10 keppendur frá Íslandi eru að keppa þessa helgi á Heimsbikarmótinu í Lausanne Sviss, mótið er haldið í Afreksíþróttamiðstöð heimssambandsins World Archery Excellence Centre.
Úrslitaleikjum heimsbikarmótsins er að ljúka í dag (01/11/2026). Fjallað verður sérstaklega um frammistöðu hvers keppenda í fréttum á archery.is á næstu dögum. Þessi frétt er aðeins að stikla á því helsta og loka niðurstöðum mótsins.
Frammistaða tveggja Íslenskra keppenda var framar öðrum á mótinu, Lóa og Þórdís kepptu til verðlauna í sínum greinum:
Lóa Margrét Hauksdóttir úr BF Boganum í Kópavogi vann sig upp í gull úrslitaleik berboga kvenna meistaraflokki. Fyrsti Íslendingur sem keppir til verðlauna á heimsbikarmóti í meistaraflokki.
Gull úrslitaleikurinn var gífurlega spennandi og heimssambandið sýndi beint frá leiknum á archery.tv. Úrslitaleikurinn endaði í 5-5 jafntefli eftir harða baráttu þar sem Lóa og Giulia frá Ítalíu skiptust því að sigra loturnar. Lóa vann fyrstu lotu 24-23 og tók 2-0 forystu í leiknum, sú Ítalska tók aðra lotu. Stelpurnar jöfnuðu þriðju lotu 21-21 og staðan því 3-3. Ítalska tók fjórðu lotu 25-24 og 5-3 forystu í leiknum, Lóa þurfti því að sigra síðustu lotuna til að jafna leikinn og knýja fram bráðabana (jafntefli í lotunni hefði þýtt að þær deildu stigunum og sú Ítalska hefði því unnið 6-4). Lóa vann síðustu lotuna 26-24. Því þurfti bráðabana til að ákvarða hver tæki sigurinn á heimsbikarmótinu. Í bráðabana skýtur hvor keppandi einni ör og sá sem hittir nær miðju vinnur leikinn. Allt undir á einni ör og einu skoti. En þar náði sú Ítalska sigrinum með 8 á 6 frá Lóu og sú Ítalska tók því gullið. Lóa varð því fyrsti Íslendingur til þess að vinna til verðlauna á heimsbikarmóti!
Frábær frammistaða frá Lóu sem er aðeins 18 ára að vinna til verðlauna í meistaraflokki!. Þó er nokkuð ljóst að Lóa mun setja mesta áherslu á U21 flokkinn á næstu árum og að vinna til fleiri verðlauna á Evrópumeistaramótum U21 þá er hún tilbúin í baráttuna í meistaraflokki.
Þórdís Unnur Bjarkadóttir (einnig 18 ára) úr BF Boganum í Kópavogi vann sig upp í brons úrslitaleikinn í trissuboga U21 kvenna. Þar tók Ivana Mavarcic frá Króatíu sigurinn í brons úrsitaleiknum og tók því bronsið 146-141 í þetta sinn.
Þórdís tapaði undanúrslitaleiknum með aðeins einu stigi 145-144 og skoraði sama skor í 16 manna úrslitum og sú Króatíska sem vann bronsið á móti Þórdísi (146). Þannig að Þórdís er alveg komin á þann stað að geta unnið til verðlauna á heimsbikarmótum U21. Það er bara spurning um „dagsformið“, ef svo má kalla, og meira spurning um hvenær hún vinnur til verðlauna á heimsbikarmóti frekar en hvort að það gerist.
8 af 10 Íslensku keppendunum á Heimsbikarmótinu í Sviss komust áfram eftir undankeppni mótsins sem er flottur árangur. Topp 32 keppendur í skori í undankeppni í meistaraflokki halda áfram í úrslit og topp 16 í U21 flokkum. Lokaniðurstöður Íslensku keppendanna er hægt að finna í listanum hér fyrir neðan sem er tekinn út Ianseo (mótakerfi World Archery)
| Final Rank | |||||||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Event | Rank | Athlete | RR Score/Rank | 1/16 | 1/8 | 1/4 | 1/2 | Gold Bronze |
|||||
| Individual | Recurve Women | 21 | HILMARSDOTTIR Marin Anita | 546/23 | 2 | ||||||||
| Individual | Recurve Women | 31 | HJALTESTED Valgerdur | 541/26 | 0 | ||||||||
| Individual | Recurve Under 21 Men | 31 | ARNASON Baldur Freyr | 525/31 | |||||||||
| Individual | Compound Men | 50 | FANNARSSON Dagur Orn | 565/50 | |||||||||
| Individual | Compound Women | 23 | MAMALIAS Eowyn | 565/24 | 142 | ||||||||
| Individual | Compound Under 21 Men | 9 | JÓNASSON Ragnar Smári | 573/9 | 142 | ||||||||
| Individual | Compound Under 21 Women | 4 | BJARKADOTTIR Thordis Unnur | 577/5 | 146 | 145 | 144 | 141 | |||||
| Individual | Compound Under 21 Women | 15 | GUNNARSDÓTTIR Sóldís Inga | 559/11 | 136 | ||||||||
| Individual | Barebow Men | 8 | HAFTHORSSON Helgi Mar | 495/7 | 7 | (75) 0 | |||||||
| Individual | Barebow Women | 2 | HAUKSDOTTIR Loa Margret | 462/2 | -Bye- | 6 | 5 T.6 | ||||||
IWS Swiss Open er partur af innandyra heimsmótaröð alþjóðabogfimisambandsins World Archery (Indoor World Series (IWS) Swiss Open), sem er almennt kallað innandyra heimsbikarmót á Íslandi. Mótaröðin hét áður Indoor World Cup til ársins 2019 þegar nafninu á innandyra mótaröðinn var breytt úr Indoor World Cup í Indoor World Series. Ástæður fyrir breytingunni voru meðal annars þar sem að hætt var að halda heimsmeistaramót innandyra og heimsbikarmótaröðin innandyra myndi nú skilgreina þann besta í heimi í innandyra markbogfimi, og til að aðskilja nöfnin á utandyra og innandyra heimsbikarmótunum (utandyra mótaröð World Archery heitir en World Cup, en innandyra mótaröðin heitir nú World Series).
Mögulegt er að finna ýmsar fleiri myndir af Íslensku keppendunum á mótinu inn á smugmug BFSÍ og fleiri munu bætast við á næstu dögum https://bogfimi.smugmug.com/2026-IWS-Swiss-Open


















