You are currently viewing Lóa braut 8 ára sigurröð Íslandsmeistaratitla Guðbjargar, Helgi tók 2 titla og Akureyringar taka félagsliðatitilinn á ÍM í berboga utandyra 2026

Lóa braut 8 ára sigurröð Íslandsmeistaratitla Guðbjargar, Helgi tók 2 titla og Akureyringar taka félagsliðatitilinn á ÍM í berboga utandyra 2026

Íslandsmeistaramótið utandyra 2026 í Berboga meistaraflokki var haldið í Fagralundi í Kópavogi laugardaginn 20 júní síðastliðinn.

Veður aðstæður á mótinu voru óvenju frábærar. Bæði var gott skjól í kringum svæðið og veðurguðirnir voru í góðu skapi og gáfu keppendum sól og blíðu meiri hluta mótsins, nema í úrslitaleikjunum þar sem að vindurinn byrjaði að hrella keppendur. Það er ólíkt flestum ÍM síðasta áratug þar sem oftar en ekki hefur verið gul eða appelsínugul veðurviðvörun akkúrat þá helgi sem Íslandsmeistaramótin í meistaraflokki hafa verið haldin.

Lóa Margrét Hauksdóttir úr Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi braut 8 ára sigurröð Guðbjargar Reynisdóttur í Bogfimifélaginu Hróa Hetti í berboga kvenna þegar að Lóa vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í meistaraflokki á sínum íþróttaferli 6-2 í úrlitaleiknum gegn Guðbjörgu. Þetta var lengsta óbrotna sigurröð Íslandsmeistaratitla í sögu íþróttarinnar.

Guðbjörg hefur reglubundið komist í topp 8 á Evrópumeistaramótum frá árinu 2019 og er því ekkert lamb að leika sér við. En Lóa vann Evrópubikarmót U21 í Búlgaríu í byrjun júní á þessu ári í úrslita leik gegn Evrópumeistara U21 Dara Maria Valova 6-0 og er því á mikilli uppleið í greininni. Bronsið á ÍM berboga kvenna tók Heba Róbertsdóttir úr BFB sem vann bronsið á EM U21 2025. Samkeppni í berboga kvenna hefur aukist gífurlega á síðustu árum og margar ungar sterkar stelpur að koma inn, sem eru allar að ná góðum árangri alþjóðlega. Sem munu gera Guðbjörgu erfitt fyrir að halda yfirburðum í greininni og gera framtíðar kynslóðum gífurlega erfitt að bæta 8 ára sigurröð Guðbjargar utandyra.

Helgi Már Hafþórsson úr Íþróttafélaginu Akri vann bæði Íslandsmeistaratitil karla og Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni á ÍM, í báðum tilfellum gegn liðsfélaga sínum Izaar Arnar Þorsteinsson. Izaar var í báðum tilfellum að verja titlana frá árinu 2025 þegar að Izaar vann titlana í fyrsta sinn af Gumma Guðjónssyni BFB. Titlarnir hafa gengið milli manna, en Helgi er mjög öflugur keppandi sem hefur verið á mikilli uppleið og ekki ólíklegt að hann muni ná að verja titlana sína árið 2027.

Gífurlega spennandi úrslit voru í úrslitaleik berboga félagsliðakeppni þar sem að Kópavogsmenn í BF Boganum mættu Akureyringum í ÍF Akur í gull úrslitum. Boginn byrjaði 2-0 yfir og Akur jafnaði 2-2, liðin jöfnuðu svo umferð 3 og 4 og leiknum lauk því í jafntefli 4-4. Því þurfti bráðabana til að ákvarða hvort liðið myndi hreppa Íslandsmeistaratitil félagsliða. Þar tóku Akureyringar sigurinn með minnsta mögulega muni 24-23 og tóku því sigurinn og titilinn heim á Akureyri. En Kópavogsmenn unnu félagsliða titilinn 2024 og 2025.

Sigurvegarar ÍM Berboga utandyra 2026

  • Íslandsmeistari berboga óháð kyni – Helgi Már Hafþórsson – ÍF Akur Akureyri
    • Silfur Izaar Arnar Þorsteinsson ÍFA
    • Brons Lóa Margrét Hauksdóttir BFB
  • Íslandsmeistari berboga kvenna – Lóa Margrét Hauksdóttir – BF Boginn Kópavogur
    • Silfur Guðbjörg Reynisdóttir BFHH
    • Brons Heba Róbertsdóttir BFB
  • Íslandsmeistari berboga karla – Helgi Már Hafþórsson – ÍF Akur Akureyri
    • Silfur Izaar Arnar Þorsteinsson ÍFA
    • Brons Gummi Guðjónsson BFB
  • Íslandsmeistari berboga félagsliða – Lið Íþróttafélagsins Akur á Akureyri
    • Liðsmenn
      • Izaar Arnar Þorsteinsson
      • Helgi Már Hafþórsson
      • Heike Viktoría Kristínardóttir

Íslandsmet og markverð skor á ÍM26 í berboga utandyra:

  • Íþróttafélagið Akur Akureyri – Íslandsmet Berboga félagsliðakeppni meistaraflokkur 1607 stig – Metið var áður 1570 stig sem Akur átti frá 2025
    • Liðsmenn
      • Heike Viktoría Kristínardóttir
      • Helgi Már Hafþórsson
      • Izaar Arnar Þorsteinsson
    • BF Boginn var hart á hælum ÍF Akur í undankeppni með 1568 stig sem er aðeins 2 stigum frá eldra Íslandsmeti, en metið helst á Akureyri.
  • Lóa Margrét Hauksdóttir BFB 522 stig var aðeins 6 stigum frá Íslandsmeti U21 og Guðbjörg Reynisdóttir BFHH 523 sem voru báðar innan við 10 stigum frá Íslandsmetinu í meistaraflokki kvenna sem er 531 stig.

Um Íslandsmeistaramótið utandyra í bogfimi í heild sinni í öllum greinum um helgina.

Skráningar á Íslandsmótum hafa ekki verið hærri síðan fyrir kórónuveirufaraldurinn og ÍM núna var aðeins 6 skráningum frá því að jafna hæsta fjölda keppenda á ÍM utandyra til dags.

Sýnt var beint frá úrslitaleikjum ÍM á Archery TV Iceland Youtube rásinni sem er hægt að finna hér

Niðurstöður er hægt að finna í skorskráningarkerfinu á vefsíðunni ianseo.net https://www.ianseo.net/Details.php?toId=28303

Myndir er hægt að finna á Smugmug BFSÍ hér https://bogfimi.smugmug.com/

Í raun er um að ræða fjögur Íslandsmeistaramót sem haldin eru sömu helgi. Þessi frétt fjallar aðeins um eitt af þeim.

  • ÍM Berboga á laugardegi
  • ÍM Trissuboga á laugardegi
  • ÍM Sveigboga á sunnudegi
  • ÍM Langboga á sunnudegi

Mögulegt er að finna fréttir um hvert Íslandsmeistaramót í sér fréttagrein á heimsíðu BFSÍ bogfimi.is og fréttir um einstaka sigurvegara og einstaklings árangur á archery.is bogfimifréttavefnum á næstu dögum þegar að Gummi hefur haft tíma til að skrifa fréttirnar 😉

Á ÍM í hverri grein er keppt um fjóra Íslandsmeistaratitla

  • Einstaklingstitil karla (þeir sem skráðir eru karlar í þjóðskrá)
  • Einstaklingstitil kvenna (þeir sem skráðir eru konur í þjóðskrá)
  • Einstaklingstitil óháð kyni (allir Íslendingar óháð kynskráningu í þjóðskrá. Karlar, konur, kynsegin, allir. Titli sem BFSÍ bætti við árið 2023 bæði til að skapa grundvöll fyrir kynsegin/annað fólk í þjóðskrá til að geta keppt um titil og búa til formlegt umhverfi þar sem konur og karlar gætu keppt gegn hvert öðru)
  • Félagsliðatitill (3 manna félagslið óháð kyni)

Keppnisdagarnir eru langir og oftast um 12 tímar fyrir keppendur (08:00-20:00) og mun lengri fyrir mótastaffið (á sunnudegin var það frá 07:00-02:00 fyrir sumt staffið, farið að nálgast 24 tíma daga).

Líklegt er að 2027 verði ÍM utandyra í meistaraflokki skipt niður þannig að hver grein verði á sér degi með sambærilegu fyrirkomulagi og þegar er gert á ÍM innandyra. M.a. til að stytta keppnisdaginn fyrir keppendur, minnka álagið á mótastarfsfólk, gera það jafnvel kleift fyrir marga keppendur utan af landi að geta tekið morgunflug (eða keyrt), klárað allt mótið og tekið kvöldflug (eða keyrt) heim eftir að mótinu lýkur og því spara sér gistikostnað. Einnig til að gera mótin skiljanlegri út á við. Þá er einn Íslandsmeistari óháð kyni, karla, kvenna, félagsliða á hverjum degi sem auðveldar fréttaflutning og tryggir að árangur hvers aðila hverfi ekki í gífurlegan fjölda niðurstaða sem koma inn samtímis.

Líklegt er þá að ÍM í berboga (á laugardegi) og ÍM í langboga (á sunnudegi) verði haldið á sama tíma og World Cup þar sem ekki er keppt í þeim greinum á World Cup. ÍM í trissuboga (á laugardegi) og ÍM í sveigboga (á sunnudegi) væri þá haldið á þeirri helgi sem hentar svo að það stangist ekki á við landsliðsverkefni sem okkar besta fólk gæti verið að keppa í, svo að okkar bestu missi ekki færi á því að verða Íslandsmeistarar.

Einnig er líklegt að þróun Íslandsmeistaramóta í Víðavangsbogfimi verði haldið áfram, þar sem almennur áhugi á Íslandsmeistaramótum í greininni virðist vera að aukast. Lítill hópur Afreksfólks í þeirri íþróttagrein hefur náð góðum árangri alþjóðlega og Ísland vann meðal annars til sinna fyrstu verðlauna á EM í víðavangsbogfimi í Póllandi 2025.

Næst á dagskrá hjá BFSÍ er fyrsta Íslandsbikarmót í Bikarmótaröð BFSÍ 27 júní og svo Norðurlandameistaramót ungmenna 1-6 júlí. Við óskum öllum keppendum til hamingju með árangurinn á ÍM, þökkum starfsfólki mótsins og vonumst eftir góðri uppskeru verðlauna á NM ungmenna 😊