Þetta var löng vika af harðri keppni fyrir okkar fólk á European Indoor Championships 2026 (EM innandyra) í Búlgaríu.
389 þátttakendur frá 30 Evrópuþjóðum tóku þátt á EM innandyra að þessu sinni og stór hópur frá Íslandi sem tók þátt.
Ísland vann til fimm verðlauna á EM, 1 brons í meistaraflokki og 2 gull og 2 brons í U21 flokki, allt í liðakeppni. Ísland endaði í 5 sæti á heildar þjóða niðurstöðum EM sem eru ótrúlegar niðurstöður fyrir smáþjóð.

Einstaklingskeppni:
Topp 4 eða hærra = 2 af 32
Topp 8 eða hærra = 4 af 32
Topp 16 eða hærra = 15 af 32
Topp 32 eða hærra = 27 af 32
5 af 32 einstaklings þátttökum Íslands unnu ekki þátttökurétt á EM eftir undankeppni EM.
Aldrei hafa fleiri Íslendingar komist í 16 manna úrslit eða hærra á EM í einstaklingskeppni í meistaraflokki og U21 flokki, og þó að það endurspeglist ekki í verðlaunum eða fjölda í 8 manna úrslitum þá er greinilegt að heildar getustig Íslands hefur hækkað milli ára.
Engin einstaklingsverðlaun unnust að þessu sinni á EM. En Lóa Margrét Hauksdóttir (sem vann silfur á EM 2024) og Baldur Freyr Árnason (sem vann brons á EM 2024 og silfur á EM 2025) töpuðu í brons úrslitum einstaklinga í sínum greinum á EM 2026.
Liðakeppni:
Topp 4 eða hærra = 5 af 16 liðum Íslands
Topp 8 eða hærra = 13 af 16 liðum Íslands
Topp 16 eða hærra = 16 af 16 liðum Íslands
Öll lið komust áfram eftir undnakeppni EM.
Heilt á litið þá voru niðurstöðurnar nokkuð í línu við væntingar og áætlanir. Sumir stóðu sig betur en áætlað var og aðrir verr, eins og sveiflan er á dagsforminu (nánast heppni og óheppni sem jafnast út ef horft er á heildina)
Það er erfitt er að velja eina niðurstöðu eða einn einstaklings til að fjalla sérstaklega um. En Þórdís Unnur Bjarkadóttir sló Íslandsmetið í meistaraflokki trissuboga kvenna í undankeppni EM með 580 stig met sem var 8 ára gamalt og setti hana í 7 sæti í undankeppni EM. Berboga ungmennin stóðu sig vel og Ísland kom næstum til baka með verðlaun í liða og einstaklings karla og kvenna og blandaðri liðakeppni af EM. Það var líka í smá í uppáhaldi að trissuboga U21 kvenna liðið vann bronsið á móti Ítalíu, þar sem Ítalía hefur slegið stelpurnar okkar út í 8 liða úrslitum síðust 3 EM og var því sætur sigur og í fyrsta sinn sem Ísland náði verðlaunum í þeirri grein.
Verðlaun og verðlaunahafar Íslands á European Indoor Championships 2026 (EM innandyra 2026)
Berbogi karla U21 lið Evrópumeistarar (Gull)
- Baldur Freyr Árnason
- Ragnar Smári Jónasson
- Henry Johnston
Berbogi kvenna U21 lið Evrópumeistarar (Gull)
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir
- Lóa Margrét Hauksdóttir
- Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir
Trissubogi kvenna lið meistaraflokkur 3 sæti (brons)
- Freyja Dís Benediktsdóttir
- Anna María Alfreðsdóttir
- Eowyn Marie Mamalias
Trissubogi kvenna U21 lið 3 sæti (brons)
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir
- Sóldís Inga Gunnarsson
- Eydís Elide Sartori
Berbogi U21 blandað lið (mixed team)
- Baldur Freyr Árnason
- Lóa Margrét Hauksdóttir
Undankeppni EM 2026 15-17 febrúar
Frá Íslandi voru 16 lið og 32 einstaklingar sem tóku þátt í undankeppni EM.
Öll 16 liðin og 27 af 32 einstaklingum komust áfram eftir undankeppni EM. (Topp 32 einstaklingar og topp 16 lið halda áfram á EM eftir undankeppni EM).
Hér er hægt að finna lista af Íslensku keppendunum í undankeppni EM úr alþjóðaskorskráningarkerfinu Ianseo

Lokakeppni og Úrslit EM 18-21 febrúar
Ísland lék 55 leiki samtals í lokakeppni og úrslitum EM. Illgerlegt er að fjalla um hvern einasta leik, enda oft margir leikir í gangi á vellinum á sama tíma í mörgum greinum, en hér eru nokkrir leikir sem voru eftirtektarverðir eða skemmtilegir af ýmsum ástæðum sem er gaman að nefna (biðjumst afsökunar til þeirra sem við fjölluðum ekki um):

Súrt að komast ekki í gull úrslitin í berboga mixed team þar sem það var alveg geranlegt á réttum degi. En við náðum allavega bronsinu á móti Rú…. hehem liði Individual Neutral Athletes 😅

Þetta var sár leikur að tapa í 8 liða úrslitum. Liðið okkar var einstaklega sterkt í 4 sæti í undankeppni EM og taldar góðar líkur á því að Ísland gæti leikið um um verðlaun í trissuboga mixed team. En svona er íþróttin, upp og niður, stundum vinnum við „underdog“ leiki og því þarf það sama að gilda á móti okkur að við getum tapað gegn „underdogs“. Samt vel gert hjá báðum í mjög jöfnum leik.

Glæsilegt hjá stelpunum okkar í trissuboga U21 kvenna sem unnu eilítið sterkari þjóð Danmörku í 8 liða úrslitum, töpuðu undan úrslitum gegn Rú… hehem liði Individual Neutral Athletes og tóku svo bronsið á móti sterkara liði Ítalíu í jafntefli og bráðabana sem Ísland vann. Gaman er að geta þess að Ítalía hefur slegið Ísland út síðustu þremur EM innandyra í röð í öllum tilfellum í 8 liða úrslitum (var farið að kalla þetta Ítölsku álögin), því var þessi sigur sérlega sætur sigur fyrir stelpurnar okkar, enn betra að það var um bronsið frekar en í 8 liða úrslitum eins og á síðustu 3 EM 😉

Stelpur, ég veit að þetta var Ísland vs Ísland leikur, en þið þurftuð ekki að gera hann spennandi, jafna leikinn og ákveða hver kæmist áfram í bráðabana, hvað var í gangi 😂

Lóu fannst súrt að tapa bronsinu á EM, sérstaklega af því að hún var ekki að skjóta sitt besta í brons leiknum. En 4 sæti er samt frábær árangur á aðeins öðru EM sem Lóa keppti á. Lóa vann óvænt silfur á sínu fyrsta EM árið 2024 (næstum gullið) sem setti eðlilega sjálfsvæntingarnar í botn. En mörg EM eftir á ferli Lóu 😉

Alltaf endar það Locchi vs Baldur í undanúrslitum í berboga U21 á EM. Locchi vann 2024 í undanúrslitum og Baldur tók bronsið á móti Frakka, Baldur vann í undanúrslitum 2025 og Locchi tók bronsið, 2026 vann Locchi undanúrslitin. Ekki spyrja hvað gerðist í brons úrslitunum, við skiljum það ekki sjálfir, var ekkert að, bara einn af þesssum dögum 😅


Sóldís? Varst þú næstum búin að vinna þig upp í 8 manna úrslit á EM? Uuuu var það á planinu? Sóldís kom sterk inn og vann leik gegn Dana í 32 manna úrslitum og var ekki langt frá því að vinna Króata í 16 manna úrslitum, í báðum tilfellum var hún „underdog“. Eins og við segjum bogfimi er upp og niður, win some lose some allt getur gerst (samt alltaf meira gaman að vera win some megin hehe)


Þórdís alltaf sterk. Var talin líkleg til að komast í 8 manna úrslit eða hærra á EM þar sem hún var í 7 sæti í undankeppni EM. En Danski „underdoginn“ náði sigrinum í 16 manna úrslitum með frábærum leik. Kannski hefnd fyrir að Sóldís vann annan Dana sem underdog og þetta var reverse leikur? Eða bara þetta venjulega upp og niður eftir aðstæðum? Við getum allavega sagt miðað við framförina hjá Þórdísí á síðustu tveim árum að líkurnar á því að hún keppi til verðlauna í þessari grein í framtíðinni í einstaklingskeppni á EM, eða jafnvel vinni mótið, séu sífellt að aukast. Enda var þetta fyrsta formlega árið hennar í U21 flokki og hún á 2 ár eftir.

Tíurnar ósamvinnuþýðar í meirihluta leiksins hjá Magnúsi, en þær byrjuðu að svara í lokin, bara of seint til að ná sigri í 32 manna úrslitum. En mjög efnilegur ungur drengur.

Þessi leikur var óþægilegur. Ragnar skoraði það hátt í undankeppni EM að hann sat hjá í 32 manna úrslitum og hélt beint í 16 manna úrslit. Leikurinn var það jafn að það var nánast bara heppni hvor náði að snerta 10 línuna á sínum örvum þar sem að allar voru „liner-ar“. Þurfti bara 10 á síðustu örinni til að knýgja fram bráðabana, en var nía. En svona er það upp og niður, en alltaf ánægulegt að tapa þegar maður er að skora innan eðlilegra marka á sínu meðaltali (þó að meðaltalið sé nær 145 😅).

Vala vinnur fyrsta leikinn í 32 manna úrslitum EM í mjög jöfnum og spennandi leik. En hvernig getur maður svo unnið leik 2 gegn andstæðingi sem skorar fullkomið skor í öllum umferðum? Og það er eini leikurinn af öllum 64 leikjum allra keppenda á öllu EM í greininni þar sem einhver nær 30-30-30? …. Uuuu gera það sama og skora allar örvar fullkomið? 😬 jafna leikinn og vinna með ör nær miðju í bráðabana? 😅 Ekki beint tölfræðilega líklegt að slíkt geti gerst. Þannig að tap sem maður getur vel sætt sig við.

Heba gaf okkur næstum hjartaáfall og var næstum búin að tapa fyrsta leiknum í 32 manna úrslitum berboga kvenna með því að byrja 4-0 undir og taka leikinn svo í bráðabana og vinna bráðabanann með 8 nær miðju 😅 hjúkk þetta var spennandi leikur.

16 manna úrslitum í berboga kvenna einn af þessum leikjum þar sem að skorin í öllum umferðunum lenda rétt fyrir andstæðinginn til að vinna og ekkert hefði mátt fara öðruvísi. Virðist gerast óvenju oft fyrir Guðbjörgu á síðustu fjórum EM 😅

Þegar maður kemst ekki í 8 manna úrslit út af einni úps umferð… andvarpar maður og horfir á næsta mót 😊

1 stig… alltaf 1 stig… WHYYYYYY. Vel gert hjá okkar fólki… en megum við biðja um einu stigi hærra í framtíðinni til að kom okkur í 8 liða úrslit 😉

Öööö jahá, þegar andstæðingurinn skorar í 32 manna úrslitum eina fullkomna skorið af öllum keppendum í 32 manna úrslitum í leiknum á móti manni … lítið sem maður getur gert í því, ef að allir aðrir á EM hefðu líka tapað leiknum 😅

Danmörk… heimsmet í leiknum á móti Íslandi… really? Gátuð þið ekki slegið heimsmetið í leik á móti einhverju öðru landi í 8 liða úrslitum 😭 (pssst samt vel gert hjá ykkur frændur)

…. Frakkland … Ein nía? Í öllum leiknum…? Really? Þið gáfuð ekki mikið færi á ykkur á móti Íslandi 🤨 (En þið unnuð gullið á EM með 234 stig í úrslitaleiknum þannig að við látum það sleppa hehe)
Bíddu áhugavert var Alfreð í öllum þessum þremur leikjum þar sem andstæðingarnir skoruðu fullkomið eða einu stigi frá því á móti Íslandi 🤔 Það var ekki fimmtugs afmælisgjöfin sem Alfreð hafði í huga 😂

Heimaland á heimavelli í 16 liða úrslitum, ekkert mál fyrir Jón Pál. Hvað gerist svo þegar að Íslenska liðið mætir „dream team“ frá Ítalíu í 8 liða úrslitum berboga? Við töpum (Ítalirnir hafa unnið síðustu 3 gull á World Games, sem eru „Ólympíuleikar“ berboga. Ítalía er sterkasta þjóðin í berboga og Ísland var underdog. Hefði verið epic underdog leikur að sigra og samt ekki gífurlega mikill munur á milli í stigum 😅)
Frekar gott í berboga kvenna liðakeppni miðað við að Astrid var að keppa í liðakeppni sveigboga og berboga flokki á sama tíma á vellinum og þurfti að ganga rösklega frá skormarki 7 á skotmark 40 í hverri umferð. Heba og Guðbjörg sögðu að Astrid væri að skjóta betur ef eitthvað var en venjulega. En Astrid psych-aði sjálfa sig á síðustu örinni og skaut framhjá þegar hún sá að stelpurnar gætu jafnað leikinn, komist í bráðabana og komist aftur í úrslit um verðlaun eins og síðustu 2 EM (4 sæti EM 2024, 3 sæti EM 2025) ef hún myndi skjóta 7 eða hærra, þannig að hún skaut miss. (Bretarnir dáðust að Íslandi að venju og vildu óska að hugarfarið almennt og aðferðafræðin í afreksstarfi í Bretlandi væri það sama og er í afreksstarfi á Íslandi)
Íslandsmet sem slegin voru á EM
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir Trissubogi kvenna meistaraflokkur 580 stig, metið var 576 og er 8 ára gamalt
- Þórdis Unnur Bjarkadóttir Trissubogi kvenna U21 undankeppni 580 stig, metið var áður 575 stig
- Berbogi mixed team undankeppni meistaraflokkur landsliðsmet 999 stig
- Heba Róbertsdóttir
- Helgi Már Hafþórsson
- Trissubogi mixed team undankeppni meistaraflokkur landsliðsmet 1164 stig
- Alfreð Birgisson
- Eowyn Mamalias
- Trissubogi mixed team útsláttur meistaraflokkur landsliðsmet 152 stig
- Alfreð Birigsson
- Eowyn Mamalias
- Sveigbogi mixed team undankeppni meistaraflokkur landsliðsmet 1104 stig
- Ari Björk
- Valgerður Hjaltested
- Berbogi mixed team U21 undankeppni landsliðsmet 825 stig
- Ragnar Smári Jónasson
- Lóa Margrét Hauksdóttir
- Trissubogi mixed team U21 undankeppni landsliðsmet 1164 stig
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir
- Ragnar Smári Jónasson
- Trissubogi mixed team U21 útsláttur landsliðsmet 152 stig
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir
- Ragnar Smári Jónasson
- Sveigbogi mixed team U21 undankeppni landsliðsmet 1017 stig
- Baldur Freyr Árnason
- Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir
- Sveigbogi kvenna lið meistaraflokkur undankeppni landsliðsmet 1610 stig, var áður 1549 stig
- Valgerður Hjaltested
- Astrid Daxböck
- Marín Aníta Hilmarsdóttir
- Trissubogi karla U21 undankeppni landsliðsmet 1670 stig, var áður 1662 stig
- Ísar Logi Þorsteinsson
- Magnús Darri Markússon
- Ragnar Smári Jónasson
- Berbogi kvenna meistaraflokkur undankeppni landsliðsmet 1320 stig, var áður 1250 stig
- Astrid Daxböck
- Heba Róbertsdóttir
- Guðbjörg Reynisdóttir
- Trissubogi karla meistaraflokkur útslattarkeppni landsliðsmet 227 stig, var áður 226 stig (12 ára gamalt met frá HM 2014)
- Natan Eir Skov Jensen
- Alfreð Birgisson
Dagur Örn Fannarsson
- Trissuboga kvenna U21 útsláttarleikur landsliðsmet 227 stig, en metið var áður 222 stig (slógu metið þrisvar á EM 2026)
- Sóldís Inga Gunnarsdóttir
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir
- Eydís Elide Sartori
- Nálægt Íslandsmetinu
- Ragnar Smári Jónasson trissubogi karla meistaraflokkur undankeppni með 584 stig, en metið er 587 stig
- Ragnar Smári Jónasson trissubogi karla U21 undankeppni með 584, sem jafnar núvernadi met 584 stig
- Valgerður E. Hjaltasted sveigbogi meistaraflokkur kvenna undankeppni með 562, en metið er 564 stig
- Helgi Már Hafþórsson Berbogi karla undankeppni meistaraflokkur með 512 stig, en metið er 518 stig
- Trissuboga kvenna meistaraflokkur útsláttarleikur 227 stig, sem jafnar núverandi kvenna metið 227 stig Sóldís/Eydís/Þórdís (Þær jöfnuðu líka karla m.fl. metið, U21 kvenna liðið okkar er sterkt enda tóku þær brons á EM 😉)
Hvar bætti Ísland sig?
Hér er farið stutt yfir þá þætti sem Ísland bætti sinn besta árangur í sögu íþróttarinnar á EM innandyra 2026 frá fyrri niðurstöðum. Semsagt hvar var besti árangur Íslands í sögu íþróttarinnar bættur eða jafnaður:
- Hæsta niðurstaða Íslands í þjóða medal standings (heildarniðurstöðum mótsins) í sögu íþróttarinnar 5 sæti 2026, var best áður 7 sæti á EM 2025 og 11 sæti á EM 2024.
- Besti árangur liðs í sögu íþróttarinnar á EM innandyra:
- Berboga kvenna U21 lið: 1 sæti undankeppni, var best áður 2 sæti EM 2024.
- Berboga kvenna U21 lið: 1 sæti lokakeppni, var best áður 2 sæti EM 2024.
- Trissuboga kvenna U21 lið: 3 sæti lokakeppni, var best áður 5 sæti á EM 2024 og EM 2022 (fyrstu verðlaun Íslands í greininni!)
- Trissuboga karla U21 lið: Hæsta skor í undankeppni 1670 stig, var áður best 1662 á EM 2022.
- Berboga meistaraflokks lið kvenna: Hæsta skor í undankeppni 1320 stig, var áður best 1186 stig á EM 2024
- Sveigbogi meistaraflokkur lið kvenna: Hæsta skor í undankeppni 1610, var áður best 1549 stig á EM 2025
- Besti árangur í einstaklingskeppni í sögu íþróttarinnar á EM innandyra:
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir: Trissubogi U21 kvenna einstaklinga: Hæsta skor í undankeppni EM 580 stig, var áður best 572 stig frá EM 2022
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir: Trissubogi U21 kvenna einstaklinga: Hæsta sæti í undankeppni EM 7 sæti, var áður best 12 sæti á EM 2024
- Ragnar Smári Jónasson: Trissubogi U21 karla einstaklinga: Hæsta skor í undankeppni EM 584 stig, var áður best 574 stig á EM 2025
- Valgerður E. Hjaltested: Sveigbogi meistaraflokkur kvenna einstaklinga: Hæsta skor í undankeppni EM 562, var áður best 552 stig árið 2024
- Eowyn Mamalias: Trissubogi meistaraflokkur kvenna einstaklinga: Hæsta sæti í undankeppni EM 10 sæti Eowyn, var áður best 11 sæti frá EM 2024
- Helgi Már Hafþórsson: Berbogi meistaraflokkur karla einstaklinga: Hæsta skor í undankeppni EM 512 stig, var áður best 486 stig á EM 2025
- Jafnaður besti árangur á EM innandyra í sögu íþróttarinnar:
- Trissuboga kvenna U21 lið: 5 sæti undankeppni, jafnað besta á EM 2024 og EM 2022.
- Trissuboga meistaraflokks lið kvenna: 3 sæti í lokakeppni, jafnaði árangur frá EM 2025 og EM 2024
- Trissuboga meistaraflokks lið kvenna: 3 sæti í undankeppni, jafnaði árangur frá EM 2025 og EM 2024
- Berboga karla U21 lið: 1 sæti undankeppni, jafnað árangri EM 2024
- Berboga karla U21 lið: 1 sæti lokakeppni, jafnað árangri EM 2024
- Trissubogi meistaraflokkur karla lið: 6 sæti í undankeppni EM, jafnað frá EM 2025 og EM 2024
- Valgerður E. Hjaltested: Sveigbogi kvenna meistaraflokkur, jafnaði besta lokasæti á EM í greininni 9 sæti, sama og frá EM 2024
- Trissubogi meistaraflokkur karla einstaklinga: 17 sæti í lokakeppni EM (Margir sem hafa náð því, Gummi, Albert, Alfreð, Magnús, Dagur, Benedikt á EM 2022, 2024, 2025 og Natan/Alfreð/Dagur jöfnuðu það 2026)
- Trissubogi meistaraflokkur kvenna einstaklinga: 9 sæti í lokakeppni EM (Margar sem hafa náð því, Matthildur, Anna, Ewa, Eowyn, Freyja, á EM 2024, 2025 og Anna/Eowyn/Freyja jöfnuðu það 2026)
- Helgi Már Hafþórsson: Berbogi meistaraflokkur karla einstaklinga: 20 sæti í undankeppni EM, jafnað frá EM 2024
Mixed team var ný viðbót á EM innandyra 2026 og þetta því fyrsta EM innandyra með mixed team keppni og því allur árangur í undankeppni, skori og lokasæti sá besti (eini) sem Ísland hefur náð í sögu íþróttarinnar. En við förum ekki yfir listann af þeim 18 niðurstöðum sérstaklega vegna þess.
Íþróttastjóri kreistur eftir sigurinn og fyrstu verðlaun Íslands í trissuboga U21 kvenna
Stuðningsliðið á vellinum að fylgjast með leikjum hinna
Alltaf vinalegt milli Færeyjinga og Íslendinga og vinaleg samkeppni þó að við höfum aldrei keppt beint á móti Færeyjum á EM þá berum við saman skorin eða hver kemst lengra. Bæði lönd voru slegin út í 8 liða úrslitum, Ísland skoraði 227 stig í trissuboga karla liðakeppni gegn Frakklandi og Færeyjar skoruðu 225 stig gegn Ítalíu þannig að Ísland vann í þetta sinn hehe
Hannes sjúkraþjálfari lét fólk gráta í búnaðargeymslunni og víðar (á góðann veg hehe)
Hvernig kemur maður næstum 400 þátttakendum fyrir á einum keppnisvelli? Skiptir þeim niður í marga hópa og keyrir keppnisvöllinn 12 tíma á dag í 7 daga án hléa.
Þegar maður er ekki sáttur við skotið
Þegar maður er sáttur við skotið
Þegar maður vinnur til fyrstu verðlauna í sinni keppnisgrein í sögu Íslands í bráðabana
Það er bara svo mikið sem gerðist á þessari EM viku að það er ómögulegt að koma því öllu fyrir í einni frétt. Eins og er hægt að átta sig á á myndinni fyrir neðan sem eru allar niðurstöður Íslands af EM 2026… sem er ansi langur niðurstöðulisti og lengist meir og meir með meiri árangri, og það er saga á bakvið hverja einustu niðurstöður. En að venju verða skrifaðar nánari fréttir um hvern og einn keppanda á archery.is fréttavefnum strax og tími gefst.

Mögulegt er að finna frekari upplýsingar um EM á:
Smá inside brandarar fyrir keppendur 😉
- Alfreð verður „Happy“ á EM á sextugs afmælinu 2036
- Natan snýr alltaf í ranga átt
- Dagur hitti 10!
- Anna Yu hitti 10!
- Það tók Ragnar Þór 10 ár í að hitta ör á EM
- Ari er orðinn gamall
- Eowyn fann kaffi!
- Önnu Maríu vantar linsur
- Freyja er hundurinn úr Up! bara fyrir ketti
- Baldur Rawwwrrrrrr
- Lóa sannfærði dómara
- Ragnar Smári skoppaði
- Magnús fann eitthvað í rúmminu
- Sóldís vill kattarbogfimi
- Eydís var öll í fléttu
- Þórdís convert-aði heimalandi DJ
- Astrid hatar run-archery
- Guðbjörg er ósammála línunum
- Heba outsource-aði labbið
- Helgi var víraður yfir vírunum
- Sölvi var í berboga karla og berboga kvenna
- Allir Þorsteinsson eru Þorsteinsson, en ekki allir Ísar eru Izaar.
- Marín labbar fyrir Dag dags daglega
- Vala vill að allir snúi hinsegin
- Börnin gráta út af Hannes
- Enginn týndi símanum (lengi)
- Enginn týndi vegabréfinu (lengi)
- Rútan var þreytt og þurfti að taka sér regluleg hlé
- Lögreglan tók á móti keppendum á Íslandi
- Akureyringar pössuðu ekki í bílinn og sendu töskurnar með flugi
- Gummi lifði af
Næstu mót á dagskrá eru Íslandsmótin í sveigboga og trissuboga. Munið að skrá ykkur!!























You must be logged in to post a comment.