Íslandsmeistaramótið utandyra 2026 í Ólympískum Trissuboga meistaraflokki var haldið í Fagralundi í Kópavogi laugardaginn 20 júní síðastliðinn.
Veður aðstæður á mótinu voru óvenju frábærar. Bæði var gott skjól í kringum svæðið og veðurguðirnir voru í góðu skapi og gáfu keppendum sól og blíðu meiri hluta mótsins, nema í úrslitaleikjunum þar sem að vindurinn byrjaði að hrella keppendur. Það er ólíkt flestum ÍM síðasta áratug þar sem oftar en ekki hefur verið gul eða appelsínugul veðurviðvörun akkúrat þá helgi sem Íslandsmeistaramótin í meistaraflokki hafa verið haldin.
Þórdís Unnur Bjarkadóttir 18 ára Garðbæjingur í Bogfimifélaginu Boganum hélt áfram sterkri frammistöðu og skaraði fram úr þegar hún varði Íslandsmeistaratitilinn sem hún vann í fyrsta sinn árið 2025. Þetta er fjórði Íslandsmeistaratitill Þórdísar í trissuboga kvenna í röð (innandyra 2025, 2026, utandyra 2025, 2026). Þórdís skoraði einnig hæsta skor allra keppenda óháð kyni í undankeppni ÍM með 673 stig, sem er yfir lágmarksskorviðmiði ÓL 2028.
Mjög óvænt úrslit voru í trissuboga karla þar sem að Hieu Quang Tran úr Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi tók Íslandsmeistaratitil karla á sínu fyrsta ÍM í úrslitaleik á móti hinum 15 ára Magnús Darra Markússyni úr sama félagi. Magnús Darri sló Íslandsmet U18 annað mótið í röð, en hann er nýbúinn að slá metið á Evrópubikarmóti ungmenna. Á meðan kepptu þeir sem voru taldir sigurstranglegastir í karla fyrir mótið um bronsið, Alfreð Birgisson úr ÍF Akri sem hefur unnið titilinn utandyra síðustu 3 ár í röð og Ragnar Smári Jónasson sem sló Íslandsmetið utandyra á Evrópubikarmóti í apríl og fyrsti Íslendingur til að skora 700 af 720 mögulegum og hreppa æðstu árangursviðurkenningu heimssambandsins World Archery. Ef einhver hefði spáð fyrir mótið að Hieu myndi vinna titilinn hefðu líklega flestir sagt að það væri ansi fjarstætt að það myndi gerast, en samkeppnin er mikil og allt getur gerst og Hieu stóð sig óvenju vel í útsláttarleikjum ÍM og átti sigurinn algerlega skilið.
Ragnar Smári Jónasson úr Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi vann Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni í fyrsta sinn í úrslitaleik 143-142 við Hieu Quang Tran úr sama félagi sem sló óvænt út Alfreð Birgisson ÍFA núverandi titil hafa í bráðabana í undanúrslitum. Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni mætti kalla þann erfiðasta til að vinna þar sem að maður þarf að vinna alla Íslendinga óháð kyni þeirra til að hreppa titilinn.
Kópavogsmenn í Bogfimifélaginu Boganum sigruðu einnig úrslita leikinn um Íslandsmeistaratitilinn í félagsliðakeppni örugglega 212-164, slóu Íslandsmet í útsláttarleik félagsliða (sem var 199 stig) og tryggðu sér því alla fjóra Íslandsmeistaratitlana á ÍM í trissuboga, sem er vel af sér vikið.
Sigurvegarar ÍM Trissuboga utandyra 2026
- Íslandsmeistari trissuboga óháð kyni – Ragnar Smári Jónasson – BF Boginn Kópavogi
- Silfur Hieu Quang Tran
- Brons Þórdís Unnur Bjarkadóttir
- Íslandsmeistari trissuboga kvenna – Þórdís Unnur Bjarkadóttir – BF Boginn Kópavogi
- Silfur Anna María Alfreðsdóttir ÍFA
- Brons Eowyn Marie Mamalias BFB
- Íslandsmeistari trissuboga karla – Hieu Quang Tran – BF Boginn Kópavogi
- Silfur Magnús Darri Markússon BFB
- Brons Alfreð Birgisson ÍFA
- Íslandsmeistari trissuboga félagsliða – Lið Bogfimifélagsins Bogans í Kópavogi
- Liðsmenn
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir
- Ragnar Smári Jónasson
- Magnús Darri Markússon
- Liðsmenn
Íslandsmet og markverð skor á ÍM26 í trissuboga utandyra:
- Magnús Darri Markússon BFB (15 ára) – Íslandsmet Trissuboga karla U18 666 stig.
- Magnús er ný búinn að slá Íslandsmetið með 651 stig á Evrópubikarmóti ungmenna í Búlgaríu í byrjun júní og því ekki búið að uppfæra Íslandsmetaskrá með metinu enþá (30 dagar), en þar á undan var metið 642 stig og var sett árið 2020. Rosalegt hopp í getustigi hjá þessum unga strák sem tók annað sæti í undankeppni ÍM í meistaraflokki og kom mörgum á óvart að taka næstum Íslandsmeistaratitilinn í meistaraflokki aðeins 15 ára gamall.
- Bogfimifélagið Boginn – Íslandsmet Trissuboga félagsliða undankeppni meistaraflokkur 2004 stig – Metið var áður 1967 stig frá 2024 og BFHH Hafnarfirði átti það met
- Liðsmenn
- Magnús Darri Markússon
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir
- Ragnar Smári Jónasson
- Liðsmenn
- Bogfimifélagið Boginn – Íslandsmet Trissuboga félagsliða útsláttarleikur meistaraflokkur 212 stig – Metið var áður 199 stig frá 2024 og BFHH Hafnarfirði átti það met
- Liðsmenn
- Magnús Darri Markússon
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir
- Ragnar Smári Jónasson
- Liðsmenn
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB (18 ára) skoraði 673 stig sem er 3 stigum yfir lágmarkskorum Ólympíuleika fyrir trissuboga konur og var einni hæsta skor allra keppenda á ÍM26 óháð kyni. En á ÓL er aðeins er keppt í parakeppni á ÓL í trissuboga, ekki í einstaklingskeppni og þar sem bæði Þórdís og Ragnar Smári Jónasson hafa náð lágmarksskorum á árinu 2026 gætu þau verið contenders fyrir mögulegt ÓL sæti 2028. En of snemmt að spá fyrir um það, en möguleikinn er til staðar.
- Alfreð Birgisson ÍFA var aðeins 5 stigum frá Íslandmeti 50+ karla með 672 stig en metið er 677 stig.
Um Íslandsmeistaramótið utandyra í bogfimi í heild sinni í öllum greinum um helgina.
Skráningar á Íslandsmótum hafa ekki verið hærri síðan fyrir kórónuveirufaraldurinn og ÍM núna var aðeins 6 skráningum frá því að jafna hæsta fjölda keppenda á ÍM utandyra til dags.
Sýnt var beint frá úrslitaleikjum ÍM á Archery TV Iceland Youtube rásinni sem er hægt að finna hér
Niðurstöður er hægt að finna í skorskráningarkerfinu á vefsíðunni ianseo.net https://www.ianseo.net/Details.php?toId=28303
Myndir er hægt að finna á Smugmug BFSÍ hér https://bogfimi.smugmug.com/
Í raun er um að ræða fjögur Íslandsmeistaramót sem haldin eru sömu helgi. Þessi frétt fjallar aðeins um eitt af þeim.
- ÍM Berboga á laugardegi
- ÍM Trissuboga á laugardegi
- ÍM Sveigboga á sunnudegi
- ÍM Langboga á sunnudegi
Mögulegt er að finna fréttir um hvert Íslandsmeistaramót í sér fréttagrein á heimsíðu BFSÍ bogfimi.is og fréttir um einstaka sigurvegara og einstaklings árangur á archery.is bogfimifréttavefnum á næstu dögum þegar að Gummi hefur haft tíma til að skrifa fréttirnar 😉
Á ÍM í hverri grein er keppt um fjóra Íslandsmeistaratitla
- Einstaklingstitil karla (þeir sem skráðir eru karlar í þjóðskrá)
- Einstaklingstitil kvenna (þeir sem skráðir eru konur í þjóðskrá)
- Einstaklingstitil óháð kyni (allir Íslendingar óháð kynskráningu í þjóðskrá. Karlar, konur, kynsegin, allir. Titli sem BFSÍ bætti við árið 2023 bæði til að skapa grundvöll fyrir kynsegin/annað fólk í þjóðskrá til að geta keppt um titil og búa til formlegt umhverfi þar sem konur og karlar gætu keppt gegn hvert öðru)
- Félagsliðatitill (3 manna félagslið óháð kyni)
Keppnisdagarnir eru langir og oftast um 12 tímar fyrir keppendur (08:00-20:00) og mun lengri fyrir mótastaffið (á sunnudegin var það frá 07:00-02:00 fyrir sumt staffið, farið að nálgast 24 tíma daga).
Líklegt er að 2027 verði ÍM utandyra í meistaraflokki skipt niður þannig að hver grein verði á sér degi með sambærilegu fyrirkomulagi og þegar er gert á ÍM innandyra. M.a. til að stytta keppnisdaginn fyrir keppendur, minnka álagið á mótastarfsfólk, gera það jafnvel kleift fyrir marga keppendur utan af landi að geta tekið morgunflug (eða keyrt), klárað allt mótið og tekið kvöldflug (eða keyrt) heim eftir að mótinu lýkur og því spara sér gistikostnað. Einnig til að gera mótin skiljanlegri út á við. Þá er einn Íslandsmeistari óháð kyni, karla, kvenna, félagsliða á hverjum degi sem auðveldar fréttaflutning og tryggir að árangur hvers aðila hverfi ekki í gífurlegan fjölda niðurstaða sem koma inn samtímis.
Líklegt er þá að ÍM í berboga (á laugardegi) og ÍM í langboga (á sunnudegi) verði haldið á sama tíma og World Cup þar sem ekki er keppt í þeim greinum á World Cup. ÍM í trissuboga (á laugardegi) og ÍM í sveigboga (á sunnudegi) væri þá haldið á þeirri helgi sem hentar svo að það stangist ekki á við landsliðsverkefni sem okkar besta fólk gæti verið að keppa í, svo að okkar bestu missi ekki færi á því að verða Íslandsmeistarar.
Einnig er líklegt að þróun Íslandsmeistaramóta í Víðavangsbogfimi verði haldið áfram, þar sem almennur áhugi á Íslandsmeistaramótum í greininni virðist vera að aukast. Lítill hópur Afreksfólks í þeirri íþróttagrein hefur náð góðum árangri alþjóðlega og Ísland vann meðal annars til sinna fyrstu verðlauna á EM í víðavangsbogfimi í Póllandi 2025.
Næst á dagskrá hjá BFSÍ er fyrsta Íslandsbikarmót í Bikarmótaröð BFSÍ 27 júní og svo Norðurlandameistaramót ungmenna 1-6 júlí. Við óskum öllum keppendum til hamingju með árangurinn á ÍM, þökkum starfsfólki mótsins og vonumst eftir góðri uppskeru verðlauna á NM ungmenna 😊











