Íslandsbikarmeistarar BFSÍ utandyra 2026

Ragnar, Ari, Ralfs og Helgi Íslandsbikarmeistarar BFSÍ utandyra 2026

Bikarmótaröð BFSÍ utandyra lauk á síðasta Bikarmóti tímabilsins sem var 16 ágúst í Fagralundi Kópavogi. Veittir voru Íslandsbikarmeistaratitlar í fjórum keppnisgreinum til þeirra keppenda sem voru með tvö samanlagt hæstu skor í Bikarmótum á tímabilinu.

Trissuboga Bikarmeistari

Ragnar Smári Jónasson úr BF Boganum Kópavogi vann Bikarmótaröð BFSÍ utandyra í trissuboga með 1355 stig og varð Íslandsbikarmeistari utandyra í fyrsta sinn, en hann hefur unnið Íslandsbikarmeistaratitlana innandyra síðustu 2 ár í röð. Hart á hælum Ragnars með 1314 stig var Þórdís Unnur Bjarkadóttir úr BF Boganum og það var útlit fyrir að það yrði harður bardagi milli þeirra um titilinn á síðasta mótinu. En sigtið (mið) Þórdísar brotnaði við byrjun undankeppni síðasta Bikarmóts BFSÍ 16 ágúst og fyrri umferðin var því frekar lök, en hún sló personal best á 36 örvum með 349 stig í seinni umferðinni þegar það var búið að redda henni láns sigti.

Berbogi Bikarmeistari

Helgi Már Hafþórsson úr ÍFA Akureyri vann Bikarmótaröð BFSÍ utandyra í berboga með 1152 stig og varð því Íslandsbikarmeistari annað árið í röð. Hart á hælum Helga var Evrópubikarmeistari U21 utandyra, hún Lóa Margrét Hauksdóttir úr BF Boganum með 1052 stig. En gaman er að geta þess að bæði Helgi og Lóa bættu Íslandsmetin í karla og kvenna á síðasta Bikarmóti tímabilsins. Lóa með 557 stig en metið var aðeins viku gamalt þar sem hún sló það á Íslandsmóti ungmenna með 552 stig. Helgi skoraði 592 stig en metið var 585 stig frá síðasta ári sem Helgi átti sjálfur.

Sveigbogi Bikarmeistari

Ari Emin Björk úr ÍFA Akureyri vann Bikarmótaröð BFSÍ utandyra í sveigboga með 1121 stig og varð Íslandsbikarmeistari í fyrsta sinn á sínum íþróttaferli. Hart á hælum Ara var Valgerður Einarsdóttir Hjaltested úr BF Boganum með 1085 stig. Vala leiddi Bikarmótaröðina en Ari náði sigrinum á síðasta Bikarmótinu.

Langbogi Bikarmeistari

Ralfs Simanis úr LF Freyju Reykjavík vann Bikarmótaröð BFSÍ utandyra í langboga með 1132 stig. Ralfs var að vinna Bikarmeistaratitil í fyrsta sinn, en þetta er aðeins annað árið sem titilinn er veittur þar sem að Langboga/Hefðbundnum bogum var bætt við árið 2025. Guðrún Þórðardóttir einnig úr LFF Reykjavík var hart á hælum Ralfs með 1087 stig.

Almennt um Bikarmótaröðina:

Mótaröðin stóð saman af þremur Bikarmótum í sumar og Bikarmeistari er krýndur sá sem skoraði samanlagða skor í undankeppni Bikarmóta BFSÍ. Bikarmótaröð BFSÍ er byggð á svipuðu sniði og landsmótaraðir margra landa (s.s. National series) og heimsmótaröðin World Archery (Indoor World Series).

Aðeins eru gefnir Íslandsbikarmeistaratitlar í meistaraflokki, en ungmenni, öldungar og áhugamenn geta keppt á Bikarmótum BFSÍ líka (svipað og IWS).

Til þess að hámarka samkeppni og styrkleika Bikarmótaraðar BFSÍ er aðeins gefin Íslandsbikarmeistaratitill óháð kyni (ekki kvenna/karla, bara allir að keppa við alla).

Íslandsbikarmeistaratitillinn er því sjaldgæfasti titill sem mögulegt er að vinna í íþróttinni og þar sem hann byggist á skorum úr undankeppni Bikarmóta er það sá sem skorara hæst á 144 örvum, og gefur því til kynna þann íþróttamann sem er almennt að meðaltali að skora hæst á landinu í sinni grein.