Fjórir Íslenskir keppendur eru að keppa á Veronicas Cup World Ranking Event í Kamnik Slóveníu vikuna 26-31 maí og gekk nokkuð vel hjá þeim.
Íslensku keppendurnir hafa lokið keppni, þar sem að úrslitaleikir U21 voru í dag. En úrslitaleikir í meistaraflokki verða haldnir á morgun í beinu streymi.
Þórdís Unnur Bjarkadóttir vann brons í trissuboga kvenna U21 í leik á móti stelpu frá Tyrklandi.
Ragnar Smári Jónasson í trissugboga karla U21 var sleginn út í 8 manna úrslitum í mjög spennandi leik sem endaði í jafntefli, en Ragnar tapaði bráðabananum með einu stigi og endaði í 5 sæti.
Valgerður E. Hjaltested endaði akkúrat í miðju í lokaniðurstöðum sveigboga kvenna á mótinu í 26 sæti af 52 keppendum, eftir sigur í fyrsta leik gegn stelpu frá Sviss en Vala var svo slegin út í 32 manna úrslitum gegn Ungverskri stelpu.
Ewa Ploszaj endaði í 33 sæti trissuboga kvenna eftir að vera slegin út af keppanda frá Sameinuðu furstadæmunum í 48 manna leikjum.
Heilt á litið fínt hjá okkar fólki á mótinu. En Ísland skipaði engum liðum á mótinu, bara einstaklingum.
Næsta mót á dagskrá hjá Bogfimisambandi Íslands er Evrópubikarmót ungmenna í Ruse í Búlgaríu 1-6 júní. Valgerður fylgir Ragnari og Þórdísi af Veronicas Cup til Búlgaríu og þar hitta þau restina af hópnum (Gumma, Baldur, Lóu, Sóldísi, Eydísi, Elísabet Fjólu og Magnús) sem eru að fljúga út frá Íslandi í kvöld.
Áfram Ísland 😆












