Þrír keppendur kepptu fyrir Íslands hönd á Veronicas Cup World Ranking Event í Kamnik Slóveníu sem haldið var um helgina 29 maí – 2 júní.
Heilt á litið var fínn árangur hjá okkar stelpum sem unnu marga leiki, lokaniðurstöður þeirra voru:
- Freyja Dís Benediktsdóttir – 5 sæti – Trissuboga kvenna U21
- Marín Aníta Hilmarsdóttir – 33 sæti – Sveigboga kvenna
- Valgerður Hjaltested – 17 sæti – Sveigboga kvenna
Mögulegt er að lesa nánari fréttir um árangur hvers einstaklings á fréttavefnum archery.is