Á blaðamannafundi almannavarna í gær var minnt á reglur sem í gildi eru um takmarkanir í samkomubanni.
Minnisblað sóttvarnalæknis og yfirlögregluþjóns er hægt að finna hér
Minnisblað vegna sóttvarnahólfa 01.07.2020
Í minnisblaðinu er verið að árétta þær reglur sem eru í gildi um fjöldatakmarkanir og hólfaskiptingu, hvort heldur er innandyra eða utanhúss.
Meðal þess sem fram kemur í minnisblaðinu er:
- Fjöldatakmörkun er 500 manns á hverju svæði/sóttvarnarhólfi
- Tryggja með sýnilegum hætti tveggja metra svæði á milli svæða/sóttvarnarhólfa
- Tryggja þarf að ekki sé blöndun á milli svæða
- Hafa þarf salerni, veitingasölu og aðra þá þjónustu sem boðið er uppá aðskilið fyrir hvert svæði fyrir sig
- Aðgengi að handþvotti og handspritti
- Sótthreinsun áhalda, tækja og fleti sem fleiri en einn snertir
- Viðhafa tveggja metra fjarlægðarregluna eftir því sem unnt er
Allir Íslendingar sem koma til landsins munu þurfa að fara í seinni skimun 4-5 dögum frá komu til landsins.
Hvetja þarf alla til að sýna ábyrgð og virða þær reglur sem í gildi eru.
Leiðbeiningar fyrir íþróttamannvirki og sundlaugar voru uppfærðar 30. júní sl. og er nýjustu útgáfuna að finna hér:
Einnig viljum við minna á rakningarsmáforritið sem er mikilvægur hlekkur í því viðamikla starfi sem er í gangi vegna Covid-19.
Því fleiri sem nota forritið, því betri og skilvirkari eru upplýsingarnar sem hægt er að vinna úr því.
Gott er að minna á forritið við skráningu í mót og viðburði á vegum íþróttahreyfingarinnar.
Meðfylgjandi eru veggspjöld sem hægt er að prenta út og hengja upp sem víðast til að minna okkur á sóttvarnir.
Einnig er hægt að nálgast fræðsluefni og veggspjöld inn á www.covid.is.
Beiðni frá ÍSÍ að koma ofangreindu á framfæri sem víðast innan okkar vébanda.
You must be logged in to post a comment.