Icelandair og ÍSÍ eru með samstarfssamning þar sem að Icelandair styrkir í raun íþróttahreyfinguna í heild sinni í gegnum ÍSÍ. Íþróttafélög geta notfært sér þá styrki.

Icelandair er með sérsamning við BFSÍ (sem er tengdur öðrum samningi við ÍSÍ) þar sem Icelandair styrkir beint BFSÍ tengt erlendum Icelandair flugum á vegum BFSÍ í hlutfalli við heildarkostnað flugmiða sem BFSÍ bókar. Samningsnúmerið er DD3FI2CPBOGISL sem má aðeins nota við bókun flugmiða í erlend landsliðsverkefni á vegum BFSÍ.

Íþróttafélög geta sótt um styrki vegna fluga innanlands tengt íþróttastarfi, fyrir einstaklinga með því að hafa samband við ÍSÍ og beint hjá Icelandair fyrir íþróttahópa (10+ manns)

Hvað er íþróttaferð?

Til að gefa dæmi um hvað íþróttaferð er:

  • Þátttaka á innlendum mótum t.d. Íslandsmeistaramót, Bikarmót BFSÍ o.s.frv.
  • Bogfimiþing
  • Ferðir vegna æfinga eða æfingabúða
  • Innlendar ferðir vegna landsliðsverkefna
  • Íþróttafundir
  • Þjálfaranámskeið
  • Dómgæsla eða menntun
  • og fleira

Semsagt allt sem tengist íþróttinni og iðkun hennar.

Einstaklings flugmiða inneignarkóðar fyrir íþróttaferðir

Hver getur sótt um inneignarkóða vegna íþróttaferðar?

  • Forsvarsmaður íþróttafélags/deildar þarf að gera það til að staðfesta að ferðin sé tengd íþróttinni.

Hvernig er sótt um inneignarkóða?

  • Senda póst á motttaka@isi.is á hefðbundnum skrifstofutíma ÍSÍ og óska eftir kóða.
    • (ef flogið er fram og til baka er hægt að nota/fá 2 kóða, einn per fluglegg)
  • Taka fram tilgang ferðarinnar (t.d. Bikarmót BFSÍ, eða þjálfaranámskeið, eða það sem á við hverju sinni)
  • Best er að gera það með eins miklum fyrirvara og mögulegt er áður en flugið er bókað

Hvað er inneignarkóðinn hár?

  • 3.200.kr inneign per fluglegg
  • Það er engin formlegur gildistími á inneignarkóðunum, en ef þeir hafa ekki verið nýttir í mánuði mun ÍSÍ endurúthluta ónýttum inneignarkóðum til annarra.

Hvernig bóka ég flug með inneignarkóða?

  • Einstaklingsbókanir fara alfarið í gegnum bókunarvél á vefsíðu Icelandair.
  • Inneignarkóðinn er settur inn í greiðsluferlinu (ekki fremst þar sem beðið er um gjafakóða).
  • Hægt er að nota inneignina upp í fargjöld í öllum verðflokkum sem eru í boði á bókunarsíðu Icelandair

Betra að bóka flugin snemma til að fá ódýrari flug, þá vegur inneignin hærra 😊

Mögulegt er að sjá nánari upplýsingar í þessu skjali frá ÍSÍ

Icelandair2026 – upplysingar_einstaklingar-2

Kjör fyrir íþróttahópa bókanir (10 manns eða fleiri)

Hvernig á að bóka íþróttahóp (10+) til að fá afsláttinn?

  • Hafa samband við hópadeild Icelandair sem sér um bókunina. Sími 5050-406 netfang sport@icelandair.is
  • Opnunartími: virkir dagar 08:00-16:00
  • Nafnalisti og lokagreiðsla þurfa að berast a.m.k. 7 dögum fyrir brottför.
  • Mæting minnst 45 mínútum fyrir brottför – skilríki skylda.
  • Íþróttahópur skal ætíð hefja ferð saman, en hægt er að gera einstaklingsbreytingar á til baka leggnum.
  • Staðfestingargjald 2.500.kr per fluglegg (ekki endurgreitt)

Best að bóka snemma þegar að flugfargjöld eru lægri 😉

Hvaða kjör eru fyrir íþróttahópa?

  • 15% afsláttur af hópafargjaldi
  • 50% afsláttur af fargjöldum fyrir börn undir 12 ára
  • Leyfilegur farangur: 23 kg innritaður farangur + 6 kg handfarangur
  • 50% afsláttur af farangri sem ef afhentur hjá flugfrakt Icelandair Cargo 24 klst fyrir brottför
    • Sértækur farangur er viðbótar farangur tengdur viðkomandi íþróttahópi, t.d. ef að allir í hópnum eru með sér bogfimitösku, reiðhjól, skíðatösku eða slíkt, til viðbótar við venjulegan farangur.

Hvað ef eitthvað breytist í hópnum?

  • Endurgreiðanlegt fargjald að frádregnum 2.500.kr (breytingargjaldi) pr. fluglegg ef afbókað er með minnst 24klst fyrirvara
    • Afbókun innan 24 klst. fyrir brottför þá eru aðeins flugvallarskattar endurgreiddir.
  • 2.500.kr breytingargjald minnst, per farþega per fluglegg + fargjaldamismunur
  • 0.kr gjald fyrir nafnabreytingar sem sendar eru til hópadeildar fyrir kl 15:00 daginn fyrir brottför
    • (neyðartilvik utan opnunartíma senda á sportbreytingar@icelandair.is í síðasta lagi kl. 21:00 kvöldið fyrir ferðadag.)
  • Nafnabreytingar eru ekki heimilar við brottför.

Mögulegt er að sjá nánari upplýsingar í þessu skjali frá ÍSÍ

Icelandair2026_upplysingar_hopafargjold-3

Ef spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við BFSÍ og við finnum svörin og/eða aðstoðum 😊