You are currently viewing Þjálfaramenntun ÍSÍ – Sumar 2021

Þjálfaramenntun ÍSÍ – Sumar 2021

Sumarfjarnám 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ hefst mánudaginn 14. júní nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Nám allra stiga er allt í fjarnámi, og verða engar staðbundnar lotur.

Námið hefur verið afar vinsælt til fjölda ára og þátttakendur komið frá mörgum íþróttagreinum. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni. 

Þátttökugjald á 1. stig er kr. 34.000. (öll námskeiðsgögn eru innifalin)

Þátttökugjald á 2. stig er kr. 28.000. (öll námskeiðsgögn eru innifalin)

Þátttökugjald á 3. stig er kr. 40.000.

Athugið að þeir nemendur/þjálfarar sem koma frá fyrirmyndarfélögum/-deildum ÍSÍ fá 20% afslátt af námskeiðsgjaldi.

Rétt til þátttöku á 1. stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi.

Skráning er rafræn og þarf henni að vera lokið fyrir föstudaginn 11. júní.

Slóð á skráningu á öll stig í sumarfjarnámi þjálfaramenntunar ÍSÍ 2021:
http://isi.is/fraedsla/thjalfaramenntun-isi/skraning-i-thjalfaramenntun