Íslandsmeistaramótið í Ólympískum sveigboga var haldið helgina 7-8 mars í Bogfimisetrinu. Keppt var í meistaraflokki á sunnudeginum og U21/50+ flokkum á laugardeginum.
Keppt er um þrjá einstaklingstitla (karla, kvenna og óháð kyni) og einn félagsliðatitil.
Íslandsmeistaramótið (ÍM)
Íslandsmeistaramótið í meistaraflokki var haldið á sunnudeginum. Mótið var gífurlega spennandi og margar óvæntar og mjög spennandi niðurstöður þar sem sigurinn oftar en ekki byggðist á einni loka ör í bráðabana um hver yrði sigurvegari. Í úrslitaleikjunum voru annað hvort þaul reyndar kempur eða glæný andlit sem er óvenjuleg blanda.
Íslandsmeistaratitill karla: Finnur óvænt í gull úrslit en Ragnar tryggir sér þriðja Íslandsmeistaratitilinn í röð.
Um Íslandsmeistaratitil karla komst Finnur Arnór Þórisson úr BFHH Hafnarfirði komst óvænt í gull úrslitaleikinn eftir að hafa lagt Baldur Freyr Árnason BFB í Kópavogi í undanúrslitum 7-3. Finnur var sjálfur mjög hissa á frammistöðunni sinni í undanúrslitunum og hafði ekki búist við því að hann yrði að keppa um verðlaun, því síður að keppa um Íslandsmeistaratitilinn á sínu þriðja móti í íþróttinni og sínu fyrsta Íslandsmeistarmóti í meistaraflokki.
Í gull úrslitaleik karla mættust því Finnur og þaulreyndur Ragnar Þór Hafsteinsson úr BFB. Finnur tók fyrstu lotuna 26-24 og því 2-0 forystu í leiknum. Ragnar tók aðra lotu 26-21 og jafnaði leikinn 2-2. Drengirnir jöfnuðu þriðju lotuna 27-27 og staðan því enn jöfn í leiknum 3-3, og þeir jöfnuðu svo aftur fjórðu lotu 24-24 og staðan 4-4 í leiknum og aðeins fimmta og loka lota leiksins eftir. Ragnar náði þar 29-24 sigri í loka lotunni og tók því 2 stigin og vann úrslitaleikinn 6-4, þó að ekki hefði mátt muna miklu á að leikurinn færi í vil nýliðans.
Ragnar vann því sinn þriðja Íslandsmeistaratitil innandyra í röð (2024, 2025 og 2026).
Baldur Freyr Árnason tók bronsið í karla á móti Jóhann Baldur Jóhannsson 7-3 báðir úr BFB.
Íslandsmeistaratitill kvenna: Marín og Vala enn á toppnum og börðust um Íslandsmeistaratitilinn í sveigboga kvenna 10 skiptið í röð!!
Um Íslandsmeistaratitil kvenna áttust enn og aftur við Valgerður E. Hjaltested (Vala) og Marín Aníta Hilmarsdóttir báðar úr BFB.
Vala vann fyrstu tvær loturnar 28-27 og 29-26 og var með 4-0 forystu í leiknum, Marín tók næstu tvær lotur 30-28 og 27-26 og stelpurnar því jafnar 4-4 þegar aðeins ein lota var eftir af leiknum. Í loka lotuna var útlit fyrir að Vala gæti hafa unnið leikinn 28-27, en dómarinn við nánari skoðun dæmdi eina örina sem lægra skorið, stelpurnar jöfnuðu því síðustu lotuna 27-27 og deildu því stigunum sem þýddi að leikurinn endaði í jafntefli 5-5. Til að ákvarða hvort þeirra væri sigurvegari leiksins og myndi hreppa Íslandsmeistaratitil kvenna var því nauðsynlegt að beita bráðabana, 1 ör sá sem hittir nær miðju vinnur. Marín skaut fyrst með góða 9 en Vala náði að toppa það með ör í 10 hringnum og tók því sinn sjöunda Íslandsmeistaratitil kvenna í röð og fjórða titilinn í röð á ÍM innandyra.
Það er alltaf mjótt á munum á milli Völu og Marín og þessi úrslitaleikur milli þeirra um Íslandsmeistaratitilinn í kvenna er nánast kominn í áskrift. Þær hafa keppt í gull úrslitaleik kvenna um Íslandsmeistaratitilinn síðustu 10 Íslandsmeistaramót í röð!!! Og sjötta árið í röð á ÍM innandyra!! Sem er í báðum tilfellum án vafa met í íþróttinni að sömu andstæðingar mætist þetta oft í röð í úrslitum! Og alltaf eru leikirnir spennandi og jafnir á milli þeirra og má nánast engu muna!
- 2021 Utandyra Marín vann, Vala var ekki andstæðingurinn Þetta er síðasta ÍM sem Vala og Marín kepptu ekki um gullið á ÍM.
- 2021 Innandyra Marín vann Völu 6-2 (107-104)
- 2022 Innandyra Marín vann Völu 6-5 (138-133) – 5-5 jafntefli bráðabani sem Marín vann 10-8
- 2022 Utandyra Marín vann Völu 7-3 (115-105)
- 2023 Innandyra Vala vann Marín 6-4 (130-130)
- 2023 Utandyra Vala vann Marín 6-0 (77-69)
- 2024 Innandyra Vala vann Marín 6-4 (137-136)
- 2024 Utandyra Vala vann Marín 6-5 (109-99) – 5-5 jafntefli bráðabani sem Vala vann 9-8
- 2025 Innandyra Vala vann Marín 6-4 (139-134)
- 2025 Utandyra Vala vann Marín 6-2 (89-95)
- 2026 Innandyra Vala vann Marín 6-5 (138-137) 5-5 jafntefli bráðabani Vala vann 10-9
Alveg ótrúlegt, og ótrúleg frammistaða hjá þeim báðum og ótrulega jafnir leikir allan þennan áratug hjá þeim, þó að Vala hafi notið lukkunnar upp á síðustu árum þá er enginn munur á milli þeirra í getustigi og okkur hlakkar því mikið til að sjá fleiri leiki milli þeirra í framtíðinni. Þó að bronsverðlaunahafinn í kvenna gæti mögulega brotið þetta úrslitaleikja met sem stelpurnar eru að safna upp í framtíðinni.
Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir einnig úr BFB vann bronsið á ÍM kvenna á móti Katrín Sif Antonsdóttir úr ÍFA Akureyri 6-0.
Íslandsmeistaratitill félagsliða: Kópavogur og Akureyri eigast við um Íslandsmeistaratitilinn.
Um Íslandsmeistaratitilinn í félagsliðakeppni áttust við Íþróttafélagið Akur (ÍFA) á Akureyri og Bogfimifélagið Boginn (BFB) í Kópavogi. 4 lotur, 2 stig fyrir að vinna lotu (þannig að 8 stig í pottinum), liðið sem er fyrr að ná 5 stigum tekur sigurinn.
- Leikmenn liðs BF Bogans í Kópavogi:
- Marín Aníta Hilmarsdóttir
- Valgerður E. Hjaltested
- Baldur Freyr Árnason
- Leikmenn liðs ÍF Akur á Akureyri
- Katrín Sif Antonsdóttir
- Emma Rakel Björnsdóttir
- Eva Kristín Sólmundsdóttir
Lið Akurs átti erfiða för í gull úrslitaleikinn. Sérstaklega í undanúrslitum þar sem Akur átti gífurlega spennandi leik á móti BFB2 sem endaði í jafntefli 4-4.
BFB2 49-43 ÍFA / 2-0
BFB2 49-47 ÍFA / 4-0
BFB2 43-54 ÍFA / 4-2
BFB2 42-54 ÍFA / 4-4
Því þurfti bráðabana til að ákvarða hvort liðið héldi áfram í úrslitaleikinn um Íslandsmeistaratitilinn. Akureyringar tóku sigurinn í bráðabananum 28-25 og því einnig í leiknum 5-4 og héldu því í gull úrslitaleikinn.
Í úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitil félagsliða áttust BF Boginn, sem hafði unnið alla sína leiki örugglega til að komast í úrslitaleikinn, og ÍF Akur.
Boginn vann fyrstu umferð leiksins 58-52 og tók 2-0 forystu í leiknum, næstum fullkomin umferð frá Kópavogsmönnum 58 af 60 mögulegum og erfitt fyrir Akureyringa að veita mótspyrnu á móti slíkri umferð. Með skorinu í fyrstu umferðinni hefðu Kópavogsmenn unnið fyrstu lotuna í flestum landsleikjum á EM gegn öðrum þjóðum! Kópavogsmenn í BFB tóku einnig umferð 2 í úrslitaleiknum, en þó með mjög littlum mun 51 á móti 49 stigum frá Akureyringum og staðan því 4-0. Umferð sem Akureyringar sýndu vel í undanúrslitum að þær gætu skorað hærra en þar sem helmingur umferða þeirra var 54 stig í undanúrslitaleiknum. Í þriðju umferðinni sýndu Kópavogsmenn enga miskunn, og Akureyringar náðu ekki góðum lotum eins og undanúrslitum og BF Boginn tók sigurinn í lotunni með littlum mun 52-48 og þeir tóku því einnig sigurinn í gull úrlitaleiknum 6-0.
Með því tryggði BF Boginn sér fimmta Íslandsmeistaratitil sinn í röð í félagsliðakeppni.
BFB2 vann brons úrslitaleikinn 6-0
Íslandsmeistaratitill sveigboga: Bæði gull og brons úrslit enda í bráðabana og Anna vann óvæntan sigur og er Íslandsmeistari allra
Um Íslandsmeistaratitilinn (óháð kyni), „the main event“ þar sem að allir Íslendingar keppa, konur, karlar og allir, voru gífurlega spennandi og líka óvæntar niðurstöður.
Ragnar Þór Hafsteinsson úr BFB komst í gull úrslitaleikinn nokkuð örugglega þó að Baldur Freyr Árnason hafi veitt honum góða mótspyrnu í undanúrslitum þar sem Ragnar tók 6-4 sigur í síðustu lotu leiksins og hélt því í gull úrslitin.
Það var þó ekki eins auðveld leið fyrir Önnu Guðrúnu Yu Þórbergsdóttir úr BFB sem mætti Ragnari í gull úrslitum.
Anna mætti í 16 manna úrslitum Karólínu Karlsdóttir úr sama félagi þar sem Anna vann örugglega 6-0 og hélt því í 8 manna úrslit.
Í 8 manna úrslitum mættust Anna og Akureyringurinn Eva Kristín Sólmundsdóttir úr ÍFA þar sem leikurinn endaði í jafntefli 5-5 og þurfti því bráðabana til að ákvarða sigurvegarann, Eva skaut góða 9 en Anna tók sigurinn með næstum fullkominni 10 í miðju kross skífurnnar.
Anna hélt því í undan úrslit þar sem hún mætti Marín Anítu Hilmarsdóttir úr BFB sem var verjandi titilhafi þar sem hún vann Íslandsmeistaratitilinn innandyra 2025 og var talin mun sigurstranglegri. Þar átti Anna leik lífs síns til dags og tók fyrstu tvær umferðir leiksins 26-28 og 29-28 og staðan í leiknum 4-0. Marín náði þriðju umferð 29-26 4-2, en Anna tók svo fullkomna umferð 10-10-10 náði sigrinum í lotunni 30-28 og því einnig sigrinum í leiknum 6-2.
Verulega óvæntar niðurstöður þar sem Íslandsmeistarinn Marín var með sterka frammistöðu, Anna náði bara ótrúlega góðum leik og tók verðskuldaðann sigur og hélt því í gull úrslitaleikinn.
Gull úrslitaleikurinn á milli Önnu og Ragnars var ekki minna spennandi. Ragnar vann fyrstu lotuna 27-26 og tók því 2-0 forskot í leiknum um titilinn. Anna vann aðra lotu 27-23 og jafnaði leikinn 2-2. Ragnar tók þriðju lotu 27-25 og staðan 4-2. Þau jöfnuðu fjórðu lotu 27-27 og staðan 5-3 og aðeins ein lota eftir af leiknum. Anna varð að vinna síðustu lotuna til að jafna leikinn 5-5 og knýgja fram bráðabana um titilinn, sem hún náði með 27-21 lotu og jafnaði því leikinn 5-5. Ein ör í bráðabana og sá sem hittir næst miðju myndi því ákvarða Íslandsmeistarann 2026. Ragnar skaut 9 og Anna skaut 10 og tók því Íslandsmeistaratitil allra ásamt því að taka sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í meistaraflokki á ferlinum. Ekki amalegt að fyrsti Íslandsmeistaratitilinn sé sá erfiðasti til að vinna og að gera það á eins spennandi máta og raunin var.
Brons leikurinn var ekki minna spennandi en þar mættust Marín Aníta Hilmarsdóttir og Baldur Freyr Árnason bæði Kópavogsmenn úr BFB. Þau jöfnuðu fyrstu lotu 26-26 og staðan því 1-1. Þau skiptust svo á að vinna loturnar alltaf með littlum mun og brons leikurinn endaði einnig í jafntefli 5-5 og því þurfti einnig bráðabana til að ákvarða brons verðlaunahafann. Þar tók verjandi Íslandsmeistari Marín þó sigurinn með 10 á móti 6 frá Baldri og Marín tók því bronsið.
Hér er hægt að smella á og sjá æðsta árangur í sveigboga
Mögulegt verður að finna nánari fréttir um sigurvegara ÍM á archery.is
ÍM U21 og 50+
Íslandsmeistaramót U21 og 50+ í sveigboga var haldið á laugardeginum og þar sýndi BF Boginn yfirgnæfandi frammistöðu og tóku 9 af 9 Íslandsmeistaratitlum sem veittir voru.
Eftirfarandi unnu til Íslandsmeistaratitla í sveigboga U21
- Baldur Freyr Árnason – BFB – Íslandsmeistari U21 (óháð kyni)
- Baldur Freyr Árnason – BFB – Íslandsmeistari U21 karla
- Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir – BFB – Íslandsmeistari U21 kvenna
- BF Boginn – Íslandsmeistari U21 félagsliða
- Baldur Freyr Árnason
- Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir
Eftirfarandi unnu Íslandsmeistaratitla í 50+
- Albert Ólafsson – BFB – Íslandsmeistari 50+ karla
- Albert Ólafsson – BFB – Íslandsmeistari 50+ (óháð kyni)
- BF Boginn – Íslandsmeistari 50+ félagsliða
- Albert Ólafsson
- Oliver Robl
50+ lið BF Bogans (Albert og Oliver) settu einnig Íslandsmetið í félagsliðakeppni með skorið 830.
Mögulegt verður að finna nánari fréttir um sigurvegara ÍM á archery.is



















