You are currently viewing Íslandsmót U18 góð mæting og spennandi úrslit

Íslandsmót U18 góð mæting og spennandi úrslit

Íslandsmót U18 innandyra var haldið í Bogfimisetrinu í dag sunnudaginn 03.05.2026. Um helmingur aðildarfélaga BFSÍ átti keppendur á mótinu og mótið gekk almennt vel.

Samantekt af því helsta á ÍM U18 innandyra:

Í berboga voru spennandi úrslita leikir um kvenna titilinn og unisex titilinn þar sem að Auður Alma Viktorsdóttir úr Skotíþróttafélagi Ísafjarðar vann báða titlana eftir jafntefli í báðum úrslitaleikjum 5-5 og sigraði svo í bráðabana í báðum leikjum. Í báðum tilfellum gegn sama andstæðingi Ragnheiði Íris Klein BFHH. Án vafa mest spennandi úrslitaleikir mótsins, enda ekki oft sem það þarf að beita bráðabana til að ákvarða hver tekur Íslandsmeistaratitilinn. Dagur Ómarsson BFHH tók karla titilinn, BF Hrói Höttur í Hafnarfirði tók félagsliðatitilinn.

Í trissuboga sýndi BF Boginn í Kópavogi gífurlega yfirburði og tók alla titlana og öll verðlaunin (gull, silfur og brons) í öllum kynjum, einstaklings, liða… bara öllu trissuboga tengdu. Magnús Darri Markússon BFB skaraði þar mest framúr og tók bæði karla og unisex titlana og sló Íslandsmetið í útsláttaleik U18 í næstum öllum sínum leikjum. Sóldís Inga Gunnarsdóttir BFB tók kvenna titilinn og saman tóku Magnús og Sóldís félagsliðatitilinn fyrir BFB, sterkir keppendur sem hafa unnið til verðlauna á EM og Evrópubikarmótum ungmenna fyrir Íslands hönd. Elísabet Fjóla og Bergur Freyr BFB komu sterk inn og settu félagsliðamet í útsláttarleik í undanúrslitum með 1 stigi hærra skori en Magnús+Sóldís lið BFB, sem er vel af sér vikið miðað við styrk liðsins sem þau toppuðu.

Í langboga var Þórður Emil Söruson BFB ekki mjög langt frá Íslandsmetinu, sem hann á sjálfur og tryggði sér báða titlana í karla og unisex sem voru í boði á mótinu.

Í sveigboga voru Akureyringar úr ÍF Akur fremstir á borði og tóku 3 af 4 titlum í keppnisgreinni. Elías Áki Hjaltasson BFB tók titilinn í karla. Eva Kristín Sólmundsdóttir ÍFA skaraði fram úr og tók alla hina 3 titlana. Titilinn í kvenna 6-2, titilinn í unisex 6-4 og félagsliða titlinn 6-0 fyrir Akureyri ásamt liðsfélaga sínum Emmu Rakel Björnsdóttir, efnilegar stúlkur þar á ferð. Helga Bjarney Ársælsdóttir úr Skotfélagi Austurlands á Egilstöðum vakti athygli fyrir að gefast ekki upp þrátt fyrir mótlæti og náði bronsi í bæði kvenna og unisex. Þrátt fyrir búnaðarbilun þar sem Helga fékk lánsboga til að keppa með á meðan gert var við hennar boga og einnig medical pásu vegna blóðnasa. Það vantar ekki þrautseigjuna þar á bæ og aðdáunarvert að gefast aldrei upp og ná sér aftur á strik þrátt fyrir öll ljón sem geta orðið í vegi manns.

Glæsilega gert hjá öllum okkar krökkum í árangri, þrauseigju, ánægju og samvinnu. Allir keppendur mótsins eiga sér mikla framtíð í íþróttinni þó að við fjöllum aðeins um hluta þeirra.

Íslandsmeistarar U18 urðu:

  • Sveigboga U18 (óháð kyni) – Eva Kristín Sólmundsdóttir ÍFA
  • Sveigboga karla U18 – Elías Áki Hjaltason BFB
  • Sveigboga kvenna U18 – Eva Kristín Sólmundsdóttir ÍFA
  • Sveigboga félagsliðakeppni U18 – ÍF Akur
    • Eva Kristín Sólmundsdóttir
    • Emma Rakel Björnsdóttir
  • Trissuboga U18 (óháð kyni) – Magnús Darri Markússon BFB
  • Trissuboga karla U18 – Magnús Darri Markússon BFB
  • Trissuboga kvenna U18 – Sóldís Inga Gunnarsdóttir BFB
  • Trissuboga félagsliðakeppni U18 – BF Boginn
    • Magnús Darri Markússon
    • Sóldís Inga Gunnarsdóttir
  • Berboga U18 (óháð kyni) – Auður Alma Viktorsdóttir SFÍ
  • Berboga karla U18 – Dagur Ómarsson BFHH
  • Berboga kvenna U18 – Auður Alma Viktorsdóttir SFÍ
  • Berboga félagsliðakeppni U18 – BF Hrói Höttur
    • Dagur Ómarsson
    • Ragnheiður Íris Klein
  • Langboga U18 (óháð kyni) – Þórður Emil Söruson BFB
  • Langboga karla U18 – Þórður Emil Söruson BFB

Íslandsmet sem slegin voru á ÍM U18 (eða nálægt metinu):

  • Magnús Darri Markússon BFB – Trissuboga U18 útsláttarleikur – 146 stig (metið var 144 stig)
    • Magnús sló metið í næstu öllum sínum 5 útsláttarleikjum einstaklinga á ÍM U18, 145-143-144-146-144
  • BF Boginn – Trissuboga félagslið útsláttarleikur – 152 stig (metið er nýtt)
    • Elísabet Fjóla Björnsdóttir
    • Bergur Freyr Geirsson
  • Sóldís Inga Gunnarsdóttir BFB – Jafnaði trissuboga U18 útsláttarleiksmetið 142 vs 142
  • BF Boginn – Trissuboga lið U18 undankeppni Magnús og Sóldís – 4 stigum frá metinu 1144 vs 1148
  • Magnús Darri 5 stigum frá metinu í trissuboga undankeppni U18 582 vs 587

Almennt um Íslandsmót ungmenna:

Á Íslandsmótum ungmenna er keppt um fjóra Íslandsmeistaratitla.

  1. Karla titil Einstaklinga
  2. Kvenna titil Einstaklinga
  3. Unisex titil Einstaklinga (allir Íslendingar, óháð kyni, karlar, konur, kynsegin/annað etc.)
  4. Félagsliða titil (allir Íslendingar óháð kyni, skipt eftir félagi í 2 manna lið)

Keppt er fjórum keppnisgreinum:

  • Trissuboga
  • Sveigboga
  • Berboga
  • Langboga/hefðbundnum-bogum

Livestream úrslitaleikir: https://www.youtube.com/@ArcheryTVIceland/streams

Myndir: https://bogfimi.smugmug.com/2026-%C3%8DM-U18-inni

Heildar niðurstöður: https://www.ianseo.net/Details.php?toId=25870

ÍM U18 innandyra var síðasta Íslandsmót innandyra á árinu 2026, en skráning á Íslandsmótin utandyra opnar bráðlega.