You are currently viewing Lóa Margrét annar Evrópubikarmeistari í sögu íþróttarinnar

Lóa Margrét annar Evrópubikarmeistari í sögu íþróttarinnar

Lóa Margrét Hauksdóttir varð annar Evrópubikarmeistari í sögu íþróttarinnar eftir að hún tók Evrópubikarmeistaratitilinn í berboga kvenna U21 með skori sínu á síðara Evrópubikarmóti ungmenna á árinu í Róm Ítalíu.

Lóa var fremst í Evrópubikarmótaröðinni eftir fyrsta mótið í Ruse Búlgaríu fyrr á árinu þar sem hún vann og var efst í undankeppni með 469 stig. En Lóa þurfti einnig gott skor á síðara móti mótaraðarinnar, EM ungmenna í Róm, og náði því og var í 2 sæti í undankeppni EMU með 509 stig. Samtals 978 vel yfir Evrópumeistaranum innandyra sem var í 2 sæti og tók silfrið með 816 stig Dara-Maria Valova frá Búlgaríu, Evie Finnegan frá Bretlandi tók bronsið.

Lóa var eini Íslendingur sem vann til verðlauna í lokaniðurstöðum Evrópubikarmótaraðar ungmenna 2026

Keppt hefur verið um Evrópubikarmeistaratitil ungmenna í marga áratugi. En keppt var í fyrsta sinn í berboga flokkum á Evrópubikarmótum ungmenna árið 2025, og aðeins er keppt í U21 flokki í greininni að svo stöddu.

Fyrsta árið 2025 vann Heba Róbertsdóttir Evrópubikarmeistaratitilinn í berboga kvenna U21 fyrir Ísland, sem var í fyrsta sinn sem sá titill var veittur. En það var hennar síðasta ár í U21 flokki og hún gat því ekki endurtekið það.

Því er mjög ánægjulegt að Ísland hefur haldið í Evrópubikarmeistaratitilinn í greininni á milli ára og á milli kynslóða, þar sem að Lóa er að keppa á sínu fyrsta ári í U21 flokki á þessu ári og náði því afreki að vinna Evrópubikarmeistaratitilinn annað árið í röð fyrir Ísland.

Það er því rétt að segja að Ísland hefur unnið alla Evrópubikarmeistaratitila berboga kvenna frá upphafi, sem er ekki smá setning að geta sagt fyrir litla þjóð. En samtals eru veittir 10 Evrópubikarmeistaratitlar (Sveigbogi U18 og U21 karla og kvenna. Trissubogi U18 og U21 karla og kvenna. Berbogi U21 karla og kvenna)

Þjóðir keppenda sem unnu Evrópubikarmeistaratitla 2026:

  • Frakkland 3 titlar (RU21M Jules – RU18M Mael – RU18W Eleanor)
  • Þýskaland 2 titlar (CU21M Simon – CU18M Gianluca)
  • Ísland 1 titill (BU21W – Lóa)
  • Svíþjóð 1 titill (BU21M – Ludvig)
  • Sviss 1 titill (RU21W – Olivia)
  • Spánn 1 titill (CU21W Emma)
  • AIN (hlutlausir íþróttamenn) 1 (CU18W Valeriia)

Þjóðaniðurstöður Evrópubikarmótaraðar ungmenna:

Ísland endaði í 10 sæti í þjóða niðurstöðum Evrópubikarmótaraðar ungmenna 2026. Sem er frábær niðurstaða, en það er erfitt að vinna árangurinn sem náðist á síðasta ári þar sem að Ísland var í 6 sæti, jafnt Bretlandi!!! Enda óvenju frábær árangur árið 2025 sem er erfitt að endurtaka milli ára. En 10 sæti af rúmlega 40 þjóðum sem tóku þátt, er als ekki léleg niðurstaða fyrir smáþjóð.

Þjóðar niðurstöður gefa almennt til kynna getustig ungmenna þjóðar á heildar víddina af öllum keppnisgreinum, aldursflokkum og kynjum ungmenna og er því erfitt fyrir Ísland að keppa þar gegn mun stærri þjóðum með mun dýpri vasa og mun dýpra talent pool vegna íbúafjölda og iðkenda, sem geta því auðveldlega skipað liðum í öllum keppnisgreinum/aldursflokkum/kynjum. Þetta er meira svona „stórþjóða ranking“. En við gerum það besta sem við getum, tökum þátt og höfum verið að ná ótrúlegum árangri miðað við það.

Þjóðir í topp 20 Evrópubikarmótaraðar ungmenna til að gefa samanburð:

  1. Rúss…. uuu Individual Neutral Athlete – teams? 135 stig
  2. Þýskaland 101 stig
  3. Tyrkland 100 stig
  4. Frakkland 93 stig
  5. Ítalía 90 stig (óvenju lágt ár hjá þeim)
  6. Spánn 60 stig
  7. Bretland 58 stig
  8. Úkraína 34 stig
  9. Búlgaría 31 stig
  10. Ísland 30 stig
  11. Hvíta Rússland 24 stig
  12. Slóvakía 19 stig
  13. Pólland 18 stig
  14. Jöfn í 14 sæti Ísrael, Tékkland, Belgía, Eistland, Sviss, Slóvenía
    Jöfn í 20 sæti Svíþjóð, Holland, Danmörk, Rúmenía
    Hægt er að sjá heildar listann á vefsíðu World Archery Europe

Niðurstöður Íslenskra keppenda í Evrópubikarmótaröð ungmenna:

Það eru þó nokkrir Íslenskir keppendur sem stóðu sig vel í Evrópubikarmótaröðinni utan Lóu sem var eina sem vann til verðlauna og tók titilinn s.s. Magnús Darri, Þórdís Unnur og Ragnar Smári o.fl. Mögulegt er að sjá allar niðurstöður allra Íslenskra keppenda í Evrópubikarmótaröð ungmenna hér fyrir neðan.

  • Berbogi U21 kvenna
    • 1 sæti – Lóa Margrét Hauksdóttir
  • Berbogi U21 karla
    • 4 sæti – Baldur Freyr Árnason
    • 5 sæti – Ragnar Smári Jónasson
  • Sveigbogi U21 karla
    • 84 sæti – Baldur Freyr Árnason
  • Trissubogi U18 kvenna
    • 11 sæti – Elísabet Fjóla Björnsdóttir
    • 12 sæti – Sóldís Inga Gunnarsdóttir
    • 13 sæti – Eydís Elide Sartori –
  • Trissubogi U18 karla
    • 10 sæti – Magnús Darri Markússon
    • 32 sæti – Bergur Freyr Geirsson
    • 33 sæti – Henry Snæbjörn Johnston
  • Trissubogi U21 kvenna
    • 15 sæti – Þórdís Unnur Bjarkadóttir
  • Trissubogi U21 karla
    • 13 sæti – Ragnar Smári Jónasson
    • 37 sæti – Ísar Logi Þorsteinsson
    • 38 sæti – Natan Eir Skov Jenssen

Evrópubikarmótaröð ungmenna samanstendur af tveim mótum á hverju ári. Á sléttum árum er það Evrópubikarmót ungmenna og Evrópumeistaramót ungmenna, á odda árum eru það tvö Evrópubikarmót ungmenna.

Í einstaklingskeppni Evrópubikarmótaraðar ungmenna eru skor keppenda í undankeppni beggja móta lögð saman og sá keppandi sem skoraði samanlagt hæst í mótaröðinni hreppir titilinn „Evrópubikarmeistari“ og telst jafngildi Evrópumeistaratitils en á öðrum forsendum. Topp 3 fá því sömu medalíu frá World Archery Europe og fæst fyrir að vinna EM, enda í báðum tilfellum official titlar sem Evrópusambandið veitir.

Í þjóða keppni Evrópubikarmótaraðar ungmenna eru gefin verðlaun til efstu þriggja þjóða sem eru byggð á heildar niðurstöðum allra liða þeirra í öllum keppnisgreinum og öllum aldursflokkum á báðum Evrópubikarmótum í Evrópubikarmótaröð ungmenna á tímabilinu.

Fyrirkomulagið á Evrópubikarmótaröð ungmenna er í raun ekki ósvipað og í Bikarmótaröðum BFSÍ innandyra og utandyra og í Formúlunni. Það er sigurvegari fyrir hvert mót (eða stage) og svo er sigurvegari fyrir mótaröðina í heild sinni.

Allavega ánægjuleg niðurstaða. Áfram Ísland!!!