You are currently viewing Íþróttaeldhugi ársins verðlaunaður í ár af ÍSÍ

Íþróttaeldhugi ársins verðlaunaður í ár af ÍSÍ

ÍÞRÓTTAELDHUGI ÁRSINS VERÐLAUNAÐUR Í ÁR

Íslendingar hvattir til að senda inn ábendingar um eftirtektarverða sjálfboðaliða í íþróttahreyfingunni.

Ný verðlaun, Íþróttaeldhugi ársins, verða veitt samhliða lýsingu á kjöri Íþróttamanns ársins 2022. Lottó og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands standa fyrir þessari nýbreytni.

Almenningi gefst kostur á að senda inn ábendingar um öfluga sjálfboðaliða til 5. desember á vefslóðinni lotto.is/ithrottaeldhugi en leitað er eftir framúrskarandi sjálfboðaliðum sem hafa í gegnum árin nýtt eigin hæfileika, frítíma og sérþekkingu til að efla íþróttastarf, t.d. með því að vinna í framkvæmd móta/leikja, safna fjármunum, bæta aðstöðu eða auka þátttöku hvar á landinu sem er. Opnað hefur verið fyrir ábendingar en rétt er að geta þess að launað starfsfólk íþróttafélaga kemur ekki til greina.

„Íþróttastarfið á Íslandi stendur í mikilli þakkarskuld við þá einstaklinga sem gefið hafa af tíma sínum til að sinna sjálfboðaliðastarfi fyrir íþróttahreyfinguna. Með þessari viðurkenningu viljum við lyfta upp starfi sjálfboðaliðans og þakka fyrir hið óeigingjarna starf sem unnið er af fjölda fólks um land allt. Við hvetjum einstaklinga til að senda inn tilnefningar” segir Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ.

Sérstök valnefnd hefur verið skipuð en í henni sitja: Þórey Edda Elísdóttir formaður, Bjarni Friðriksson, Dagur Sigurðsson, Kristín Rós Hákonardóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir. Valnefndin mun fara yfir innsendar tilnefningar, velja þrjá aðila og taka lokaákvörðun um hver hlýtur titilinn Íþróttaeldhugi ársins 2022. Íþróttaeldhugi ársins 2022 fær afhentan glæsilegan verðlaunagrip frá Lottó.