Íslandsmót U16 innandyra var haldið í Bogfimisetrinu í dag laugardaginn 02.05.2026. Um helmingur aðildarfélaga BFSÍ átti keppendur á mótinu og mótið gekk almennt vel.
Tíðinda mest af mótinu var m.a.:
Magnús Darri Markússon BFB skaut fyrsta fullkomna skor í sögu Íslands með 150 stig!!! 😮 Þetta var síðasta ár Magnúsar í U16 og þar sem hann er fyrstur til að skora fullkomið skor (í U16 og yfirhöfuð í íþróttinni) mun hann því eiga U16 metið að eilífu. Þar sem að til þess að bæta met þarf skorið að vera einu stigi hærra en eldra met. Framtíðar kynslóðir geta jafnað metið, en enginn mun geta bætt það og tekið það af Magnúsi.
Spennandi úrslit voru í berboga U16 (óháð kyni) þar sem Óliver Aldar Felixsson BFB jafnaði leikinn 5-5 í undanúrslitum gegn Eygló Midgley BFHH og tók svo sigurinn í bráðabana 9-6. Óliver endurtók það svo í gull úrslitum með 5-5 jafntefli og tók sigurinn í bráðabana 9-8 gegn Kai Milo BFB. Allir í bráðabönum í berboganum 😆
Íslandsmeistarar U16 urðu:
- Langboga U16 (óháð kyni) – Þórður Emil Söruson BFB
- Langboga karla U16 – Þórður Emil Söruson BFB
- Langboga kvenna U16 – Vala Lovísa Andersen Daníelsdóttir LFF
- Sveigboga kvenna U16 – Amalía Berndsen Ágústsdóttir BFB
- Sveigboga U16 (óháð kyni) – Amalía Berndsen Ágústsdóttir BFB+
- Trissuboga U16 (óháð kyni) – Magnús Darri Markússon BFB
- Trissuboga karla U16 – Magnús Darri Markússon BFB
- Trissuboga kvenna U16 – Indíana Laufey Arnarsdóttir – BFB
- Trissuboga félagsliðakeppni U16 – BF Boginn
- Magnús Darri Markússon
- Birkir Björnsson
- Berboga U16 (óháð kyni) – Óliver Aldar Felixson BFB
- Berboga U16 karla – Óliver Aldar Felixson BFB
- Berboga U16 kvenna – Eygló Midgley – BFHH
- Berboga félagsliðakeppni U16 – BF Boginn
- Kai Milo
- Óliver Aldar Felixson
Íslandsmet sem slegin voru á ÍM U16:
- Magnús Darri Markússon BFB – Trissuboga U16 útsláttarleikur – 150 stig fyrsta perfect skor á Íslandi (metið var 146 stig).
- Magnús skoraði 146, 149, 147 og 150 í sínum útsláttarleikjum og bætti því í raun Íslandsmetið sem hann átti (146) í öllum sínum leikjum á ÍM U16.
- Birkir Björnsson BFB – Trissuboga U16 útsláttarleikur – 148 stig (metið var 146 stig). En því miður sló Magnús það met betur á mótinu og tók því officially metið. Það dregur samt ekki úr árangri Birkirs þó að hann sé ekki „official“
- Magnús Darri Markússon BFB – Trissuboga U16 undankeppni – Jafnaði metið 591 stig (metið er 591 stig)
- BF Boginn – Berboga félagslið – 928 stig (metið var 905 stig áður)
- Kai Milo
- Óliver Aldar Felixson
- BF Boginn – Trissuboga félagslið undankeppni – 1163 stig (metið var 1135 stig áður)
- Magnús Darri Markússon
- Birkir Björnsson
- BF Boginn – Trissuboga félagslið útsláttarleikur – 155 stig (metið er nýtt)
- Magnús Darri Markússon
- Birkir Björnsson
Livestream úrslitaleikir: https://www.youtube.com/@ArcheryTVIceland/streams
Myndir: https://bogfimi.smugmug.com/2026-%C3%8DM-U16-inni
Heildar niðurstöður: https://www.ianseo.net/Details.php?toId=25869
Íslandsmót U18 innandyra verður haldið á morgun.





