You are currently viewing 12 Íslendingar keppa til verðlauna á EM í beinu streymi

12 Íslendingar keppa til verðlauna á EM í beinu streymi

Flott gengi var hjá Íslensku keppendunum á EM í Króatíu í dag þar sem að keppt var í 8 manna úrslitum og 8 liða úrslitum EM í dag og Ísland mun leika um 6 verðlaun á EM 2024

Í liðakeppni á morgun (föstudag) mun Ísland keppa um 4 verðlaun í úrslitaleikjum. Sýnt verður beint frá gull og brons úrslitaleikjum EM í beinu streymi World Archery Europe á Youtube síðu þeirra hér:

https://www.youtube.com/@worldarcheryeurope/streams

  • Berboga U21 kvenna liðið keppir við Bretland í gull úrslitaleiknum kl 09:30
    • Liðið skipa
      • Lóa Margrét Hauksdóttir – úr Boganum í Kópavogi
      • Heba Róbertsdóttir – úr Boganum í Kópavogi
      • Maria Kozak – úr Skotfélagi Ísafjarðar
Berboga kvenna U21 liðið f.v.. Maria, Heba, Lóa
  • Berboga kvenna liðið Meistaraflokkur keppir við Serbíu í brons úrslitaleiknum kl 09:50
    • Liðið skipa
      • Guðbjörg Reynisdóttir – úr Hróa Hetti í Hafnafirði
      • Astrid Daxböck – úr Boganum í Kópavogi
      • Rakel Arnþórsdóttir – úr Akur á Akureyri
Úr undanúrslitaleiknum á móti Ítalíu í berboga kvenna. Íslendingar f.v. Astrid, Guðbjörg og Rakel
  • Berboga karla liðið M.fl. keppir við Serbíu í brons úrslitaleiknum kl 10:25
    • Liðið skipa
      • Sveinn Sveinbjörnsson – úr Boganum í Kópavogi
      • Sölvi Óskarsson – úr Boganum í Kópavogi
      • Izaar Arnar Þorsteinsson – úr Akur á Akureyri
Úr undanúrslitaleik við Ítalíu. Íslendingar f.v. Izaar, Sveinn og Sölvi
  • Sveigboga kvenna liðið M.fl. keppir við Moldóvu í brons úrslitaleiknum kl 17:30
    • Liðið skipa
      • Marín Aníta Hilmarsdóttir – úr Boganum í Kópavogi
      • Valgerður Einarsdóttir Hjaltested – úr Boganum í Kópavogi
      • Astrid Daxböck- úr Boganum í Kópavogi
Úr undanúrslitaleiknum á móti Úkraínu í sveigboga kvenna

Tímarnir eru í staðartíma, þannig að minus 1 klst fyrir Íslenskan tíma á úrslitaleikjunum

Á laugardaginn er svo Ísland að keppa um 2 verðlaun í einstaklingskeppni.

  • Lóa Margrét Hauksdóttir úr Boganum í Kópavogi keppir um gull verðlaunin í berboga kvenna U21 á móti Isabel Plowman frá Bretlandi kl 09:15
Lóa í undankeppni EM
  • Baldur Freyr Árnason úr Boganum í Kópavogi keppir í brons úrslitaleiknum í berboga karla U21 á móti Bastien Bardo Causse frá Frakklandi kl 09:35
Í 8 manna úrslitum mætti Baldur Austurríkismanni og leikurinn endaði jafn 5-5 og þurfti því bráðabana til að ákvarða sigurvegara. Ein ör nær miðju og Baldur tók öruggann sigur með því að smella einni í tíuna á móti 8 stigum Austurríkismannsins

Skrifaðar verða ítarlegri fréttir um okkar fólk, lið og framvindu mála á EM þegar að mótinu lýkur. En keppnisdeginum í dag var að ljúka og verið að reyna að koma í loftið upplýsingum um þá úrslitaleiki sem Ísland keppir í svo að þeir sem eru heima geti fylgst með.

European Indoor Championships er haldið í ár í Varazdin Króatíu og það eru 34 keppendur og 11 lið frá Íslandi að keppa á mótinu sem er stærsta lið sem Ísland hefur skipað á EM til dags. Þannig að gífurlega mikið er búið að ganga á í keppnum, leikjum og niðurstöðum í vikunni, því verða ítarlegar fréttir um hvern keppanda birtar síðar.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá heildarniðurstöðu lista Íslands á mótinu úr alþjóðlega úrslitabirtingakerfinu