You are currently viewing Íslandsmeistaramót trissuboga meistaraflokki, ungmenni skara framúr

Íslandsmeistaramót trissuboga meistaraflokki, ungmenni skara framúr

Íslandsmeistaramótið í Ólympískum trissuboga var haldið helgina 7-8 mars í Bogfimisetrinu. Keppt var í meistaraflokki á sunnudeginum og U21/50+ flokkum á laugardeginum.

Keppt er um þrjá einstaklingstitla (karla, kvenna og óháð kyni) og einn félagsliðatitil.

Íslandsmeistaramótið (ÍM)

Íslandsmeistaramótið í meistaraflokki var haldið á sunnudeginum.

Íslandsmeistaratitill karla Meistaraflokkur: Fyrsta sinn í sögu íþróttarinnar þar sem keppendur um meistaraflokks titil karla eru báðir U21. Magnús kemst óvænt í gull úrslit aðeins 15 ára gamall en Ragnar ver Íslandsmeistaratitilinn sinn.

Um Íslandsmeistaratitil karla áttust við í gull úrslitum Ragnar Smári Jónasson 20 ára og Magnús Darri Markússon 15 ára báðir úr BFB Kópavogi. En gaman er að geta þess að þessir tveir drengir kepptu einnig í gull úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í U21 flokki á laugardaginn. Þetta var einnig í fyrsta sinn í sögu íþróttarinnar þar sem að keppendur í gull úrslitum karla voru báðir U21. Ansi kröftug ungmenni á ferð hér.

Magnús stóð sig frábærlega í undankeppni mótsins og bætti U18 Íslandsmetið töluvert með 568 stig, Íslandsmetið var áður 559 stig. Það var einnig annað hæsta skor í undankeppni ÍM og Magnús vann sig þokklega auðveldlega upp í undanúrslit í útsláttarleikjum, þar sem að hann mætti margföldum Íslandsmeistara Alfreði Birgissyni frá Akureyri. Þar hefðu flestir veðjað að reynsluboltinn Alfreð myndi vinna undanúrslitin gegn Magnúsi og Alfreð myndi keppa en og aftur í gull úrslitaleiknum, sem Alfreð var nánast orðinn áskrifandi að síðasta áratug. En aðeins eitt stig skyldi þá að í undankeppni mótsins og gæti því orðið nokkuð jafn leikur ef Magnús næði að halda uppi metaframmistöðu sinni á mótinu. Sem gerðist og Magnús náði 143-140 sigri í undanúrslitunum, sem flestir myndu kalla óvæntann sigur þar sem hann komst í fyrsta sinn í gull úrslitaleik í meistaraflokki á sínum íþróttaferli.

Í gull úrslitunum mætti Magnús núverandi titilhafa karla frá 2025, Ragnar Smári var talinn líklegri til sigurs, enda var hann búinn að vera að jafna Íslandsmetin í meistaraflokki og U21 flokki í undankeppni og útsláttarleikjum alla helgina, bæði á ÍM U21 og ÍM meistaraflokki.

Gull úrslita leikur karla var nokkuð jafn í upphafi:
Umferð 1 – 30-28 – Ragnar byrjaði með 2 stiga forskot
Umferð 2 – 29-30 – Magnús náði 1 stig til baka 59-58
Umferð 3 – 28-28 – Aðeins 1 stig sem skilur þá að í leiknum 87-86
Umferð 4 – 30-27
Umferð 5 – 30-28 – Ragnar gaf svo ekkert eftir í fjórðu og fimmtu umferð og Ragnar tók sigurinn 147-141, en gaman að geta þess að Íslandsmetið í útsláttarleik karla er 148 stig og Ragnar alltaf að snerta það.

Ragnar náði því að verja Íslandsmeistaratitilinn karla innandyra frá 2025 með því að vinna titilinn annað árið í röð (2025 og 2026), sem gæti verið upphaf að langri sigurröð?

Kaewmungkorn Yuangthong 21 árs úr BFHH Hafnarfirði vann bronsið á ÍM karla á móti Alfreð Birgisson 50 ára úr ÍFA Akureyri 144-143.

Íslandsmeistaratitill kvenna: Þórdís kom inn sterkari á ÍM en nokkru sinni áður og varði titilinn sinn annað árið í röð

Í gull úrslitum kvenna um Íslandsmeistaratitilinn áttust við Þórdís Unnur Bjarkadóttir 18 ára og Eowyn Marie Mamalias 22 ára báðar úr BFB Kópavogi.

Þórdís var það sem mætti kalla „the favorite to win“ þar sem hún var hæst í undankeppni ÍM þar sem hún var aðeins 2 stigum frá sínu eigin Íslandsmeti með 578 stig á móti núverandi meti 580 sem hún setti sjálf á EM innandyra í febrúar sem setti hana í topp 8 á undankeppni EM.

Þórdís átti nokkuð auðvelda vegferð upp í gull úrslitaleikinn. En Eowyn lenti í hörðum bardaga í undanúrslitum í leik á móti Önnu Maríu, sem endaði í jafntefli 141-141 og þurfti því bráðabana til að ákvarða hver myndi mæta Þórdísí í gull úrslitum. Þar náði Eowyn sigrinum með 10 vs 9.

Þórdís og Eowyn mættust því í gull úrslitaleiknum og voru jafnar í fyrstu umferðinni 29-29 en svo jók Þórdís muninni í hverri umferð eftir það og sigraði úrslitaleikinn örugglega 145-137. Þórdís tók því öruggann sigur í gull úrslitum meistaraflokks kvenna og varði Íslandsmeistaratitilinn sem hún vann 2025 með því að taka titilinn annað árið í röð.

Þórdís skoraði aðeins einu stigi frá Íslandsmeti útsláttarleiks kvenna í gull úrslitunum með 145 stig en metið er 146, ásamt því að gera það sama í tveim öðrum leikjum á ÍM. Þrisvar 1 stigi frá Íslandsmetinu.

Anna María Alfreðsdóttir 23 ára úr ÍFA Akureyri vann bronsið á ÍM kvenna á móti Astrid Daxböck 46 ára úr BFB 139-127

Íslandsmeistaratitill félagsliða: Nýtt Íslandsmet og fimmti titill BF Bogans í röð.

BF Boginn var yfirgnæfandi í liðakeppni um Íslandsmeistaratitil félagsliða. Sérstaklega áhugavert var að sterkasta lið mótsins samanstóð af þremur sterkustu keppendum í undankeppni ÍM í meistaraflokki sem voru öll sömu ungmenni sem kepptu líka um titlana í U21 flokki á ÍM U21 á laugardaginn. Ansi sterk ungmenni á uppleið.

Lið BF Bogans sló Íslandsmet félagsliða í undankeppni mótsins, með töluverðum mun 1731 en metið var 1715 áður.

BF Boginn tók Íslandsmeistaratitilinn í félagsliðakeppni í gull úrslitum 229-224, sem er aðeins einu stigi frá núverandi Íslandsmeti í útsláttarleik félagsliða, sem er 230 stig. Með því tryggði BF Boginn sér fimmta Íslandsmeistaratitil sinn í röð í félagsliðakeppni trissuboga.

  • BF Boginn Íslandsmeistari í félagsliðakeppni leikmenn:
    • Ragnar Smári Jónasson
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
    • Magnús Darri Markússon

Lið 2 frá BF Boganum tók silfrið og lið 3 frá BF Boganum tók bronsið. Frekar sterkt trissuboga crew þar, enda margir þeirra sem hafa skilað Íslandi verðlaunum á alþjóðlegri grundu á EM og Evrópubikarmótum, sérstaklega ungmennin.

Íslandsmeistaratitill trissuboga meistaraflokki (Allir/óháð kyni): Þórdís tekur sigurinn á móti Ragnari gegn líkunum.

Um einstaklings Íslandsmeistaratitilinn í meistaraflokki (Allir/óháð kyni), sem væri hægt að kalla „the main event“ þar sem að allir Íslendingar keppa, konur, karlar og allir, keppa um titilinn. Niðurstöðurnar voru mjög spennandi..

Þar mættust í gull úrslitum liðsfélagarnir Þórdís Unnur Bjarkadóttir 18 ára og Ragnar Smári Jónasson 20 ára, en áhugvert er að þau áttust einnig um titilinn í trissuboga U21 deginum áður (þar sem Ragnar tók sigurinn).

Þetta var aðeins í annað sinn í sögu íþróttarinnar þar sem báðir keppendur í gull úrslitum trissuboga meistaraflokks (óháð kyni) voru bæði U21 og í fyrsta sinn í sögunni sem það gerist innandyra.

Ragnar átti frekar auðvelda vegferð úr 16 manna úrslitum upp í gull úrslitaleikinn (enda að skora hátt), Þórdís líka nema smá „hjúkett“ í 8 manna úrslitum þar sem hún fékk góða mótstöðu og vann naumann sigur 145-143 á móti Degi Erni.

Gull úrslitaleikurinn milli Ragnars og Þórdísar var þó óvenjulegur og skorið hjá þeim báðum var óvenju lágt miðað við aðra leiki á ÍM. Greinilegt að einhver spenna gæti hafa lætt sér inn í hugann, þar sem að hvorugt þeirra hafði áður unnið Íslandsmeistaratitilinn í trissuboga (Allir/óháð kyni) og því mikið í húfi fyrir bæði.

Gull úrslitaleikurinn var samt sem áður mjög spennandi:
28-29 Þórdís byrjaði með 1 stigs forskot eftir fyrstu umferð
56-58 Jók svo forskotið um annað stig í annarri umferð 28-29
84-86 Þau jöfnuðu þriðju lotu 28-28
113-113 Ragnar náði svo að jafna leikinn í fjórðu umferð 29-27 og aðeins lokaumferðinn í úrslitaleiknum eftir
140-141 Þar náði Þórdís sigrinum með einu stigi 28-27

Þórdís tók því Íslandsmeistaratitil einstaklinga (óháð kyni/Allir) í fyrsta sinn á íþróttaferlinum. Yngsta manneskja í sögu íþróttarinnar sem hefur náð meistaraflokks titlinum óháð kyni (18 ára og 66 daga gömul).

Alfreð Birgisson 50 ára úr ÍFA Akureyri (sem vann titilinn 2025) vann bronsið á ÍM á móti Magnús Darra Markússyni 15 ára úr BFB Kópavogi 144-137

Hér er hægt að smella á og sjá æðsta árangur í trissuboga

Íslandsmet sem voru slegin eða nálægt því á Íslandsmeistaramótinu:

  • Íslandsmet Magnús Darri Markússon U18 karla undankeppni 568 stig metið var áður 559 stig
  • Íslandsmet BF Boginn félagsliða meistaraflokkur undankeppni 1731 stig metið var áður 1715 stig
    • Ragnar Smári Jónasson
    • Magnús Darri Markússon
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
  • Íslandsmet Alfreð Birgisson 50+ karla útsláttarleikur 146 stig en metið var áður 145 stig
  • Jafnaði Íslandsmetið tvisvar Ragnar Smári Jónasson í útsláttarkeppni meistaraflokki karla 148 stig
  • 1 stig frá metinu. þrisvar var Þórdís Unnur Bjarkadóttir 1 stigi frá metinu í útsláttarkeppni meistaraflokki kvenna með 145 stig en metið er 146 stig
  • 1 stig frá metinu Ragnar Smári Jónasson U21 karla undankeppni 585 stig en metið er 586 stig
  • 1 stigi frá metinu BF Boginn félagslið (Þórdís/Magnús/Ragnar) útsláttarkeppni 229 stig en metið er 230.
  • 1 stig frá metinu Magnús Darri Markússon U18 karla útsláttarleikur 143 stig
  • 2 stigum frá metinu Þórdís Unnur Bjarkadóttir U21 kvenna undankeppni 578 en metið er 580 stig

Ótrúlega sterk frammistaða hjá þessum þremur ungmennum sem lögðu undir sig alla Íslandsmeistaratitlana í meistaraflokki!! Meirihlutann af verðlaunum á ÍM ásamt því að slá, jafna eða vera nálægt nánast öllum Íslandsmetum í Meistaraflokki, U21 og U18. Hvað getur maður sagt annað en „Ótrúlega vel gert“.

Mögulegt verður að finna nánari fréttir um sigurvegara ÍM á archery.is

Íslandsmót U21 og 50+

Íslandsmeistaramót U21 og 50+ í trissuboga var haldið á laugardeginum, 8 Íslandsmeistaratitlar voru veittir í U21 og 50+. BF Boginn í Kópavogi tók alla fjóra U21 Íslandsmeistaratitla mótsins, en BF Boginn og ÍF Akur deildu með sér titlunum í 50+ með tvo titla per félag.

Eftirfarandi unnu til Íslandsmeistaratitla í trissuboga U21

  • Ragnar Smári Jónasson – BFB – Íslandsmeistari U21 (óháð kyni)
  • Ragnar Smári Jónasson – BFB – Íslandsmeistari U21 karla
  • Þórdís Unnur Bjarkadóttir – BFB – Íslandsmeistari U21 kvenna
  • BF Boginn – Íslandsmeistari U21 félagsliða
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
    • Ragnar Smári Jónasson

Eftirfarandi unnu Íslandsmeistaratitla í trissuboga 50+

  • Alfreð Birgisson – ÍFA – Íslandsmeistari 50+ (óháð kyni)
  • Alfreð Birgisson – ÍFA – Íslandsmeistari 50+ karla
  • Sveinbjörg Rósa Sumarliðadóttir – BFB – Íslandsmeistari 50+ kvenna
  • BF Boginn – Íslandsmeistari 50+ félagsliða
    • Albert Ólafsson
    • Sveinbjörg Rósa Sumarliðadóttir

Tvö Íslandsmet voru slegin á Íslandsmóti U21 og öldunga, bæði í félagsliðakeppni, en ansi margir jöfnuðu eða voru mjög nálægt metunum í sínum flokki á laugardaginn. Þar er vel vert að nefna:

  • Íslandsmet undankeppni félagsliða trissuboga 50+ BF Boginn 1067 stig, metið var 1065
    • Albert Ólafsson
    • Sveinbjörg Rósa Sumarliðadóttir
  • Íslandsmet útsláttarkeppni félagsliða trissuboga U21 BF Boginn 154 stig, metið er 151 stig (þau slógu metið tvisvar á ÍM U21)
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
    • Ragnar Smári Jónasson
  • Ragnar Smári Jónasson BFB jafnaði Íslandsmetið í útsláttarkeppni karla U21 og meistaraflokki tvisvar á ÍM U21 með 148 stig
  • Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB jafnaði Íslandsmetið í útsláttarkeppni trissuboga meistaraflokki og U21 kvenna 146 stig
  • Magnús Darri Markússon BFB jafnaði Íslandsmetið í undankeppni trissuboga U18 karla með 559 stig
  • Magnús Darri Markússon BFB var aðeins 1 stigi frá Íslandsmetinu í útsláttarkeppni trissuboga U18 karla með 143 stig en metið er 144 stig
  • Ragnar Smári Jónasson BFB var aðeins 1 stigi frá Íslandsmetinu í undankeppni trissuboga karla U21 með 585 stig en metið er 586 stig.
  • BF Boginn U21 félagsliðið (Þórdís og Ragnar) voru aðeins einu stigi frá Íslandsmetinu með 1152 stig en metið er 1153 stig

Mögulegt er að finna nánari fréttir um sigurvegara ÍM U21 og 50+ á archery.is