Fundarboð
Formannafundur Bogfimisambands Íslands 2020
Hér með er boðað til formannafundar Bogfimisambands Íslands. Fundurinn verður haldinn sunnudaginn 29. mars 2020 kl. 13:00 í húsnæði Múltikúlti Barónsstíg 3, 101 Reykjavík.
Rétt til setu á fundinum hafa formenn, eða fulltrúar þeirra, frá þeim íþróttabandalögum, héraðssamböndum og félögum sem mynda sambandið.
Dagskrá
· Skýrsla stjórnar um starfsemi síðastliðins árs.
· Ársreikningur síðastliðins árs lagður fram.
· Fjárhagsáætlun lögð fram.
· Ákvörðun um drög að afreksstefnu fyrir 2020 og 2021.
· Önnur mál.
Stjórn BSFÍ 28. febrúar 2020