BFSÍ bíður upp á sérhæfingar námskeið fyrir þjálfara í mismunandi þáttum íþróttarinnar.
Námskeiðin eru almennt ein helgi og eru meðal annars til þess að gefa þjálfurum tækifæri á auðveldu aðgengi að endurmenntun og viðbótarmenntun umfram almennu World Archery þjálfaranámskeiðin (sem fara ekki mjög djúpt í flesta þætti).
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt á sérhæfingarnámskeiði geta skráð áhuga sinn hér á þessum hlekk:
https://forms.gle/m6hysXjZZwUnsSjU6
Hvernig virkar sérhæfingarnámskeið?
- Íslenskir þjálfarar skrá áhuga sinn á sérhæfingarnámskeið í forminu.
- Þegar að 8-10 ish hafa safnast saman í skráningu (sama hvað það tekur langan tíma) þá finnur starfsfólk BFSÍ kennara til að kenna námskeiðið
- Þegar að kennari er fundinn sendir BFSÍ póst á þá sem skráðu áhuga sinn og starfsfólk BFSÍ finnur helgi sem hentar sem flestum sem skráðu áhuga og kennara.
- Þjálfarar greiða fyrir námskeiðið
- BFSÍ heldur námskeiðið (oftast á höfðuborgarsvæðinu, en fer eftir hverjir taka þátt)
- BFSÍ skráir þá þjálfara sem hafa lokið sérhæfingu í viðkomandi þætti í þjálfaragagnagrunninn sinn og á vefsíðu BFSÍ.
Hvenær þarf ég að borga fyrir námskeiðið?
- Þetta form skráir aðeins áhuga á því að taka þátt svo að staff BFSÍ viti hvaða námskeið er áhugi fyrir og er hægt að skipuleggja. Þó að einhver skrái áhuga sinn er það engin skuldbinding um að taka þátt í námskeiðinu.
- Þjálfarar staðfesta þátttöku sína á námskeiðunum með því að greiða fyrir námskeiðið.
- Þjálfarar greiða ekki fyrir námskeiðið fyrr en að búið er að staðfesta dagsetningar, stað, verð og kennara námskeiðsins.
- Verð er áætlað um 10.000.kr per mann, en verðið fer eftir
- Hve margir eru skráðir
- Styrkjum sem eru í boði
- Hvað kennari rukkar
- Þannig að getur verið frá 5.000.kr-50.000.kr
- Þeir sem taka þátt geta sótt um styrki fyrir námskeiðum frá t.d. UMFÍ, Íþróttahéruðuðum/bæjarfélögum eftir tilvikum vegna þjálfaramenntunar
- Verð er áætlað um 10.000.kr per mann, en verðið fer eftir
Ef ég hef lokið sérhæfingar námskeiði get ég þá ekki tekið það aftur?
Það eru engin takmörk á því hve oft þjálfari getur skráð sig á sérhæfingarnámskeið (sami maður getur skráð sig á t.d. berboga sérhæfingar námskeið þó að hann hafi áður lokið því).
Hvað væri dæmi um sérhæfingar námskeið?
- Tíu þjálfarar skrá áhuga sinn á berboga sérhæfingar námskeiði
- Starfsfólk BFSÍ talar við Erik Jonsson (árangurmesta berboga karl í sögu íþróttarinnar og þjálfari):
- Útskýrir að þetta er sérhæfingar þjálfaranámskeið sem er ein helgi.
- Útskýrir hvað er markmiðið að kenna á námskeiðinu (í þessu tilfelli allt um berboga)
- Athuga hvað hann rukkar fyrir að koma og halda námskeiðið.
- Athuga hvaða dagsetningar myndu mögulega henta kennaranum.
- Starfsfólk BFSÍ áætlar kostnað
- Tekur saman kostnað af flugi, gistingu, mat og transport fyrir kennara
- Reiknar út heildarkostnað á því að halda námskeiðið
- Athugar hvaða styrkir eru í boði til að greiða niður kostnaðinn
- Reiknar út kostnað per þátttakanda m.v. fjölda sem höfðu áhuga
- Starfsfólk BFSÍ sendir tölvupóst á þá sem skráðu áhuga sinn á námskeiðinu með upplýsingum um:
- Kennara
- Staðsetningu
- Verði námskeiðsins
- Dagsetningu
- Almennt helgar námskeið, dæmi um dagskrá væri:
- Form og tækni Laugardagur 09:00-18:00
- Búnaður og stillingar Sunnudagur 09:00-18:00
- Almennt helgar námskeið, dæmi um dagskrá væri:
- Þeir sem vilja greiða námskeiðsgjaldið og staðfesta með því þátttöku sína. Ef nægilega margir greiða gjaldið þá er verður námskeiðið haldið, ef ekki verður því aflýst og gjöldin endurgreidd. (Gjöld eru aðeins endurgreidd ef námskeiði er aflýst af BFSÍ)
- Starfsfólk BFSÍ bókar gistingu/flug/transport fyrir kennarann og bókar staðsetningu fyrir námskeiðið (ef nægilegur fjöldi skráir sig).
- Námskeiðið er haldið
- Þeir sem ljúka mati kennara á hæfni sinni (ef það er mat/próf á viðkomandi námskeiði) fá merkt við viðkomandi sérhæfingu á bogfimi.is og í gagnagrunni BFSÍ.
Dæmi um hvernig það gæti litið út


You must be logged in to post a comment.