You are currently viewing Ragnar Smári næstum með brons á heimsbikarmóti U21. Sló út ríkjandi Evrópumeistara og næstum líka ríkjandi heimsmeistara

Ragnar Smári næstum með brons á heimsbikarmóti U21. Sló út ríkjandi Evrópumeistara og næstum líka ríkjandi heimsmeistara

Íslandi átti 3 keppendur á öðru Heimsbikarmóti innandyra á tímabilinu (Indoor World Series Stage 2), sem fór fram í Strassen í Lúxemborg 20-22 nóvember 2026

Ragnar Smári Jónasson – Stutt samantekt

  • Hvar: Heimsbikarmót 2 Strassen Lúxemborg (World Series GT Open)
  • Hver: Ragnar Smári Jónasson – BF Boginn Kópavogi
  • Í hverju: Trissuboga U21 karla
  • Gengi í undankeppni: 12 sæti í undankeppni með 564 stig (Topp 16 vinna þátttökurétt á mótið)
  • Gengi í útsláttarleikjum: Vann 16 manna úrslit 148-145, vann Evrópumeistarann í 8 manna úrslitum 146-145, tapaði í undanúrslitum fyrir heimsmeistaranum í síðustu umferðinni 147-145 og tapaði brons leiknum 147-142.
  • Loka niðurstaða: 4 sæti
Screenshot

Þórdís Unnur Bjarkadóttir – Stutt samantekt

  • Hvar: Heimsbikarmót 2 Strassen Lúxemborg (World Series GT Open)
  • Hver: Þórdís Unnur Bjarkadóttir – BF Boginn Kópavogi
  • Í hverju: Trissuboga U21 kvenna
  • Gengi í undankeppni: 8 sæti í undankeppni með 577 stig (Topp 16 vinna þátttökurétt á mótið)
  • Gengi í útsláttarleikjum: Slegin út í 16 manna úrslitum 141-149 af Giorgiu Montaldi frá Ítalíu
  • Loka niðurstaða: 9 sæti
Screenshot

Valgerður E. Hjaltested – Stutt samantekt

  • Hvar: Heimsbikarmót 2 Strassen Lúxemborg (World Series GT Open)
  • Hver: Valgerður Einarsdóttir Hjaltested – BF Boginn Kópavogi
  • Í hverju: Sveigboga kvenna meistaraflokki
  • Gengi í undankeppni: 27 sæti í undankeppni með 551 stig (Topp 32 vinna þátttökurétt á mótið)
  • Gengi í útsláttarleikjum: Slegin út í 32 manna úrslitum 6-0 af nr.1 í heiminum Casey Kaufhold frá Bandaríkjunum.
  • Loka niðurstaða: 30 sæti

Mögulegt er að finna fréttagreinar um hvern og einn keppanda fyrir sig á archery.is fréttavefnum. En þar sem að Ragnar skaraði klárlega mest frammúr af Íslendingum á þessu heimsbikarmóti þá látum við ítarlegri umfjöllun fylgja með um hans árangur hér fyrir neðan.

Undankeppni

Í undankeppni (18m) var Ragnar ekki að skjóta sitt besta og allar örvarnar voru að lenda rétt fyrir neðan tíuna meirihluta undankeppninnar. Ragnar endaði í 12 sæti í undankeppninni með 564 stig, en aðeins topp 16 héldu áfram í útsláttarkeppni á heimsbikarmótinu.

Útsláttarkeppni

Ragnar náði að koma sér á strik í útsláttarkeppninni.

Í 16 manna úrslitum mætti Ragnar Belganum Bernd Snoeks sem var í 5 sæti undankeppni með 588 stig. Ragnar skaut gífurlega vel og jafnaði Íslandsmet U21 og í meistaraflokki með 148 stig í leiknum (30-29-30-30-29), á móti 145 stigum frá Belganum (28-29-29-30-29). Ragnar vann því leikinn og hélt áfram í 8 manna úrslit.

Screenshot

Í 8 manna úrslitum mætti Ragnar ríkjandi Evrópumeistara U21 og silfurverðlaunahafa HM, Noah Nuber frá Þýskalandi. Leikurinn milli þeirra var mjög spennandi, Ragnar byrjaði yfir 30-29 í fyrstu umferð, Noah snéri forskotinu við og leiddi eftir aðra umferð 59-58. Strákarnir jöfnuðu svo þriðju og fjórðu umferð og Evrópumeistarinn hélt því 1 stigs forskotinu 117-116 fyrir lokaumferðina. Þar náði Ragnar fullkomnu skori 30 á móti 28 frá Evrópumeistaranum Noah og Ragnar snéri því leiknum við í 146-145 sigur gegn Evrópumeistaranum. Ragnar hélt því áfram í undanúrslit.

Í undanúrslitum mætti Ragnar ríkjandi heimsmeistara ungmenna Simon Moritz frá Þýskalandi. Leikurinn var gífurlega spennandi. Strákarnir jöfnuðu fyrstu umferð 29-29, en heimsmeistarinn náði eins stigs forystu í annarri umferð 59-58 og náði að auka forskotið um annað stig í þriðju umferð 89-87 og það leit ekki vel út fyrir Ragnar. En í fjórðu lotu náði Ragnar að jafna leikinn með fullkominni 30 umferð á móti 28 frá heimsmeistaranum. Staðan 117-117, aðeins ein umferð eftir af leiknum og útlit fyrir að Ragnar gæti slegið út Evrópumeistarann og heimsmeistarann back2back. Þar náði heimsmeistarinn þó sigrinum 30-28 og loka niðurstöður leiksins 147-145. Ragnar hélt því í brons úrslitaleikinn og Simon í gull leikinn á heimsbikarmótinu.

 

Í brons úrslitum mætti Ragnar hinum Danska Sebastian Flummer. Þar átti Ragnar sinn versta leik 142 stig (28-29-28-28-29) á móti 147 stigum frá þeim Danska (30-29-29-29-30) og sá Danski tók því öruggann sigur, og bronsið á heimsbikarmótinu. Ragnar endaði því í 4 sæti á heimsbikarmótinu, sem er samt sem áður frábær niðurstaða.

Valgerður og Þórdís stóðu sig vel á heimsbikarmótinu en þetta var frábærlega gert hjá Ragnari.