Munið að skrá ykkur á Íslandsmót innandyra fyrir skráningarfrestinn. Allir sem vilja mega taka þátt, við viljum sjá sem flesta á mótunum. Við viljum líka minna á að þeir sem skrá sig eftir skráningarfrestinn þurfa að greiða tvöföld keppnisgjöld og geta aðeins tekið þátt ef pláss er í skipulagi fyrir þá og því vel þess virði að skrá sig snemma. Skráningarfrestur á Íslandsmót U16/U18 og U21 lýkur 16 október
Aðildarfélög BFSÍ eru einnig beðin um að dreifa þessum upplýsingum innan sinna raða, aðstoða sína iðkendur við skráningar/þátttöku og hvetja til keppni á Íslandsmótunum.
Undir venjulegum kringumstæðum væru Íslandsmót innandyra haldin í febrúar/mars á hverju ári en ákveðið var snemma á þessu ári að halda þau frekar seinna á árinu vegna stöðu á heimsfaraldrinum svo að mögulegt væri að halda mótin með venjulegu sniði.
Hægt er að finna upplýsingar um Íslandsmótin og skráningar í mótakerfi BFSÍ https://mot.bogfimi.is/ og á archery.is
Hægt er að fylgjast með stöðu skráninga hér Íslandsmót U16/U18 – Íslandsmót U21 – Íslandsmót Öldunga – Íslandsmeistaramót (skráningar eru uppfærðar handvirkt)