Bogfimisamband Íslands (BFSÍ) hélt alþjóðlegt þjálfaranámskeið stig 1 (World Archery Coach Level 1 seminar – WACL1) á Íslandi 9-14 júní 2025. Námskeiðið var styrkt af Ólympíusamhjálpinni (OS – Olympic Solidarity) með stuðningi frá ÍSÍ og heimssambandinu (WA – World Archery).
Tíu þátttakendur luku námskeiðinu, luku mati og náðu prófinu:
- Baldur Freyr Árnason – BF Boginn
- Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir – BF Boginn
- Henry Johnston – BF Boginn
- Sóley Rán Hamann – ÍF Akur
- Ari Emin Björk – ÍF Akur
- Helgi Már Hafþórsson – ÍF Akur
- Eva Tomisova – SF Skyttur
- Elísabet Ásdís Kristjánsdóttir – Afturelding Reykhólar
- Daníel Örn Arnarsson Linduson – LF Freyja
- Eowyn Marie Mamalias – BF Hrói Höttur
Skírteinið (diploma) gefur þessum tíu sem luku námskeiðinu og prófinu alþjóðleg þjálfararéttindi stig 1 (World Archery Level 1 Coach) til fjögurra ára.
Ánægjulegt var að sjá að UMF Afturelding á Reykhólum og Skotfélagið Skyttur á Hellu sendu sína fyrstu þátttakendur á þjálfaranámskeið. En enginn bogfimiþjálfari var starfandi innan þessara félaga áður.
Aðildarfélög BFSÍ ráða valinu hver fer á þeirra vegum á þjálfaranámskeið hjá BFSÍ, enda tilgangur námskeiðana að búa til virka þjálfara sem eru að styðja uppbyggingu aðildarfélaga sinna. Almennt er gert ráð fyrir því að þátttakendur hafi lokið bóklega hluta þjálfaranámskeiðs stig 1 á netinu og starfi sem leiðbeinendur í sínu félagi á æfingum/námskeiðum í eitt ár undir öðrum þjálfurum innan félagsins áður en þeir sitja verklega hluta þjálfarastigs 1. Bóklegi hluti þjálfarastigs 1 er opinn allt árið og mögulegt að skrá sig hér : https://bogfimi.is/thjalfaranamskeid/
Þjálfarakennari World Archery á námskeiðinu var Tim Swane frá Bretlandi. Þetta er annað þjálfaranámskeið Tim á Íslandi á vegum World Archery og Olympic Solidarity, en hann hélt einnig þjálfaranámskeið stig 2 árið 2023 á vegum WA og OS. Tim kíkti einnig í stutta heimsókn niður á skrifstofu ÍSÍ á meðan nemendurnir voru uppteknir í verkefni námskeiðsins sem starfsmaður BFSÍ stýrði. Þar hitti Tim Ragnhildi Skúladóttir (Sviðsstjóri – Fræðslu- og almenningsíþróttasvið) og Willum Þór Þórsson (Forseta ÍSÍ).
Bogfimisamband Íslands hefur um nokkuð skeið verið á fremsta bekk aðildarsambanda World Archery í ýmsum þáttum í heiminum að sögn starfsmanna World Archery. Heimssambandið notar Ísland reglubundið sem jákvætt fordæmi fyrir aðrar þjóðir til þess að fylgja í ýmsum málum, m.a. þegar það kemur að verkefnum Ólympíusamhjálparinnar. Starfsfólk BFSÍ hefur einnig aðstoðað aðrar þjóðir í þeim málum þegar að World Archery hafa óskað eftir því, eða þjóðirnar sjálfar hafa nálgast BFSÍ beint til að fá ráð og aðstoð.
Ísland er einnig í uppáhaldi hjá þjálfarakennaranum Tim þar sem námskeiðin á Íslandi eru að hans sögn þau auðveldustu og best skipulögðu sem hann kennir á. Það ásamt ensku kunnáttu þátttakenda gerir það oft af verkum að námskeiðið er á undan áætlun, sem er óvenjulegt.
Skipulag námskeiðisins var ansi þétt frá 9 á morgnana til 7 á kvöldin eða um 10 tíma á dag þessa 5 daga. Þá er ekki verið að telja þau atriði sem þarf að ljúka áður en námskeiðið hefst (bóklega hluta námskeiðsins sem er á netinu, World Anti Doping Agency námskeiðið á netinu í Adel menntunarkerfinu og mörgu öðru). Því getur verið ansi strembið fyrir fólk að sitja námskeiðin upp á að fá frí úr vinnu og slíkt.
Tim hefur einnig verið að vinna í að endurskrifa (uppfæra) námskeiða fyrirkomulag fyrir World Archery. Námskeiðið á Íslandi var þriðja verklega námskeiðið sem haldið er í nýja fyrirkomulaginu. Nýjasta fyrirkomulagið byrjaði á þessu ári og er þannig að lögð er mun meiri áhersla á verklega þætti á námskeiðinu og verið að færa meira af því sem er ekki verklegt í net námskeið sem þarf að ljúka fyrir verklega námskeiðið. Með þessu móti er mögulegt að stytta verklegu námskeiðin úr 8 dögum í 5-6 daga.
Einnig er verið að endurskrifa allt net námskeiðs efni, þjálfarahandbók WA og fleira. Það má áætla að það muni taka um 4 ár í viðbót að ljúka því ferli hjá Tim fyrir World Archery. Íþróttastjóri BFSÍ hefur verið ráðgjafi um þróun nýja menntunar ferlisins og Tim kom meðal annars til Íslands 2024 í tilrauna verkefni sem tengdist að hluta þróun menntunarkerfis WA. Framkvæmdastjóri WA bað íþróttastjóra BFSÍ einnig að senda sér skýrslu þegar að námskeiðinu væri lokið til að meta hve vel nýja námskeiðs fyrirkomulagið sem Tim er að þróa sé að heppnast.
Ný viðbót að tillögu íþróttastjóra BFSÍ var að bæta við eftirfylgni, og áætlað er að taka netfund með þátttakendum eftir þrjá mánuði og eitt ár með Tim svo að mögulegt sé að fá endurgjöf á hve vel nýja námskeiðs fyrirkomulagið er að heppnast, sjá hvernig þjálfarar eru að dafna og svara spurningum sem upp gætu hafa komið eftir að námskeiðinu lauk.
Farið var yfir öll helstu atriði sem þjálfarar þurfa að kunna tengt þjálfun byrjenda til lengra kominna áhugamanna.
Þau 10 sem náðu prófinu bætast við í hóp 19 þjálfara sem voru með WA þjálfararéttindi fyrir á námskeiðinu. Sem gerir heildina 29 á Íslandi sem stendur.
- 2x BFSÍ/WA stig 3 þjálfarar
- 11x BFSÍ/WA stig 2 þjálfarar
- 16x BFSÍ/WA stig 1 þjálfarar
18 manns höfðu áhuga á því að sitja námskeiðið en margir sem hættu við þátttöku vegna vinnu eða persónulegra ástæðna. Viðmiðið á þjálfaranámskeiðum heimssambandsins er 8-14 manns per 1 þjálfarakennarara og hámark 14-20 á námskeiðinu ef það eru 2 þjálfarakennarar. Gert var ráð fyrir 12 þátttakendum og 2 sem duttu út á meðan á námskeiðinu stóð. Þetta var því vel innan marka WA fyrir þjálfaranámskeið. 5 karlar, 4 konur og 1 kynsegin, þannig að nokkuð jafnt hlutfall kynja var í samræmi við kröfur OS um stuðning við slík námskeið.
Sóley Rán Hamann var fyrsti kynsegin (gender fluid) þátttakandinn á þjálfaranámskeiði á vegum heimssambandins (World Archery) og fyrst til þess að ná prófi (eftir því sem er best vitað sem er út úr skápnum). Sóley er því fyrsti kynsegin þjálfarinn í bogfimi á Íslandi og alþjóðlega, og líklega fyrsti kynsegin þjálfarinn á Íslandi yfirhöfuð. (Eftir því sem best er vitað, allavega er enginn annar í manna minnum sem við höfum rætt við og við finnum ekki annað fordæmi á netinu. En íþróttahreyfingin í heild sinni á Íslandi er stór og því ekki hægt að alhæfa það 100% þó að það sé líklegt þar sem annað dæmi finnst ekki). Mögulegt er að breyta þurfi einhverjum formum hjá ýmsum alþjóðlegum samtökum og bæta við kynsegin valmöguleika, sem er jákvætt.
Tim náði ekki flugi heim fyrr en degi seinna en áætlað var og því var tækifærið notað með auka laugardaginn og farið með hann á Þjóðminjasafnið og víkingahátíðina í Hafnarfirði (að sjálfsögðu í báðum tilfellum til þess að skoða boga, örvar og bogfimi tengt hehe). Þetta er einnig í fyrsta sinn sem ekki hefst eldgos á sama tíma og World Archery þjálfaranámskeið á þessum áratug.
Áætlað er að BFSÍ reyni að halda World Archery þjálfarastig 2 árið 2026 á Íslandi, ef að nægur áhugi er til staðar til þess. Ef ekki þá verður áhugi skoðaður á því að halda annað þjálfarastig 1. Vonandi í áframhaldandi samstarfi við Olympic Solidarity, World Archery og ÍSÍ.
You must be logged in to post a comment.