You are currently viewing Undankeppni EM gekk vel, en leikirnir á EM ekki okkar keppendum í vil að þessu sinni

Undankeppni EM gekk vel, en leikirnir á EM ekki okkar keppendum í vil að þessu sinni

Níu Íslendingar og fjögur Íslensk lið kepptu á Evrópumeistaramótinu utandyra í Antalya Tyrklandi 18-24 maí 2026 (European Outdoor Championships). Það var mjög heitt oft en þar sem að það er snemma sumars í Tyrklandi var það oftast þægilegur hiti, vindur lét sýna sig reglubundið í vikunni og þrumuveður og rigning stoppaði keppnina einu sinni.

Undankeppni EM 2026:

Allir Íslendingar og öll Íslensk lið unnu þátttökurétt á EM eftir undankeppni EM 19 maí og gekk almennt mjög fínt í undankeppni EM hjá okkar fólki.

EM utandyra er einnig fyrsta undankeppnismót fyrir þátttökurétt á Evrópuleikana 2027 (EL) eða European Games (EG) á vegum European Olympic Committee (EOC), og eru því í raun „Ólympíuleikar Evrópu“. Til þess að vinna þátttökurétt á Evrópuleika í bogfimi þarf bæði að ná lágmarks skorum og að vinna þátttökurétt með því að enda hátt í lokasæti EM. Síðara undankeppnismótið um þátttökurétt á Evrópuleikana verður í mars 2027 á Evrópubikarmótinu.

Marín náði lágmörkum í sveigboga kvenna á EM fyrir Evrópuleikana 2027 (EL27) með 600 stigum slétt, lágmarkið er 600. Það er einnig hæsta skor sem sveigboga kona hefur skorað á EM utandyra (var áður 586 frá EM 2022) og hæsta sæti í undankeppni EM utandyra 63 sæti (var áður 64 sæti frá EM 2022)

Sveigboga stelpurnar slóu landsliðsmetið með 1606 stig vs 1598 stigum sem var metið sett á EM 2024. Þær bætu einnig hæsta sæti í undankeppni sveigboga kvenna liða 20 sæti, en það var áður 22 sæti frá EM 2024.

Ragnar náði lágmörkum trissuboga karla fyrir Evrópuleikana 2027 annað mótið í röð 676 núna og 700 á Evrópubikarmótinu í apríl, lágmarkið er 660. 676 er einnig hæsta skor sem Íslendingur hefur skorað í undankeppni EM (var áður 659 frá EM 2022)

Trissuboga karlarnir jöfnuðu Íslandsmet landsliða trissuboga karla með 1970 stig, met sem var sett árið 2017 á Smáþjóðaleiknum. Það er því einnig hæsta skor Íslands á EM utandyra, en það var áður 1939 stig frá EM 2022, þeir jöfnuðu einnig hæsta sæti Íslands í undankeppni EM 19 sæti, frá EM 2016.

Allar trissuboga stelpurnar okkar náðu lágmörkum fyrir Evrópuleikana 2027. Þórdís 665, Eowyn 658 og Anna með 661 á EM, en lágmarkið í trissuboga kvenna er 640. En Þórdís (670) og Eowyn (657) voru náðu einnig lágmörkum á Evrópubikarmótinu fyrir mánuði síðan.

Trissuboga stelpurnar voru aðeins 2 stigum frá Íslandsmeti landsliða kvenna með 1984 stig en metið er 1986 síðan á EM 2022. Þær jöfnuðu einnig hæsta sæti sem Ísland hefur náð í undankeppni EM 11 sæti frá EM 2024.

Trissuboga blandaða liðið (mixed team) náði hæsta skori Íslands á EM til dags með 1341 stig en hæsta var áður 1339 stig frá EM 2022.

104 einstaklingar og 24 lið halda áfram eftir undankeppni EM og fá þátttökurétt í útsláttarkeppni (útsláttarleikjum) EM.

Það er í raun ekki hægt að kvarta yfir gengi Íslands í undankeppni EM af því að það var bara fínt. Meira en helmingur Íslensku keppendanna náði lágmarkviðmiðum Evrópuleika. Þó að það séu eðlilega alltaf einhverjar sveiflur hér og þar, sumir standa sig eilítið betur eða verr en áætlað, veður hefur áhrif og annað slíkt. Á heildina litið var flott frammistaða í undankeppni EM hjá okkar fólki.

EM Útsláttarleikir 2026:

Í leikjum EM 2026 lék lukkan hins vegar ekki við okkar fólk að þessu sinni á EM og oftar en ekki þar sem Íslendingar eða Íslensk lið voru slegin út með sorglega littlum mun og sorglega snemma í keppni.

Ragnar var sleginn út með einu stigi 142-141 á móti Hollendingi í fyrsta leik trissuboga karla (104 manna leikjum), þar sem þeir voru jafnir í næst síðustu umferð 112-112 og Hollendingurinn náði fullkomnu skori í síðustu umferð 30 á móti 29 frá Ragnari. Alfreð skaut fullkomna 10 en á skotskífu andstæðingsins (og vinarins) frá Færeyjum, í fyrstu umferð í fyrsta leik (104 manna leikjum) trissuboga karla og tapaði leiknum og Dagur einnig. Trissuboga karla liðið tapaði 221-218 í fyrsta leik (24 liða leik), basically jafn leikur í næstum öllum umferðum, nema Belgar áttu eina góða umferð 3 umferð sem gaf þeim sigurinn.

Anna María í trissuboga kvenna var slegin út með 1 stigi af Hollendingi 142-143 í 48 manna leikjum og endaði í 36 sæti. Þórdís í trissuboga kvenna var slegin út þegar Úkraínska náði 30 fullkomnu skori á móti 28 frá Þórdísi í síðustu umferðinni í 48 manna leikjum og hún því slegin út með littlum mun 145-142 og endaði einnig í 36 sæti. Trissuboga kvenna liðið strögglaði á tíma og vindi og áttu lakann leik þegar þær voru slegnar út af Frakklandi í 16 liða úrslitum sem skutu óvenju góðan leik gegn Íslandi miðað við veður og stelpurnar okkar enduðu í 11 sæti á EM.

Marín tapaði 6-0 í fyrsta leik sveigboga kvenna 25-27, 26-27, 24-27 á móti Rús…. hehem hlutlausum íþróttamanni. Vala, Astrid og sveigboga kvenna liðið voru allar slegnar út 6-0, sem hefur aldrei gerst áður á EM að enginn hafi náð stigum.

Trissuboga blandaða liðið (mixed team) byrjaði vel en gengið versnaði svo í miðju leiksins, eftir að það þurfti að stöðva mótið allt í miðjum leiknum þegar að himnarnir opnuðust og hellti úr fötu á keppendur og búnað, þrumur í nánd og hvasst (skondið þegar maður þarf regnhlíf inn í tjaldinu líka hehe), þannig að þau voru slegin út af Króatíu í 24 liða leikjum 150-141 og enduðu í 22 sæti…..

Nokkrir af leikjunum sem voru tæpir og hefðu tryggt okkar keppendum hærri lokasæti á EM.

Nýtt „final ranking“ kerfi hefur nýlega verið tekið upp í reglum WA. Áður endaði allt íþróttafólk sem tapaði t.d. 32 manna úrslitum jafnt í 17 sæti, en nú er íþróttafólkinu raðað í sæti byggt á meðalskori þeirra í útsláttarleikjum EM. Þetta voru því í 5 af 7 keppnisgreinum í raun verstu lokaniðurstöður Íslands á EM utandyra frá upphafi. Utan trissuboga karla sem voru í 19 sæti á EM núna en voru lægst í 21 sæti á EM 2022 og trissuboga blandað lið sem var í 22 sæti á EM núna en komst ekki áfram eftir undankeppni EM á EM 2018 og endaði þar í 25 sæti (24 lið halda áfram eftir undankeppni). Til þess að ná hærri lokaniðurstöðum þarf maður að vinna leiki og það var ekki mikið um það hjá Íslandi á EM að þessu sinni.

Það er ekki hægt að segja að Ísland hafi staðið sig „illa“ á EM, þar sem að frammistaða íþróttafólksins var fín í flestum leikjum og á pari við það sem mætti áætla. Margt af íþróttafólkinu okkar var meðal þeirra sem voru með hæstu skorin af þeim sem voru slegnir út í leikjunum, andstæðingarnir skutu bara betur. Þannig að það væri hægt að segja að í „dagsforminu“ í leikjunum var lukkan ekki okkar megin hjá neinum Íslenskum keppanda og engu Íslensku liði á EM, sem er óvenjulegt og var óvænt. Eins og hlutkesti þar sem að maður fær „heads“ tíu sinnum í röð, eða kastar fimm teningum og færð Yatzy í einu kasti, það er ekki ómögulegt bara ólíklegt og óvænt þegar það gerist.

En svona er það bara, það geta ekki öll mót gengið alltaf frábærlega, sum verða að ganga venjulega eða illa þegar horft er á meðaltal til þess að geta átt frábærar frammistöður. Það var ekkert að sakast við keppendurna þeir stóðu sig eins og eðlilega mætti áætla, en ef maður getur verið heppin þarf maður líka að geta verið óheppinn og þetta EM var án vafa óheppnismót þegar kom að útsláttarleikjum Íslendinga. En það sást ekki mikið á stemmingu okkar keppenda á mótinu sem voru almennt sáttir við sína frammistöðu þó að andstæðingarnir hafi skotið betur.

Lokaniðurstöður Íslenskra liða og einstaklinga á EM 2026

  • Einstaklingar:
  • Anna María Alfreðsdóttir 36 sæti trissuboga kvenna
  • Þórdís Unnur Bjarkadóttir 36 sæti trissuboga kvenna
  • Eowyn Marie Mamalias 47 sæti trissuboga kvenna
  • Ragnar Smári Jónasson 67 sæti trissuboga karla
  • Dagur Örn Fannarsson 76 sæti trissuboga karla
  • Alfreð Birgisson 78 sæti trissuboga karla
  • Marín Aníta Hilmarsdóttir 64 sæti sveigboga kvenna
  • Valgerður E. Hjaltested 70 sæti sveigboga kvenna
  • Astrid Daxböck 80 sæti sveigboga kvenna
  • Lið:
    • Trissuboga karla lið 18 sæti (Ragnar, Alfreð og Dagur). Slegnir út af Belgíu í 24 liða úrslitum.
    • Trissuboga kvenna lið 11 sæti (Eowyn, Anna og Þórdís). Slegnar út af Frakklandi í 16 liða úrslitum.
    • Trissuboga blandað lið 22 sæti (Ragnar og Þórdís). Slegin út í 24 liða úrslitum af Króatíu.
    • Sveigboga kvenna lið 20 sæti (Astrid, Vala og Marín). Slegnar út af Finnlandi í 24 liða úrslitum.

Þannig að heilt á litið. Það gekk vel í undankeppni EM fullt af personal bests fyrir Ísland á EM og margir Íslenskir keppendur sem hafa náð lágmarksviðmiðum Evrópuleika á undankeppnistímabilinu (fleiri en nokkur sinni áður með miklum mun). Það munaði fáum stigum á því að Ísland ætti nokkra í 32 manna úrslitum EM, en það verður að bíða til 2028 á næsta EM utandyra í Nottingham Bretlandi. Trissuboga kvenna liðið náði hæstu niðurstöðunum eftir að tapa fyrir Frakklandi í 16 liða úrslitum, en Ísland hefur aldrei komist lengra en 16 manna/liða úrslit í sögu þátttöku Íslands á EM utandyra, þó að við höfum átt keppendur sem hafa náð mun lengra á EM innandyra.

Gull og brons úrslitaleikir EM verða haldnir um helgina, en Íslensku keppendurnir hafa lokið keppni og njóta sín við sundlaugina á hótelinu á milli æfinga á æfingavellinum.

Þrír keppendur fljúga beint af EM í Tyrklandi að keppa á Veronicas Cup World Ranking Event í Slóveníu (Valgerður, Ragnar og Þórdís) í næstu viku. Þau þrjú fljúga svo frá Veronias Cup beint á Evrópubikarmót ungmenna í Búlgaríu. Gummi flýgur heim af EM í Tyrklandi og sækir hóp vaskra ungmenna og hittir hin þrjú í Búlgaríu. Við teljum líklegt að Ísland komi heim með nokkur verðlaun í ungmenna flokkum af þeim mótum, þar sem Ísland hefur sýnt sterka frammistöðu síðustu 4 ár í ungmenna flokkum. Sem er einnig merki þess að næsta kynslóð íþróttafólks sem kemur upp í meistaraflokk verði sterk 😉