Ísland skipaði 2 liðum og 6 einstaklingum til keppni á Evrópubikarmótinu – EB (European Grand Prix – EGP) í Antalya Tyrklandi í vikunni. Um 300 þátttakendur frá 36 þjóðum mættust og keppt var í trissuboga og sveigboga, bæði karla og kvenna.
Helst barst þar til tíðinda á Evrópubikarmótinu að Ragnar Smári Jónasson sló Íslandsmetið í bæði meistaraflokki og U21 flokki með 700 stig!!! sem er glæsilegt skor.
700 stig er einnig skorið sem þarf að ná til þess að fá hæstu árangursviðurkenningu heimssambandsins World Archery, fjólubláa markbogfimi pinnann. BFSÍ hefur þegar sótt um viðurkenninguna fyrir Ragnar til World Archery og áætlað að framkvæmdastjóri World Archery veiti viðurkenninguna í næstu viku.
Almennt eru færri en 10 nýjir íþróttamenn á heimsvísu sem ná þeim árangri ár hvert og sú viðurkenning er aðeins veitt einu sinni á ævi íþróttamanns. Samtals hafa 118 keppendur (bæði konur og karlar) hlotið viðurkenninguna frá framkvæmdastjóra World Archery frá því að hún var veitt fyrst (í rúmlega 30 ár sem viðurkenningin hefur verið veitt). Það er því engin vafi á því að Ragnar er mikið afreksefni og afreksmaður sem þarf að styðja við og sem við munum vafalaust sjá árangur frá í framtíðinni.
Evrópubikarmótið var fyrsta landsliðsverkefni Ragnars í meistaraflokki (A/B). Ragnar er tvítugur og hefur því mest einbeitt sér að ungmennaflokkum hingað til. Til að ná öllum árangri sem mögulegt er þar, enda er maður ekki ungur að eilífu og Ragnar getur keppt í meistaraflokki það sem eftir er af ævinni.
Ragnar er á síðasta ári í U21 flokki (elsta ungmennaflokknum) og mun klára ungmenna feril sinn á EM U21 í júlí 2026 og fyrri hluta heimsbikarmótaröð U21 í haust 2026. Til samanburðar hefðu 700 stig í undankeppni nettað Ragnari 2 sæti EM U21 2024. Einnig er gaman að geta þess að Þórdís sem er á fyrsta ári í U21 flokki (18 ára) náði 670 í skori sem er einnig frábær frammistaða og hefði nettað henni 3 sæti í undankeppni EM U21 2024. En árangur Ragnars var slíkur að árangur Þórdísar á mótinu féll smá í skuggann. En vafalaust tvö ungmenni sem eru að koma upp í meistaraflokk á næstu árum sem er mjög líklegt að muni eiga árangursríkann íþróttaferil fyrir Íslands hönd.
Ragnar hefur á ungmennaferlinum hingað til meðal annars:
- Unnið tvö brons verðlaun á Evrópumeistaramótum U21 í víðavangsbogfimi
- Unnið tvö gull og eitt brons á Evrópumeistarmótum U21 innandyra
- Unnið ein brons verðlaun í Evrópubikarmótaröð ungmenna utandyra
- Unnið sex silfur og eitt brons á Norðurlandameistaramótum ungmenna
- Unnið 23 Íslandsmeistaratitla ungmenna
- Slegið 36 Íslandsmet ungmenna
- Slegið 16 landsliðsmet ungmenna
- Slegið 1 Norðurlandamet ungmenna
Ásamt því er Ragnar búinn að ná góðu gengi innanlands í meistaraflokki þrátt fyrir að vera en ungmenni og Ragnar er að taka sín fyrstu skref í meistaraflokki alþjóðlega. Hann hefur m.a.:
- Slegið 10 Íslandsmet í meistaraflokki
- Unnið 2 Bikarmeistaratitla í meistaraflokki
- Unnið 6 Íslandsmeistaratitla í meistaraflokki
Ragnar (700) og Þórdís (670) skoruðu góð skor í undankeppni trissuboga á Evrópubikarmótinu (EB) og enduðu í nægilega háum sætum til að sitja hjá fyrstu leiki mótsins og halda beint í 32 manna úrslit. En þar áttu þau bæði leik undir meðaltali og voru slegin út í báðum tilfellum gegn Ítölskum keppendum. Það er ekki alltaf hægt að skora jafnt eða yfir meðaltali, stundum þarf það að vera undir meðaltali, þess vegna kallast það meðaltal.
Ragnar og Þórdís voru slegin út í 16 liða úrslitum í blandaðri liðakeppni gegn Lúxemborg í leik sem var 50/50 hver myndi vinna þar sem að liðin voru nánast jöfn í undankepppni EB. Tapið var sárt 153-151 þar sem Ísland átti 3 örvar á línu sem allar voru dæmdar sem lægra skorið og leikurinn hefði auðveldlega geta farið í vil Íslands. En þannig er það bara dagslukkan/formið, skjóta bara betri tíur í framtíðinni svo að enginn vafi sé á hvað skorið er 😉. Lúxemborg náði að vinna sig upp í gull úrslitaleik EB með því að vinna svo annað hæsta liðið í undankeppni Þýskaland í bráðabana 152-152 (19-18) í 8 liða úrslitum og svo Ítalíu 152-151 í undanúrslitum. Þau keppa því á móti Tyrklandi um gull úrslitum. Alltaf gaman að sjá smáþjóða frændur ná árangri, þó að við hefðum að sjálfsögðu frekar viljað sjá Ísland vinna leikinn gegn þeim og ná í gull úrslitin frekar.
Ragnar og Þórdís slógu einnig Íslandsmet U21 í blandaðri liðakeppni (mixed team) bæði í undankeppni og úrslitaleikjum, ásamt því að slá meistaraflokks metið í blandaðri liðakeppni í undankeppni meistaraflokks og jafna Íslandsmetið í úrslitaleikjum meistaraflokks. Semsagt öll Íslandsmetin í blandaðri liðakeppni slegin eða jöfnuð, gífurlega sterkt par þarna á ferðinni, sem eru bæði ung (Ragnar 20 ára og Þórdís 18 ára).
Miðað við frammistöðu Þórdísar og Ragnars þá er í raun ekki spurning um hvort að þau munu vinna til verðlauna í meistaraflokki á EM og EB heldur hvenær. En þau teljast bæði sem ungmenni enþá og einbeita sér því mest að ungmenna mótum. Trissuboga blandaðri liðakeppni verður einnig í fyrsta sinn á Ólympíuleikum 2028 og hefur verið á Evrópuleikum frá 2019, því vel líklegt að þau gætu unnið þátttökurétt fyrir Ísland á ÓL í framtíðinni og jafnvel fyrstu verðlaun Íslands á Evrópuleikum í náinni framtíð.
Ísland var ekki langt frá því að komast í gull/brons úrslitaleiki trissuboga kvenna, en stelpurnar okkar enduðu í 5 sæti eftir að vera slegnar út af Frakklandi í 8 liða úrslitum. Ísland leiddi leikinn í 8 liða úrslitum með þrem stigum 112-109 gegn Frakklandi í „hálfleik“ en stelpurnar okkar féllu á tíma að skjóta einni örinni í þriðju umferð og fengu því M (0 stig) fyrir þá ör. Það snéri leiknum við í 6 stiga forskot fyrir Frakklandi og setti stelpurnar út af laginu. En samt feiki vel gert hjá okkar stelpum gegn sterku liði Frakklands sem vann bronsið á EB
Eowyn stóð sig vel og náði að vinna sig upp í 32 manna úrslit EB og átti góðan leik i 32 manna úrslitum, en var slegin út 145-143 gegn Þýskri konu sem var í 2 sæti í undankeppni mótsins. Eowyn náði því hæsta sæti Íslendinga í úrslitum EB 18 sæti.
Marín var aðeins 11 stigum frá lágmarksskorum Evrópuleika og því ekki ólíkleg til að vinna þátttökurétt aftur á næstu Evrópuleika 2027. Í raun er Ísland með sterka keppendur í þremur af fjórum greinum Evrópuleikana og með slíkri vídd hægt að segja að það sé líklegt að Ísland vinni 1-3 þátttökurétti á Evrópuleikana 2027, eftir því hvernig dagslukkan/formið verður hjá okkar keppendum á EM í næsta mánuði og EB í mars 2027. En það sem gerist gerist og við bíðum bara og leyfum köttunum að koma til okkar frekar en að elta þá.
Heilt á litið gekk flott hjá okkar keppendum í undankeppni Evrópubikarmótsins, þó að úrslitaleikir Evrópubikarmótsins hefðu ekki endað okkur í vil að þessu sinni. En þetta var fyrsta utandyra mót 2026 og fyrsta mótið sem okkar keppendur voru að skjóta utandyra á lengri færum, enda veturinn lengri á Íslandi en flestum öðrum þjóðum og færri utandyramót á Íslandi en annar staðar í heiminum. Sérstaklega vegna vind og veðuraðstæðna í Íslandi sem draga skorin töluvert niður innanlands. Alltaf gott að muna að hvíldina líka og að njóta lífsins á milli.
Lokaniðurstöður Íslenskra keppenda og liða á Evrópubikarmótinu (EGP) og undankeppni Evrópubikarmótsins (EGP):
- Marín Aníta Hilmarsdóttir BFB – Sveigboga kvenna – 67 sæti í undankeppni EGP, 73 sætí í úrslitum EGP
- Valgerður E. Hjaltested BFB – Sveigboga kvenna – 73 sæti í undankeppni EGP, 72 sætí í úrslitum EGP
- Ragnar Smári Jónasson BFB – Trissuboga karla – 21 sæti í undankeppni EGP, 31 sætí í úrslitum EGP
- Eowyn Marie Mamalias BFB – Trissuboga kvenna – 31 sæti í undankeppni EGP, 18 sætí í úrslitum EGP
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB – Trissubogi kvenna – 27 sæti í undankeppni EGP, 25 sætí í úrslitum EGP
- Anna María Alfreðsdóttir ÍFA – Trissuboga kvenna – 34 sæti í undankeppni EGP, 33 sætí í úrslitum EGP
- Trissuboga kvenna landslið (Anna/Þórdís/Eowyn) – 5 sæti í undankeppni EGP, 5 sætí í úrslitum EGP
- Trissuboga blandað landslið (Þórdís/Ragnar) – 10 sæti í undankeppni, 10 sæti í úrslitum EGP
104 efstu einstaklingar og 24 lið halda áfram eftir undankeppni mótsins.
Íslandsmet sem slegin voru:
- Ragnar Smári Jónasson BFB – Íslandsmet trissuboga karla undankeppni meistaraflokkur – 700 stig, metið var áður 687 stig
- Ragnar Smári Jónasson BFB – Íslandsmet trissuboga karla U21 – 700 stig, metið var áður 687 stig
- Landsliðsmet undankeppni meistaraflokkur trissuboga blandað lið (1kk+1kvk) – 1370 stig, metið var áður 1339 stig frá árinu 2022
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB
- Ragnar Smári Jónasson BFB
- Landsliðsmet undankeppni U21 trissuboga blandað lið (1kk+1kvk) – 1370 stig, metið var áður 1322 stig frá árinu 2024
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB
- Ragnar Smári Jónasson BFB
- Jafnað landsliðsmet útsláttarkeppni meistaraflokkur trissuboga blandað lið (1kk+1kvk) – 151 stig , metið er 151 stig frá árinu 2017
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB
- Ragnar Smári Jónasson BFB
- Landsliðsmet undankeppni U21 trissuboga blandað lið (1kk+1kvk) – 151 stig, metið var áður 149 stig frá árinu 2024
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB
- Ragnar Smári Jónasson BFB
Evrópumeistaramótið verður haldið eftir mánuð á sama stað í Antalya í Tyrklandi og verður gaman að sjá hvernig okkar keppendum gengur þar.


















