You are currently viewing Helgi og Guðrún Íslandsmeistarar og Akureyringar taka félagsliðatitilinn á ÍM í langboga/hefðbundnum bogum utandyra 2026

Helgi og Guðrún Íslandsmeistarar og Akureyringar taka félagsliðatitilinn á ÍM í langboga/hefðbundnum bogum utandyra 2026

Íslandsmeistaramótið utandyra 2026 í Langboga/hefðbundnum bogum meistaraflokki var haldið í Fagralundi í Kópavogi sunnudaginn 21 júní síðastliðinn.

Veður aðstæður á mótinu voru óvenju frábærar, það var auðsjáanlegt á því að öll Íslandsmetin í langboga meistaraflokki féllu á ÍM í ár. Bæði var gott skjól í kringum svæðið og veðurguðirnir voru í góðu skapi og gáfu keppendum sól og blíðu meiri hluta mótsins. Það er ólíkt flestum ÍM síðasta áratug þar sem oftar en ekki hefur verið gul eða appelsínugul veðurviðvörun akkúrat þá helgi sem Íslandsmeistaramótin í meistaraflokki hafa verið haldin.

Helgi Már Hafþórsson í Íþróttafélaginu Akur á Akureyri var sigursæll á ÍM og tók bæði Íslandsmeistaratitil karla og Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni í báðum tilfellum í úrslitaleikjum gegn nýliðanum Ralfs Simanis úr Langbogafélaginu Freyju í Reykjavík.

Helgi var efstur á ÍM í undankeppni karla og undankeppni óháð kyni þar sem hann sló Íslandsmetið með næstu 100! stigum, en metið var 537 stig og Helgi skoraði 632 stig (af 720 mögulegum). Það mun því enginn geta hækkað Íslandsmetið jafn mikið í framtíðinni og Helgi var í raun höfðinu hærri en aðrir keppendur í langboga í skori. Vegferðin í úrslitin var þó erfið á tímum og í undanúrslitum mátti littlu muna um báða titlana að andstæðingar Helga slægju hann út af mótinu eða frá gullinu (6-4 sigur í karla og 5-5 bráðabani um titilinn óháð kyni sem Helgi vann). En það var enginn vafi á því hver skaraði mest framúr í langboganum á ÍM 2026 það var vafalaust Helgi.

Guðrún Þórðardóttir úr Langbogafélaginu Freyju í Reykjavík bætti sitt eigið Íslandsmet um 22 stig þegar hún skoraði 545 stig í undankeppni ÍM langboga kvenna. Guðrún tryggði sér svo sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil einstaklinga þegar hún vann úrslitaleikinn örugglega 6-0 gegn liðsfélaga sínum Lea Elflein. En Guðrún var ekki langt frá því að slá Helga út í merkilega spennandi leik í undanúrslitum um titilinn óháð kyni. Þar var Guðrún 5-1 yfir en Helgi náði svo að jafna 5-5 og knýja fram bráðabana sem Helgi vann 10-7, Guðrún var því aðeins bráðabana (ein ör nær miðju vinnur) frá því að keppa um titilinn óháð kyni líka.

Í félagsliðakeppni voru Reykjavíkurmenn í Langbogafélaginu Freyju að verja Íslandsmeistaratitil sinn frá 2025 og það byrjaði vel með nýju Íslandsmeti félagsliða 1575 stig í undankeppni ÍM, en Akureyringar í ÍF Akur voru stutt fyrir aftan og einnig yfir eldra Íslandsmeti með 1568 stig. Þessi lið mættust í gull úrslitaleiknum, þar sem Akur tók sigurinn 6-2 og sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í félagsliðakeppni langboga.

Íslandsmeistarar ÍM Langboga/hefðbundnum bogum utandyra 2026

  • Íslandsmeistari langboga óháð kyni – Helgi Már Hafþórsson – ÍF Akur Akureyri
    • Silfur Ralfs Simanis LFF
    • Brons Sveinn Sveinbjörnsson BFB
  • Íslandsmeistari langboga kvenna – Guðrún Þórðardóttir – LF Freyja Reykjavík
    • Silfur Lea Elflein LFF
    • Brons Tinna Guðbjartsdóttir LFF
  • Íslandsmeistari langboga karla – Helgi Már Hafþórsson – ÍF Akur Akureyri
    • Silfur Ralfs Simanis LFF
    • Brons Sveinn Sveinbjörnsson BFB
  • Íslandsmeistari langboga félagsliða – Lið Íþróttafélagsins Akur á Akureyri
    • Liðsmenn
      • Izaar Arnar Þorsteinsson
      • Helgi Már Hafþórsson
      • Óliver Þór Wendel

Íslandsmet og markverð skor á ÍM26 í langboga/hefðbundnum bogum utandyra:

  • Helgi Már Hafþórsson ÍFA – Íslandsmet Langboga karla meistaraflokkur 632 stig – Metið var áður 537 stig Gummi
    • Ralfs Simanis LFF 589 stig og Sveinn Sveinbjörnsson BFB 587 stig skoruðu einnig yfir Íslandsmetinu, enda veður aðstæður áskjósanlegar, en Helgi sló það betur og tók því metið.
  • Guðrún Þórðardóttir LFF – Íslandsmet Langboga kvenna meistaraflokkur 545 stig – Metið var áður 523 og Guðrún átti það sjálf frá síðasta ári
  • Langbogafélagið Freyja Reykjavík – Íslandsmet Langboga félagsliðakeppni meistaraflokkur 1575 stig – Metið var áður 1485 stig
    • Liðsmenn
      • Ralfs Simanis
      • Guðrún Þórðardóttir
      • Lea Elflein
    •  ÍF Akur var hart á hælum LFF Freyju í undankeppni með 1568 stig sem er einnig vel yfir eldra Íslandsmeti, en metið helst í Reykjavík.

Langbogi og hefðbundnir bogar (traditional) er nýjasta keppnisgrein innan BFSÍ, þar sem að tveir svipaðir bogaflokkar eru sameinaðir í einn flokk á Íslandi sem mætti kalla „gamaldags bogar“ eða „viðarbogar“ og Íslandsmeistartitlar í greininni voru fyrst veittir árið 2025. Bæði Longbow og Traditional hafa verið á HM/EM í 3D og NM í marga áratugi en almennt sem þátttöku minnstu greinarnar, þar sem mun meira af iðkendum stunda greinina til gamans og vegna sögulegra verðmæti þeirra frekar en til keppni og afreka. Þó er gaman að nefna að eðlilega var keppt með langbogum á Ólympíuleikum í upphafi fyrir um 130 árum og íþróttin hefur þróast og breyst mikið á síðustu öldum alþjóðlega.

https://bogfimi.smugmug.com/%C3%8DM-%C3%BAti-Langboga-og-sveigboga/i-nT3rpkB/A

Um Íslandsmeistaramótið utandyra í bogfimi í heild sinni í öllum greinum um helgina.

Skráningar á Íslandsmótum hafa ekki verið hærri síðan fyrir kórónuveirufaraldurinn og ÍM núna var aðeins 6 skráningum frá því að jafna hæsta fjölda keppenda á ÍM utandyra til dags.

Sýnt var beint frá úrslitaleikjum ÍM á Archery TV Iceland Youtube rásinni sem er hægt að finna hér

Niðurstöður er hægt að finna í skorskráningarkerfinu á vefsíðunni ianseo.net https://www.ianseo.net/Details.php?toId=28303

Myndir er hægt að finna á Smugmug BFSÍ hér https://bogfimi.smugmug.com/

Í raun er um að ræða fjögur Íslandsmeistaramót sem haldin eru sömu helgi. Þessi frétt fjallar aðeins um eitt af þeim.

  • ÍM Berboga á laugardegi
  • ÍM Trissuboga á laugardegi
  • ÍM Sveigboga á sunnudegi
  • ÍM Langboga á sunnudegi

Mögulegt er að finna fréttir um hvert Íslandsmeistaramót í sér fréttagrein á heimsíðu BFSÍ bogfimi.is og fréttir um einstaka sigurvegara og einstaklings árangur á archery.is bogfimifréttavefnum á næstu dögum þegar að Gummi hefur haft tíma til að skrifa fréttirnar 😉

Á ÍM í hverri grein er keppt um fjóra Íslandsmeistaratitla

  • Einstaklingstitil karla (þeir sem skráðir eru karlar í þjóðskrá)
  • Einstaklingstitil kvenna (þeir sem skráðir eru konur í þjóðskrá)
  • Einstaklingstitil óháð kyni (allir Íslendingar óháð kynskráningu í þjóðskrá. Karlar, konur, kynsegin, allir. Titli sem BFSÍ bætti við árið 2023 bæði til að skapa grundvöll fyrir kynsegin/annað fólk í þjóðskrá til að geta keppt um titil og búa til formlegt umhverfi þar sem konur og karlar gætu keppt gegn hvert öðru)
  • Félagsliðatitill (3 manna félagslið óháð kyni)

Keppnisdagarnir eru langir og oftast um 12 tímar fyrir keppendur (08:00-20:00) og mun lengri fyrir mótastaffið (á sunnudegin var það frá 07:00-02:00 fyrir sumt staffið, farið að nálgast 24 tíma daga).

Líklegt er að 2027 verði ÍM utandyra í meistaraflokki skipt niður þannig að hver grein verði á sér degi með sambærilegu fyrirkomulagi og þegar er gert á ÍM innandyra. M.a. til að stytta keppnisdaginn fyrir keppendur, minnka álagið á mótastarfsfólk, gera það jafnvel kleift fyrir marga keppendur utan af landi að geta tekið morgunflug (eða keyrt), klárað allt mótið og tekið kvöldflug (eða keyrt) heim eftir að mótinu lýkur og því spara sér gistikostnað. Einnig til að gera mótin skiljanlegri út á við. Þá er einn Íslandsmeistari óháð kyni, karla, kvenna, félagsliða á hverjum degi sem auðveldar fréttaflutning og tryggir að árangur hvers aðila hverfi ekki í gífurlegan fjölda niðurstaða sem koma inn samtímis.

Líklegt er þá að ÍM í berboga (á laugardegi) og ÍM í langboga (á sunnudegi) verði haldið á sama tíma og World Cup þar sem ekki er keppt í þeim greinum á World Cup. ÍM í trissuboga (á laugardegi) og ÍM í sveigboga (á sunnudegi) væri þá haldið á þeirri helgi sem hentar svo að það stangist ekki á við landsliðsverkefni sem okkar besta fólk gæti verið að keppa í, svo að okkar bestu missi ekki færi á því að verða Íslandsmeistarar.

Einnig er líklegt að þróun Íslandsmeistaramóta í Víðavangsbogfimi verði haldið áfram, þar sem almennur áhugi á Íslandsmeistaramótum í greininni virðist vera að aukast. Lítill hópur Afreksfólks í þeirri íþróttagrein hefur náð góðum árangri alþjóðlega og Ísland vann meðal annars til sinna fyrstu verðlauna á EM í víðavangsbogfimi í Póllandi 2025.

Næst á dagskrá hjá BFSÍ er fyrsta Íslandsbikarmót í Bikarmótaröð BFSÍ 27 júní og svo Norðurlandameistaramót ungmenna 1-6 júlí. Við óskum öllum keppendum til hamingju með árangurinn á ÍM, þökkum starfsfólki mótsins og vonumst eftir góðri uppskeru verðlauna á NM ungmenna 😊