World Archery Coaching Level 2 (Alþjóðlegt Þjálfaranámskeið stig 2 – WACL2) var að ljúka. Námskeiðið er styrkt af International Olympic Committee (IOC – Alþjóða Ólympíunefndin) í gegnum styrktar arm samtakana sem kallast Olympic Solidarity (Ólympíusamhjálpin – OS).
Tim Swane þjálfarakennari heimssambandsins World Archery sá um kennslu á námskeiðinu. Þetta er fjórða slíka námskeið á vegum WA/OS sem Tim heldur á Íslandi frá árinu 2022 og landið er í uppáhaldi hjá honum, enda þróunarstig landa sem námskeiðin eru haldin í alþjóðlega á mjög mismunandi stigum.
Verið er að gera stórar breytingar á þjálfaramenntunarkerfi og fyrirkomulagi alþjóðabogfimisambandsins og endurskrifa allt efni og öll námskeið á vegum sambandsins. Námskeiðið var því haldið í millitímanum á meðan á þróun nýja þjálfaramenntunarkerfisins er í gangi. Verið er að færa mikið af námskeiðs efninu á netið og reyna að stytta raun námskeiðin og einbeita sér frekar að praktískum atriðum á námskeiðum og gera meira í fjarmenntun þar sem það er mögulegt. Það mun stytta dagana sem Tim mun þurfa að koma til Íslands að kenna. Þetta hefur verið gert áður stig 2 var áður 10 dagar og er nú 5 dagar, og nú er verið að reyna að skera það niður í 3 daga, sem mun gera efna minni þjóðum mun auðveldara að halda námskeiðin.
Þjálfaranámskeið á Íslandi hafa oft verið notuð til þess að prófa ný atriði sem er verið að bæta við eða íhuga að bæta við í þjálfaramenntunarkerfi WA í framtíðinni, m.a. þar sem námskeiðin á Íslandi eru meðal best undirbúnu þjálfaranámskeiða innan World Archery af BFSÍ, vegna góðrar Ensku kunnáttu þátttakenda og þar sem BFSÍ er mjög opið fyrir samstarfi um þróun þjálfara og þjálfaramenntunar og því opið fyrir öllu slíku samstarfi við World Archery.
11 Íslenskir þjálfarar sátu námskeiðið og allir 11 náðu réttindum.
Matið á hvort að nemendur ná eða ná ekki mati á námskeiðinu er byggt á þrem hlutum:
- Practical evaluation við mitt námskeið (miðvikudag)
- Online test á næst síðasta degi námskeiðsins (fimmtudag)
- Practical evaluation á síðasta degi námskeiðsins (föstudag)
Þeir sem sátu L2 námskeiðið voru:
- Alfreð Birgisson – ÍF Akur Akureyri
- Anna María Alfreðsdóttir – ÍF Akur Akureyri
- Sóley Rán Haman Unadóttir – ÍF Akur Akureyri
- Ari Emin Björk – ÍF Akur Akureyri
- Eowyn Marie Mamalias – BF Boginn Kópavogi
- Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir – BF Boginn Kópvogi
- Jóhann Baldur Jóhannsson – BF Boginn Kópavogi
- Baldur Freyr Árnason – BF Boginn Kópavogi
- Lóa Margrét Hauksdóttir – BF Boginn Kópavogi
- Natan Eir Skov Jenssen – BF Boginn Kópavogi
- Karólína Karlsdóttir – BF Boginn Kópavogi
Tim var að venju mjög ánægður með einkunnir þeirra sem tóku prófin og matið, þar sem þær eru alltaf óvenjulega háar á Íslandi m.v. heiminn að hans sögn.
Vert er að geta að Jóhann, Lóa, Natan og Karólína hafa ekki lokið þjálfarastigi 1 en sem komið er, en ætluðu að sitja það næst þegar það væri haldið (BFSÍ áætlar að halda þjálfarastig 1 í ágúst 2027), og þar sem nokkuð mikið var um að þátttakendur aflýstu þátttöku sinni á námskeiðinu með skömmum fyrirvara var þeim boðið að sitja þjálfarastig 2 námskeiðið sem „sit ins“ (ásamt fleirum), þar sem þau voru að bíða eftir þjálfaranámskeiði hvort sem er. Það var svo sem ekki endilega gert ráð fyrir að þau myndu ná mati fyrir þjálfarastig 2. En þau náðu öll mati þrátt fyrir að hafa ekki tekið stig 1 áður. En við munum samt segja að þau séu með * við sín stig 2 þjálfararéttindi þar til að þau hafa klárað stig 1 á næsta ári 😉, og að sjálfsögðu ÍSÍ þjálfarastigin sem ÍSÍ er með kröfu um að fólk klári til að fá þjálfararéttindi gild (almenna þjálfarastigið og sérgreina þjálfarastigið)
Hinir 7 þátttakendurnir (Alfreð, Anna, Anna, Sóley, Ari, Eowyn og Baldur) höfðu öll lokið alþjóðlegu þjálfarastigi 1 (WACL1) á námskeiðum sem haldin voru árunum 2017-2025. Reynsluboltar eins og Alfreð sem sat stig 1 námskeiðið í fyrsta sinn árið 2017, fyrir næstum áratugi, þó að flestir hinir hafi lokið þjálfarastigi 1 á síðasta námskeiði sem BFSÍ hélt árið 2025.
Eins og venjan er þá hafði Íslenska náttúran áhrif á þjálfaranámskeiðið. Þó að venjulega séu þau áhrif vegna eldgosa og jarðskjálfta, sem virðast alltaf byrja þegar að þjálfaranámskeið í bogfimi er haldið. En í þetta skiptið var það sólmyrkvi sem var á sama tíma og þjálfaranámskeiðið átti að vera. Dagsetningar námskeiðsins voru ákveðnar ári fram í tímann og var ákveðið að taka vikuna 10-15 ágúst, þar sem að það er stuttu áður en skóli byrjaði, innan „sumarfrís“ tímabila flests fólks og stangaðist ekki á við nein mikilvæg alþjóðleg mót. Það sem gleymdist hins vegar að athuga var hver staðan á sólinni og tunglinu yrði á þeim dögum, og sökum sólmyrkvans á Íslandi voru öll hótel uppbókuð eða verðin voru komin upp úr öllu valdi. Því var ákveðið að fresta námskeiðinu um viku og taka 17-22 ágúst í staðin. Það orsakaði þó að sumt fólk kæmist ekki hluta einhverra dagana vegna skóla og því var auka dagurinn (22 ágúst) notaður til þess að fara yfir það sem vantaði upp á fyrir þá þátttakendur til að ljúka námskeiðinu.
Farið var yfir helstu atriði íþróttarinnar á námskeiðinu og hægt að sjá stundaskrá námskeiðsins hér fyrir neðan.

En þar sem að Ensku kunnátta þeirra sem sátu námskeiðið er góð (eins og hjá flestum Íslendingum) var skipulagið oft á undan dagskrá og því opnaðist tækifæri til að bæta við ýmis konar þekkingu sem var ekki á listanum úr eldra námsefni. En algengt er að svo sé ekki á mörgum þessara námskeiða, þar sem þetta eru alþjóðleg þjálfaranámskeið á vegum heimssambandsins og gefur alþjóðleg þjálfararéttindi. Sem dæmi var verið að halda þjálfarastig 1 í Malawi á sama tíma og námskeiðið sem var á Íslandi.
Allavega námskeiðið gekk flott og lauk jákvætt. Gummi og Tim fóru einnig í stutta heimsókn á skrifstofu ÍSÍ til að þakka fyrir stuðninginn, þar sem styrkir frá Ólympíusamhjálpinni fást í gegnum umsóknir í gegnum ÍSÍ. Þar hittu þeir á framkvæmdastjóra ÍSÍ og Ragnhildi Skúladóttur sviðsstjóra fræðslu- og almenningsíþróttasviðs.
BFSÍ áætlar að halda alþjóðlegt þjálfaranámskeið stig 1 (WACL1) 9-15 ágúst 2027 (óstaðfestar dagsetningar en fráteknar). Vonandi aftur með Tim sem þjálfarakennara og með áframhaldandi stuðningi Olympic Solidarity, World Archery og ÍSÍ.












You must be logged in to post a comment.