Ísland vann eitt gull, eitt silfur, eitt brons og átti margar góðar niðurstöður á Evrópubikarmóti ungmenna sem haldið var í Ruse í Búlgaríu 1-6 júní.
Ísland endaði í 8 sæti í medal standings og í 8 sæti í heildarfjölda verðlauna á mótinu sem eru frábærar niðurstöður.
Suður-Kórea vann Evrópubikarmótið á Medal Standings. Já þetta hljómar líklega undarlega fyrir flestum, en Evrópubikarmót eru og hafa alltaf verið opin öllum þjóðum, ekki bara Evrópuþjóðum og nokkrar þjóðir utan Evrópu (mest frá Asíu og Afríku) sem taka einnig þátt.
Þjóðir utan Evrópu mega taka þátt og vinna Evrópubikarmótin (EB), en mega ekki taka þátt á mótum þar sem Evrópusambandið (World Archery Europe) veitir formlega titla. Formlegir titlar WAE eru veittir á Evrópumeistaramótum (EM Evrópumeistaratitla) og Evrópubikarmótaröð (EBM Evrópubikarmeistaratitla). Þannig að það er ekki hægt að segja að samkeppnin á Evrópubikarmótum sé minni en á EM, stundum er hún meiri en á EM þar sem sterkar þjóðir utan Evrópu taka þátt.
Evrópubikarmót ungmenna núna í Búlgaríu var einnig fyrra mótið í Evrópubikarmótaröð ungmenna. Seinna mótið í Evrópubikarmótaröðinni verður EM ungmenna á Ítalíu í júlí. Ísland er í 9 sæti Evrópubikarmótaraðarinnar eftir fyrra mótið í mótaröðinni. Sem er vel af sér vikið.
Þeir Íslendingar sem mætti segja að hafi skarað mest framúr á mótinu voru:
Lóa Margrét Hauksdóttir sem vann gullið í berboga U21 kvenna gífurlega örugglega 6-0 og vann silfur í liðakeppni U21 eftir tap gegn heimaþjóðinni Búlgaríu í úrslitum.
Magnús Darri Markússon sem endaði í 16 sæti í einstaklingskeppni og 9 sæti í liðakeppni í báðum tilfellum eftir að vera slegin út í 16 liða/manna úrslitum. En Magnús skoraði í fyrsta sinn yfir 600 stigum utandyra á alþjóðlegu móti og ekki nóg með það heldur var með hæsta skor allra Íslenskra keppenda í trissuboga 651 stig, þrátt fyrir vindinn og sló Íslandsmetið í U18 trissuboga karla, bæði í undankeppni og útsláttarleik, sem var mjög óvænt miðað við aðstæður.
Ragnar Smári Jónasson sem vann brons í berboga U21 karla, silfur í liðakeppni U21 og keppti einnig í trissuboga þar sem hann endaði í 12 sæti í einstaklingskeppni og 10 sætí í liðakeppni.
En allir 7 Íslensku keppendurnir náðu einhverjum góðum t.d. með því að slá Íslandsmet í sínum flokkum eða sambærilegt, nema Baldur sem var meiddur á hendi og þurfti því miður að draga sig úr keppni.
Heilt á litið flott hjá okkar fólki.
Sýnt var beint frá flestum úrslitaleikjunum á Youtube rás Evrópska Bogfimisambandsins World Archery Europe. Lokaniðurstöður Íslenskra keppenda er hægt að finna hér fyrir neðan og á Ianseo.net. Myndir af mótinu er hægt að finna á Smugmug BFSÍ.
Niðurstöður Íslenskra keppenda í einstaklingskeppni:
- Lóa Margrét Hauksdóttir – Berboga U21 kvenna – Gull
- Ragnar Smári Jónasson – Berboga U21 karla – Brons
- Ragnar Smári Jónasson – Trissuboga U21 karla – 12 sæti
- Magnús Darri Markússon – Trissuboga U18 karla – 16 sæti
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir – Trissuboga U21 kvenna – 18 sæti
- Elísabet Fjóla Björnsdóttir – Trissuboga U18 kvenna – 20 sæti
- Sóldís Inga Gunnarsdóttir – Trissuboga U18 kvenna – 21 sæti
- Eydís Elide Sartori – Trissuboga U18 kvenna – 22 sæti
- Baldur Freyr Árnarson sveigboga U21 karla – 51 sæti DNS (Did Not Start)
Niðurstöður Íslenskra liða:
- Silfur Berboga U21 blandað lið
- Ragnar Smári Jónasson
- Lóa Margrét Hauksdóttir
- 4 sæti Trissuboga U18 kvenna liða (3 kvk)
- Eydís Elide Sartori
- Elísabet Fjóla Björnsdóttir
- Sóldís Inga Gunnarsdóttir
- 9 sæti Trissubogi U18 blandað lið
- Magnús Darri Markússon
- Sóldís Inga Gunnarsdóttir
- 10 sæti Trissubogi U21 blandað lið
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir
- Ragnar Smári Jónasson
Íslandsmet sem slegin voru:
- Trissuboga U18 karla Íslandsmet undankeppni – Magnús Darri Markússon 651 stig, metið var 642 stig frá árinu 2020
- Trissuboga U18 karla Íslandsmet útsláttarleikur – Magnús Darri Markússon 145 stig, metið var 142 stig frá árinu 2020
- Trissuboga U18 kvenna landsliðsmet undankeppni 1752 stig metið var 1670 stig
- Elísabet Fjóla Björnsdóttir
- Sóldís Inga Gunnarsdóttir
- Eydís Elide Sartori
- Trissuboga U18 kvenna landsliðsmet útsláttarleikur 186 stig metið var 181 stig 4 júní
- Elísabet Fjóla Björnsdóttir
- Sóldís Inga Gunnarsdóttir
- Eydís Elide Sartori
- Trissuboga U18 kvenna landsliðsmet útsláttarleikur 202 stig metið var 181 stig 5 júní
- Elísabet Fjóla Björnsdóttir
- Sóldís Inga Gunnarsdóttir
- Eydís Elide Sartori
- Trissuboga U18 mixed team landsliðsmet undankeppni 1264 stig metið var 1252 stig
- Magnús Darri Markússon
- Sóldís Inga Gunnarsdóttir
- Trissuboga U18 mixed team landsliðsmet útsláttarleikur 140 stig jöfnuðu núverandi Íslandsmet
- Magnús Darri Markússon
- Sóldís Inga Gunnarsdóttir
Ýmsir punktar sem gerðust á mótinu
Veðrið á mótinu var mjög heitt, en mjög þægilegt þegar það var skýjað og það þurfti að fresta keppni vegna þrumuveðurs sem gekk yfir völlinn einu sinni. Það var einhver vindur nánast allan tímann sem keppni fór fram, sem var velkomin kæling, en óvelkomin upp á frammistöðu í skori, þannig að keppendur voru ánægðir og óánægðir á sama tíma vegna veðurs.
Mikið var að gera fyrir liðsstjóra mótsins að leysa ýmis konar óvenjuleg mál sem k0mu upp t.d. Þórdís og Ragnar flugu beint frá Veronicas Cup í Slóveníu á Evrópubikarmótið ásamt einum liðsstjóra Völu, en Air Serbia neitaði að setja bogatöskurnar um borð eftir að það var búið að rukka fyrir þær og tékka þær inn og var verið að setja þær í flugvélina (bæði frá liðum Íslands, Bretlands, Lúxemborg, Spáns og fleirum sem voru bókaðir í sama flug). Illa þjálfaðir starfsmenn á vegum Air Serbia var einfalda ástæðan. Þeir breyttu semsagt um skoðun upp úr þurru og sögðu að íþróttafólkið mætti ferðast með flugvélinni en ekki íþróttabúnaðurinn, og gáfu alskonar ástæður, þetta væri svona hjá öllum flugfélögum (sem er lygi, þetta er ekki einu sinni svona hjá Air Serbia sem bogfimifólk ferðast reglubundið með), töskurnar voru of stórar, að bogar væru byssur, töskurnar kæmust ekki í flugvélina, það var ekki búið að bóka töskurnar fyrirfram (það var bókað fyrirfram hjá Íslandi en ekki öðrum löndum) o.s.frv. Það var ljóst að raunverulega ástæðan var engin sérstök en þeir voru búnir að bíta það í sig að ætla að neita töskunum eftir að vera búnir að tékka þær inn, og neituðu að fylgja sínum eigin reglum og að leyfa að tala við yfirmann. Gummi reddaði því á endanum með því að bóka Völu í business class flug (til að geta nýtt farangursheimildina og komið töskunum nægileg snemma til Búlgaríu til að ná undankeppni mótsins) með allar fjórar bogatöskurnar og senda íþróttamennina 2 í upprunalega flugið án búnaðarins. Þannig að ef ske kynni að ekki væri mögulegt að redda búnaðinum á völlinn tímanlega þá væru íþróttamennirnir allavega komnir og væri mögulegt að finna lánsbúnað fyrir þá til að keppa í undankeppni mótsins. Vala svaf á flugvellinum með töskurnar að bíða eftir flugi næsta dags og íþróttafólkið komst til Búlgaríu án vandræða á official practice deginum. En vandamálunum var ekki lokið þar sem að þegar að Vala lenti í Rúmeníu (af því að Evrópubikarmótið er haldið rétt við landamæri Rúmeníu og Búkarest er næsti flugvöllur) þá komu töskurnar ekki á beltunum heldur var maður sem kom sérstaklega með þær á tösku trillu og keyrði þær yfir til border police. Þar var Vala stop í klukkutíma með Gumma í símanum að reyna að útskýra fyrir þeim að bogar væru ekki byssur. Þeir heimtuðu boðsbréf sem er að sjálfsögðu ekki til, heimtuðu leyfi sem er að sjálfsögðu ekki til af því að þetta eru ekki byssur og margt fleira. Vandræði sem hafa aldrei komið upp á ferðalögum Íslenska liðsins, né annarra liða. Á sama tíma löbbuðu aðrir einstaklingar með bogatöskur beint í gegn framhjá þeim án vandræða eins og allir hinir 300 keppendur mótsins sem lentu í engum vandræðum, eins og eðlilegt er. Og en og aftur er það illa þjálfað flugvallarstarfsfólk sem er um að kenna, sem vildi ekki viðurkenna að það hefði rangt fyrir sér, þrátt fyrir að vera búnir að finna upplýsingar um að þeir hefðu rangt fyrir sér. En staffið gafst upp á endanum og lét Völu skrifa undir eitthvað handahófskennt bréf um byssur til að mega að fara inn í Rúmeníu, bréf sem Gummi deildi að sjálfsögðu með Rúmenska liðinu á mótinu, sem voru brjálaðir um hvaða heimska þetta væri og formaður sambandsins sagðist ætla að hafa samband við flugvöllinn og skamma þá.
Eins og venjulega var Gummi valinn í Jury of Appeal (dómnefnd mótsins). Hann er nánast orðinn staðlaður meðlimur, og kemst sjaldan hjá því að vera valinn. Hann var einnig í Jury of Appeal á EM í Tyrklandi fyrir 2 vikum og EM innandyra í febrúar. Það var eitthvað um það að mótshaldarar gleymdu að fara eftir nýjustu reglum EBU sem var óvenjulegt, en Gummi lét þá leiðrétta það áður en til komu vandræði. T.d. ætluðu þeir að afhenda verðlaun fyrir lokaniðurstöðu í undankeppni ekki útsláttarkeppni í sumum flokkum, sem er regla sem var breytt árið 2023 og ýmislegt fleira eðlilegt smátt sem gerist á öllum mótum og við fjöllum venjulega ekki um sérstaklega í fréttum.
Þannig að BFSÍ staffið á mótinu svaf ekki mikið í ferðinni, enda óvenju mikið að gera hjá þeim (sem er einnig ástæðan fyrir því að fréttirnar af mótinu koma óvenju seint hehe)
En allt heppnaðist þó á endanum og allir Íslensku keppendurnir náðu að keppa eins og eðlilega mætti teljast og náðu góðum árangri. En Bretar voru þó ekki eins heppnir og tveir af þeirra keppendum sem lentu í því sama með Air Serbia komust ekki tímanlega á mótið til þess að keppa í undankeppni og geta tekið þátt, sem var leitt.













