You are currently viewing Marín brýtur 7 titla sigurröð Valgerðar, Ari fyrsti karl sem vinnur titil óháð kyni og Kópavogsmenn taka félagsliðatitilinn á ÍM í sveigboga utandyra 2026

Marín brýtur 7 titla sigurröð Valgerðar, Ari fyrsti karl sem vinnur titil óháð kyni og Kópavogsmenn taka félagsliðatitilinn á ÍM í sveigboga utandyra 2026

Íslandsmeistaramótið utandyra 2026 í Ólympískum Sveigboga meistaraflokki var haldið í Fagralundi í Kópavogi sunnudaginn 21 júní síðastliðinn.

Veður aðstæður á mótinu voru óvenju frábærar. Bæði var gott skjól í kringum svæðið og veðurguðirnir voru í góðu skapi og gáfu keppendum sól og blíðu meiri hluta mótsins. Það er ólíkt flestum ÍM síðasta áratug þar sem oftar en ekki hefur verið gul eða appelsínugul veðurviðvörun akkúrat þá helgi sem Íslandsmeistaramótin í meistaraflokki hafa verið haldin.

Marín Aníta Hilmarsdóttir úr Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi skaraðir framúr í sveigboganum og náði 620 stigum í undankeppni ÍM og var með hæsta skor allra keppenda óháð kyni í sveigboga. 620 er einnig lágmarkskorviðmið ÓL 2028 og nýtt Íslandsmet.

Marín vann einnig Íslandsmeistaratitil kvenna örugglega í úrslitaleiknum 6-0, eftir fjögurra ára ólukku runu þar sem að liðsfélagi hennar Valgerður E. Hjaltested hefur unnið síðustu 7 Íslandsmeistaratitla í röð (Innandyra 2023, 2024, 2025 og 2026 og utandyra 2023, 2024, 2025). 7 titlar í röð sem Valgerður átti er einnig lengsta óbrotna sigurröð Íslandsmeistaratitla í sveigboga í sögu íþróttarinnar, sem Marín braut á mótinu.

Ari Emin Björk úr Íþróttafélaginu Akri á Akureyri skaraði einnig framúr og vann Íslandsmeistaratitil karla örugglega í 6-0 úrslitaleik og varði þar með titil sinn frá síðasta ári. Ari var einnig fyrsti karlmaður í sögu íþróttarinnar til að vinna Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni utandyra þegar hann sigraði Marín í úrslitaleiknum 7-3. En Marín Aníta Hilmarsdóttir hefur unnið titilinn óháð kyni síðustu 3 ár í röð frá því að titilinn var fyrst veittur 2023. Ari skoraði 596 stig í undankeppni mótsins sem er personal best í keppni.

Bogfimifélagið Boginn í Kópavogi vann Íslandsmeistaratitil félagsliða auðveldlega 6-0, og tryggðu því áframhaldandi 6 Íslandsmeistaratitla sigurröð félagsins frá því að félagsliðakeppni var breytt í keppni óháð kyni 2024 (innandyra 2024, 2025, 2026, utandyra 2024, 2025, 2026). En félagið hefur unnið 22 af síðustu 24 Íslandsmeistaratitlum félagsliða í meistaraflokki sem veittir hafa verið í greininni frá stofnun BFSÍ.

Sigurvegarar ÍM Sveigboga utandyra 2026

  • Íslandsmeistari sveigboga óháð kyni – Ari Emin Björk – ÍF Akur Akureyri
    • Silfur Marín Aníta Hilmarsdóttir
    • Brons Valgerður E. Hjaltested
  • Íslandsmeistari sveigboga kvenna – Marín Aníta Hilmarsdóttir – BF Boginn Kópavogi
    • Silfur Valgerður E. Hjaltested BFB
    • Brons Eva Kristín Sólmundsdóttir ÍFA
  • Íslandsmeistari sveigboga karla – Ari Emin Björk – ÍF Akur Akureyri
    • Silfur Ragnar Þór Hafsteinsson BFB
    • Brons Baldur Freyr Árnason BFB
  • Íslandsmeistari sveigboga félagsliða – Lið Bogfimifélagsins Bogans í Kópavogi
    • Liðsmenn
      • Marín Aníta Hilmarsdóttir
      • Valgerður E. Hjaltested
      • Baldur Freyr Árnason

Íslandsmet og markverð skor á ÍM26 í sveigboga utandyra:

  • Marín Aníta Hilmarsdóttir BFB – Íslandsmet Sveigboga kvenna meistaraflokkur 620 stig – Metið var áður 616 og Marín átti það sjálf frá ÍM utandyra 2021 (og þar er enn U21 metið hennar).
    • 620 er einnig lágmarksskor sem einstaklingur þarf að ná til að geta unnið þátttökurétt á Ólympíuleika 2028 í sveigboga kvenna. Skorið var hækkað úr 610 í 620 stig milli ÓL24 og ÓL28. En það er einnig búið að fækka fjölda þátttökurétta sem eru í boði í sveigboga til að koma trissuboga að á ÓL þannig að erfiðleikastig þess að vinna þátttökurétt á ÓL í sveigboga hefur því hækkað gífurlega. En Marín er einni Íslenski keppandinn sem hefur náð þeim viðmiðum í sveigboga
  • Bogfimifélagið Boginn – Íslandsmet Sveigboga félagsliðakeppni meistaraflokkur 1668 stig – Metið var áður 1592 stig frá 2024 og Boginn átti það met
    • Liðsmenn
      • Marín Aníta Hilmarsdóttir
      • Valgerður E. Hjaltested
      • Baldur Freyr Árnason

Um Íslandsmeistaramótið utandyra í bogfimi í heild sinni í öllum greinum um helgina.

Skráningar á Íslandsmótum hafa ekki verið hærri síðan fyrir kórónuveirufaraldurinn og ÍM núna var aðeins 6 skráningum frá því að jafna hæsta fjölda keppenda á ÍM utandyra til dags.

Sýnt var beint frá úrslitaleikjum ÍM á Archery TV Iceland Youtube rásinni sem er hægt að finna hér

Niðurstöður er hægt að finna í skorskráningarkerfinu á vefsíðunni ianseo.net https://www.ianseo.net/Details.php?toId=28303

Myndir er hægt að finna á Smugmug BFSÍ hér https://bogfimi.smugmug.com/

Í raun er um að ræða fjögur Íslandsmeistaramót sem haldin eru sömu helgi. Þessi frétt fjallar aðeins um eitt af þeim.

  • ÍM Berboga á laugardegi
  • ÍM Trissuboga á laugardegi
  • ÍM Sveigboga á sunnudegi
  • ÍM Langboga á sunnudegi

Mögulegt er að finna fréttir um hvert Íslandsmeistaramót í sér fréttagrein á heimsíðu BFSÍ bogfimi.is og fréttir um einstaka sigurvegara og einstaklings árangur á archery.is bogfimifréttavefnum á næstu dögum þegar að Gummi hefur haft tíma til að skrifa fréttirnar 😉

Á ÍM í hverri grein er keppt um fjóra Íslandsmeistaratitla

  • Einstaklingstitil karla (þeir sem skráðir eru karlar í þjóðskrá)
  • Einstaklingstitil kvenna (þeir sem skráðir eru konur í þjóðskrá)
  • Einstaklingstitil óháð kyni (allir Íslendingar óháð kynskráningu í þjóðskrá. Karlar, konur, kynsegin, allir. Titli sem BFSÍ bætti við árið 2023 bæði til að skapa grundvöll fyrir kynsegin/annað fólk í þjóðskrá til að geta keppt um titil og búa til formlegt umhverfi þar sem konur og karlar gætu keppt gegn hvert öðru)
  • Félagsliðatitill (3 manna félagslið óháð kyni)

Keppnisdagarnir eru langir og oftast um 12 tímar fyrir keppendur (08:00-20:00) og mun lengri fyrir mótastaffið (á sunnudegin var það frá 07:00-02:00 fyrir sumt staffið, farið að nálgast 24 tíma daga).

Líklegt er að 2027 verði ÍM utandyra í meistaraflokki skipt niður þannig að hver grein verði á sér degi með sambærilegu fyrirkomulagi og þegar er gert á ÍM innandyra. M.a. til að stytta keppnisdaginn fyrir keppendur, minnka álagið á mótastarfsfólk, gera það jafnvel kleift fyrir marga keppendur utan af landi að geta tekið morgunflug (eða keyrt), klárað allt mótið og tekið kvöldflug (eða keyrt) heim eftir að mótinu lýkur og því spara sér gistikostnað. Einnig til að gera mótin skiljanlegri út á við. Þá er einn Íslandsmeistari óháð kyni, karla, kvenna, félagsliða á hverjum degi sem auðveldar fréttaflutning og tryggir að árangur hvers aðila hverfi ekki í gífurlegan fjölda niðurstaða sem koma inn samtímis.

Líklegt er þá að ÍM í berboga (á laugardegi) og ÍM í langboga (á sunnudegi) verði haldið á sama tíma og World Cup þar sem ekki er keppt í þeim greinum á World Cup. ÍM í trissuboga (á laugardegi) og ÍM í sveigboga (á sunnudegi) væri þá haldið á þeirri helgi sem hentar svo að það stangist ekki á við landsliðsverkefni sem okkar besta fólk gæti verið að keppa í, svo að okkar bestu missi ekki færi á því að verða Íslandsmeistarar.

Einnig er líklegt að þróun Íslandsmeistaramóta í Víðavangsbogfimi verði haldið áfram, þar sem almennur áhugi á Íslandsmeistaramótum í greininni virðist vera að aukast. Lítill hópur Afreksfólks í þeirri íþróttagrein hefur náð góðum árangri alþjóðlega og Ísland vann meðal annars til sinna fyrstu verðlauna á EM í víðavangsbogfimi í Póllandi 2025.

Næst á dagskrá hjá BFSÍ er fyrsta Íslandsbikarmót í Bikarmótaröð BFSÍ 27 júní og svo Norðurlandameistaramót ungmenna 1-6 júlí. Við óskum öllum keppendum til hamingju með árangurinn á ÍM, þökkum starfsfólki mótsins og vonumst eftir góðri uppskeru verðlauna á NM ungmenna 😊