You are currently viewing Ísland með verðlaun í fyrsta sinn á EM ungmenna utandyra, bæði silfur og brons í hús

Ísland með verðlaun í fyrsta sinn á EM ungmenna utandyra, bæði silfur og brons í hús

376 íþróttamenn frá 40 Evrópuþjóðum kepptu á Evrópumeistarmóti (EM) ungmenna í utandyra bogfimi sem haldið var í Róm Ítalíu 20-25 júlí.

Ísland átti þar 13 af 376 keppendum og vann eitt silfur og eitt brons. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland vinnur til verðlauna á EM ungmenna utandyra sem er frábært.

Ísland keppti í einum gull úrslitaleik og þremur brons úrslitaleikjum á EM ungmenna utandyra að þessu sinni.

  • Lóa Margrét Hauksdóttir vann brons úrslitaleikinn í berboga U21 kvenna einstaklinga gegn stúlku frá Eistlandi 6-0
  • Baldur Freyr Árnason tapaði sínum brons úrslitaleik í berboga U21 karla einstaklinga gegn strák frá Búlgaríu 6-0.
  • Lóa og Baldur unnu saman silfur verðlaun í berboga U21 blandaðri liðakeppni (mixed team), eftir tap gegn Bretlandi í gull úrslitaleiknum 6-0.
  • Trissuboga U18 lið Íslands (Sóldís/Eydís/Elísabet) töpuðu brons úrslitaleiknum á móti liði Rúss…. Hehem hlutlausu einstaklinga liði (Individual Neutral Athletes) 227-201.

Það væri því hægt að segja að Lóa Margrét Hauksdóttir skaraði mest fram úr á EM ungmenna þar sem hún vann bæði til einstaklingsverðlauna og átti hluti í liðaverðlaunum Íslands á EMU. En Lóa varð Evrópubikarmeistari ungmenna 2026 og varð Norðurlandameistari ungmenna, og munaði því littlu að hún hefði tekið alla titla á árinu.

Fjallað verður nánar um niðurstöður og úrslit hvers keppanda í einstaklingsfréttum á archery.is sem koma út bráðlega.

Loka niðurstöður Íslendinga í einstaklingskeppni á EMU:

  • 3 sæti – Lóa Margrét Hauksdóttir – Berboga kvenna U21
  • 4 sæti – Baldur Freyr Árnason – Berboga karla U21
  • 19 sæti – Ragnar Smári Jónasson – Trissubogi karla U21
  • 19 sæti – Eydís Elide Sartori – Trissuboga kvenna U18
  • 20 sæti – Sóldís Inga Gunnarsdóttir – Trissuboga kvenna U18
  • 21 sæti –  Elísabet Fjóla Björnsdóttir – Trissuboga kvenna U18
  • 23 sæti – Þórdís Unnur Bjarkadóttir – Trissuboga kvenna U21
  • 23 sæti – Magnús Darri Markússon – Trissuboga karla U18
  • 25 sæti – Bergur Freyr Geirsson – Trissuboga karla U18
  • 26 sæti – Henry Snæbjörn Johnston – Trissuboga karla U18
  • 30 sæti – Ísar Logi Þorsteinsson – Trissubogi karla U21
  • 32 sæti – Natan Eir Skov Jensen – Trissubogi karla U21
  • 61 sæti – Baldur Freyr Árnason – Sveigbogi karla U21

 

Niðurstöður Íslenskra liða á EMU:

  • 2 sæti – Berboga parakeppni (mixed team) U21 lið (Baldur/Lóa)
  • 4 sæti – Trissuboga kvenna U18 lið (Sóldís/Eydís/Fjóla)
  • 5 sæti – Trissuboga karla U18 lið (Henry/Bergur/Magnús)
  • 7 sæti – Trissuboga parakeppni (mixed team) U18 lið (Magnús/Fjóla)
  • 7 sæti – Trissuboga karla U21 lið (Natan/Ragnar/Ísar)
  • 12 sæti – Trissuboga parakeppni U21 (Ragnar/Þórdís)

 

Íslandsmet sem slegin voru á mótinu:

  1. Landsliðs Íslandsmet – Trissubogi útsláttarkeppni U18 blandað lið (mixed team) – 148 stig, en metið var 140 stig áður. (Slóu metið í raun bæði í 16 liða úrslitum og 8 liða úrslitum með 145 og 148 stig)
    • Magnús Darri Markússon BFB
    • Elísabet Fjóla Björnsdóttir BFB
  2. Landsliðs Íslandsmet – Trissubogi undankeppni U18 karla lið – 1625 stig
    • Magnús Darri Markússon BFB
    • Bergur Freyr Geirsson BFB
    • Henry Snæbjörn Johnston BFB
  3. Landsliðs Íslandsmet – Trissubogi útsláttarleikur U18 karla lið – 171 stig
    • Magnús Darri Markússon BFB
    • Bergur Freyr Geirsson BFB
    • Henry Snæbjörn Johnston BFB
  4. Landsliðs Íslandsmet – Trissubogi U21 karla lið undankeppni – 1786 stig metið var 1743 stig áður
    • Ragnar Smári Jónasson BFB
    • Ísar Logi Þorsteinsson BFB
    • Natan Eir Skov Jensen BFB
  5. Nálægt metinu – Berbogi U21 kvenna undankeppni 509 stig, en metið er núna 528 stig – Lóa Margét Hauksdóttir BFB
  6. Nálægt metinu -Trissubogi U21 karla lið útsláttarkeppni – 208 stig, en metið er 210 stig – Ragnar/Ísar/Natan
  7. Nálægt metinu – Trissubogi U18 kvenna lið undankeppni – 1740 stig, en metið er núna 1752 stig – Sóldís/Eydís/Elísabet
  8. Nálægt metinu – Trissubogi U18 blandað lið (mixed team) undankeppni – 1244 stig, en metið er núna 1264 stig – Magnús/Elísabet
  9. Nálægt metinu – Trissubogi U18 kvenna lið útsláttarkeppni – 201 stig, en metið er núna 202 stig – Sóldís/Elísabet/Eydís

 

Frekari upplýsingar um mótið:

 

Ýmislegt áhugavert:

Ísland hefur unnið til margra verðlauna á EM ungmenna í innandyra bogfimi á síðustu fjórum árum, enda innandyra markbogfimi mest stundaða íþróttagreinin á Íslandi. Ísland vann einnig til sinna fyrstu verðlauna á EM ungmenna í víðavangsbogfimi á síðasta ári.

Nú með verðlaunum á EM ungmenna utandyra hefur Ísland unnið til verðlauna EM ungmenna í öllum íþróttagreinum (inni, úti og víðavangi)

Heilt á litið var þetta ekki sterkasta frammistaða sem hægt var að gera ráð fyrir og margir af bestu Íslensku keppendunum ströggluðu sérstaklega í útsláttarleikjum á þessu mót. Ef við gæfum EMU skor frá 0-100 þar sem 0 er versta mögulega frammistaða, 50 væri nokkuð eðlilegt miðað við tölfræði og 100 er ótrúleg frammistaða umfram það sem mætti gera ráð fyrir þá var þetta EMU sirka 35-40 heilt á litið á þeim skala, aðeins undir meðaltali miðað við tölfræði. Sem er innan eðlilegrar sveiflu á tölfræði, það geta ekki öll mót verið yfir meðaltali í árangri, annars væri meðaltalið ekki meðaltal 😉

En það voru þó óvæntir gull molar inn á milli utan verðlauna. Til dæmis í trissuboga U18 mixed team (parakeppni) tóku parið Fjóla og Magnús út sterkara lið Spánar 148-146 í 16 liða úrslitum og stóðu í hári Tyrklands og annarra stórþjóða í 8 manna úrslitum. Þau áttu óvenju góða leiki og hefðu auðveldlega á réttum degi getað keppt til verðlauna í parakeppni, sem var umfram væntingar.

Veðrið á EMU á Ítalíu var steikjandi hiti (30-40°) og sól næstum allan tímann og nánast það eina sem gerði það bærilegt að vera á keppnisvellinum var vindurinn sem gustaði oft sterkt, en vindurinn hjálpaði þó ekki skorum keppenda á mótinu.

Keppnisvöllurinn átti að vera grænn grasvöllur en það hafði ekki rignt í 2 mánuði og völlurinn var því þurr sandur, með svo gífurlega mikið af þornóttum fræjum (caltrops) að eftir að hafa labbað á keppnisvellinum labbaði maður út á fræjum og skósólarnir snertu ekki jörðina lengur (hljómar eins og ýkja en var raunveruleikinn). Sérstaklega vont þegar stungufræin hoppuðu upp í ökla og ofan í skól. Einnig var mikið um moskítóbit á svæðinu.

Mótshaldarar gerðu einnig ekki ráð fyrir þessum fjölda keppenda á EMU og því þurfti að halda marga leikina á æfingavellinum, sem var mjög skrautlegt, skotklukkur hættu að virka, gleymdist að setja vindfána og margt fleira sem gekk á á mótinu.

Þórdís var commentator á livestream á meðan að finals var í gangi. Hún hefur reglubundið boðið sig fram í það og stendur sig mjög vel í því.

Allir berbogakeppendur í úrslitum (þar með talin Lóa og Baldur) voru tekin í random Doping Control test eftir brons úrslitaleikina sína. Þetta er aðeins í fjórða sinn sem Íslenskur keppandi er tekinn í Doping-Control á alþjóðlegum mótum, enda er úrtakið fyrir Doping-Control almennt tekið úr þeim sem eru að keppa til verðlauna á stórmótum.

Þetta var í fyrsta sinn sem berbogi var keppnisgrein á Evrópumeistaramótum ungmenna utandyra, en berbogi hefur í áratugi verið keppnisgrein í víðavangsbogfimi og var bætti við á EM ungmenna innandyra árið 2022. Viðbót berboga á Evrópubikarmót og Evrópumeistaramót utandyra koma að miklu leiti til vegna Gumma íþróttastjóra BFSÍ og áætlað er að bæta við 3 manna liðakeppni á næsta ári, eins og er í trissuboga og sveigboga flokkum. Að svo stöddu er aðeins keppt í einstaklingskeppni og blönduðu liði (mixed team).

Íslenska klappstýru liðið, þó að það hafi verið fámennt, var án vafa það háværasta í úrslitum.

Þetta var í fyrsta sinn sem ekki voru hótel á mótum World Archery Europe. Gisting fyrir keppendur var í nokkurskonar sumarbústaðahverfi í kringum sundlaugar, eða hjólhýsahverfi. Það var frekar þröngt í gistingunni en þurfti því engar rútur til að keyra keppendur til og frá keppnisvelli. Það gaf keppendum frá mismunandi löndum meira færi á því að kynnast á milli keppni og skemmta sér og einfaldaði skipulag mótsins með meira en 500 þátttakendur, og gerði það ódýrar en oft áður. Flestir voru mikið á móti þessu í upphafi þegar að lent var á mótinu, m.a. vegna þess hve þröngt var, þar sem að rafmagnið á öllu svæðinu var sífellt að detta út (og þar sem air-conditioning líka) og það var ekkert WIFI á staðnum og lélegt 4G/5G samband ef það virkaði yfirhöfuð. En sundlaugarnar voru vinsælar og almenna álitið á þessu snérist við að þetta fyrirkomulag væri að mörgu leiti betra en hótel fyrirkomulagið.

Hitinn var það mikill og keppendur það „klístraðir“ af sólarvörn og hita að hendurnar þeirra voru að límast við andlit þeirra, og því nokkrir sem byrjuðu að nota kalk til þess að hendin gæti runnið aftur eftir skotið.

Smá inside jokes fyrir keppendur:

  • Ísar heldur að utandyra sé innandyra
  • Natan þarf að fá leyfi fyrir að vera til
  • Ragnar svaf ekki yfir sig
  • Magnús og Henry tóku til í herberginu sínu
  • Bergur var ástfanginn af air-conditioning unitinu
  • Sóldís var skömmuð fyrir að hengja bangsa í úrslitum
  • Þórdís ætlar að flytja inn allt Þýska karla liðið
  • Fjóla barðist við moskító flugur og fannst af Fat-Jesus
  • Boginn hennar ferðaðist meira en hún
  • Gummi lagaði sjúkabílinn
  • Vala var the boss
  • Lóa þarf alltaf að útskýra fyrir dómurum hvað hún heyrir og heyrir ekki
  • Baldur er trans í bogum en hefur ekki örvarnar í það.

Næst á dagskrá hjá BFSÍ eru Íslandsmót ungmenna, Bikarmót BFSÍ og World Archery þjálfaranámskeið L2 á Íslandi.

Hægt er að sjá viðburði sem eru framundan í mótakerfi BFSÍ hér

https://mot.bogfimi.is/