You are currently viewing Íslandsmeistaramóti berboga 2026 Akur, Heike, Helgi og Heba taka titlana

Íslandsmeistaramóti berboga 2026 Akur, Heike, Helgi og Heba taka titlana

Íslandsmeistaramót í berboga meistaraflokki innandyra 2026 var haldið í Bogfimisetrinu sunnudaginn 12 apríl og allir einstaklings titlarnir  fóru til H fólks.

ÍF Akur á Akureyri (ÍFA) tók Íslandsmeistaratitil félagsliða annað árið í röð innandyra. Ásamt því að félagið vann mótið í heild sinni þar sem það var efst á ÍM berboga bæði í heildarfjölda verðlauna og medal standings, með þrjá af fjórum Íslandsmeistaratitlum á mótinu og með 1 silfur og 2 brons til viðbótar.

Helgi Már Hafþórsson ÍFA gerði titla skipti á ÍM. Hann vann Íslandsmeistaratitil karla í fyrsta sinn á ÍM 2026, en hann vann Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni 2025. Heike Viktoria Kristínardóttir í ÍFA kom þar sterk inn og vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil. Akureyringar voru ekki langt frá því að ná appelsínugulum 1,2,3 verðlaunapalli um Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni en 3 af topp fjórum þar voru úr Akri.

Heba Róbertsdóttir í BF Boganum Kópavogi (BFB) vann Íslandsmeistaratitil kvenna í annað sinn en hún vann titilinn fyrst árið 2023 þegar hún braut lengstu sigurröð Íslandsmeistaratitla í sögu íþróttarinnar sem Guðbjörg Reynisdóttir átti. Heba byrjaði 2022 stuttu fyrir ÍM og komst ekki á ÍM innandyra 2024 og 2025 af óviðráðanlegum orsökum. Hún hefur því unnið kvenna titilinn á öllum ÍM innandyra sem hún hefur tekið þátt á.

Guðbjörg Reynisdóttir í BF Hrói Höttur (BFHH) var ekki langt frá Íslandsmetinu í berboga kvenna í undankeppni ÍM, en vann ekki Íslandsmeistaratitil í meistaraflokki á ÍM. Það er í fyrsta sinn frá því að berbogi var tekin inn sem keppnisgrein á Íslandsmeistaramótum árið 2018 sem Guðbjörg vinnur ekki titil. 8 ár í röð eða 17 Íslandsmeistaramót í röð (inni/úti/víðavangi) hefur Guðbjörg hampað að minnsta kosti einum titli innandyra, samtals 16 af 17 Íslandsmeistaratitlum kvenna. Eina skiptið sem hún tapaði kvenna titlinum 2023 þá vann hún Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni (fyrsta árið sem sá titill var veittur). Ansi flottur árangur þar sem er vel vert að fagna og mun eiga sinn sess í sögubókunum. Guðbjörg á enþá óbrotna sigurröð Íslandsmeistaratitla utandyra frá 2018-2025 og flestar lengstu sigurraðir titla í berboga og íþróttinni almennt.

Guðbjörg og Heba eru báðar verulega sterkar og hafa báðar unnið eða keppt í brons/gull úrslitum EM í einstaklingskeppni og liðakeppni. Til viðbótar við nýliðann Heike sem tók sinn fyrsta titil og var sú sem sló Guðbjörgu út í bæði keppni kvenna og keppni óháð kyni og Lóu sem vann silfur í U21 á EM 2024 og keppti um bronsið á EM U21 í febrúar sem endaði í 4 sæti. Það vantar því ekki upp á samkeppnina og erfiðleikastigið í berboga kvenna á ÍM.

Íslandsmeistaratitill karla á ÍM Meistaraflokki Berboga

Í gull úrslitum um Íslandsmeistaratitil karla mættust Helgi Már Hafþórsson ÍFA og Sveinn Sveinbjörnsson BFB.

Báðir unnu stig upp í gull úrslitaleikinn án þess að tapa stigi í 8 manna og undanúrslitum ÍM og því útlit fyrir kröfugann úrslitaleik.

Í gull úrslitaleiknum kom Helgi sterkari inn og vann fyrstu tvær loturnar 25-21 og 22-21 og leiddi því leikinn 4-0 á leið í þriðju lotu. Strákarnir jöfnuðu þriðju lotu 23-23 og staðan því 5-1 og Sveinn því í stöðu þar sem hann þurfti að vinna síðustu tvær lotur leiksins til að knýja fram bráðabana. En Helgi leyfði því ekki að gerast og vann fjórðu lotu leiksins 25-21, og tók því sigurinn í leiknum 7-1
(5 lotur *2 stig per lotu = 10 stig og því sá sem er fyrr að ná 6 stigum sem sigrar leikinn)
Helgi tók því Íslandsmeistaratitil í meistaraflokki karla í fyrsta sinn á íþróttaferlinum.

Brons úrslit karla voru óvænt harður bardagi. Þar mættust margfaldur Íslandsmeistari Izaar Arnar Þorsteinsson ÍFA og nýliðinn Dagur Ómarsson BFHH. Izaar var talinn mun líklegri til sigurs m.v. skor úr undankeppni og reynslu en Dagur náði næstum sigrinum í hörðum bardaga sem endaði með 6-4 sigri Izaars sem tók bronsið.

Íslandsmeistaratitill kvenna á ÍM Meistaraflokki Berboga

Í gull úrslitum kvenna mættust Heba Róbertsdóttir BFB og Heike Viktoria Kristínardóttir ÍFA.

Heba átti frekar auðvelda vegferð í gull úrslitaleikinn í gegnum 8 manna úrslit og undanúrslit, það var þó ekki hægt að segja það sama um Heike. Heike vann örugglega í 8 manna úrslitum en í undanúrslitum mættust Heike og Guðbjörg Reynisdóttir BFHH margfaldur Íslandsmeistari (16 af 17 Íslandsmeistaratitlum kvenna á ÍM) og efsti keppanda í skori í undankeppni kvenna á ÍM. (Gaman er að geta þess að Heike og Guðbjörg mættust í gull úrslitum ÍM 2025 þar sem Guðbjörg vann 6-0). En að þessu sinni tók Heike óvæntann sigur 6-4 í mjög jöfnum leik og hélt því áfram í gull úrslitaleik kvenna.

Heba og Heike áttu gífurlega spennandi gull úrslita leik, Heike vann fyrstu lotuna 25-18 og tók því 2-0 forystu. Heba svaraði í annarri lotu með 24-22 stig og jafnaði leikinn. Heba tók einnig þriðju lotu með stórglæsilegri umferð frá þeim báðum 29-27, en Heba tók lotuna og 2 stigin sem því fylgja og snéri leiknum því í 4-2 fyrir Hebu. Heike jafnaði leikinn svo með því að sigra fjórðu lotu 25-21 og staðan 4-4 og aðeins síðasta lota leiksins eftir, sá sem vinnur lotuna hreppir titilinn, sá sem tapar fær silfrið og ef þær jafna þá er bráðabani. Þar tók Heba sigurinn á síðustu örinni. Vantaði 6 to tie, 7+ to win og hún skoraði glæsilega 10, lotan 28-24 fyrir Hebu og því einnig sigurinn í úrslitaleiknum og annar Íslandsmeistaratitill Hebu innandyra í jafnmörgum þátttökum á ÍM innandyra.

Guðbjörg Reynisdóttir BFHH mætti Lóu Margréti Hauksdóttur í brons úrslitum kvenna þar sem að Guðbjörg tók öruggann sigur 6-0.

Íslandsmeistaratitill allra (óháð kyni) á ÍM Meistaraflokki Berboga

Í gull úrslitaleik allra (óháð kyni) mættust aftur Heba Róbertsdóttir BFB og Heike Viktoria Kristínardóttir ÍFA.

Heike var í 7 sæti í undankeppni ÍM og náði öruggum sigri í 16 manna úrslitum 6-0 gegn Atla Jónssyni úr LFF Reykjavík. Heike náði svo 6-0 „upset“ sigri í 8 manna úrslitum aftur gegn Guðbjörgu Reynisdóttir BFHH Hafnarfirði sem var í öðru sæti undankeppni mótsins og því í fyrsta sinn sem Guðbjörg myndi ekki keppa um Íslandsmeistaratitil á ÍM í 8 ár. Í undanúrslitum (4 manna) mætti Heike liðsfélaga sínum Izaar Arnar Þorsteinssyni sem var í þriðja sæti undankeppni ÍM og var einnig talinn sigurstranglegri, en Heika lét sér lítið segjast til og tók 6-2 sigur og Heike því búin að tryggja sig í gull úrslit um Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni.

Heba var í 4 sæti í undankeppni ÍM og átti nokkuð örugga vegferð í 16 og 8 manna úrslitum, þrátt fyrir að þurfa að mæta Lóu Margréti Hauksdóttir sem keppti um U21 brons á EM í febrúar, en Heba tók þar 6-2 sigur, enda vann Heba sjálf bronsið á U21 EM 2025. En í undanúrslitum (4 manna) mætti Heba honum Helga Má Þorsteinsson úr ÍFA Akureyri. Helgi var efstur í undankeppni ÍM og var talinn eilítið líklegri til að vinna leikinn, en miðað við skor þeirra í undakeppni yrði leikurinn mjög jafn. En þar tók Heba óvænt öruggann sigur 7-1. Ef Helgi hefði unnið leikinn hefðu Akureyringar átt tækifæri á því að taka öll stæðin á verðlaunapallinum óháð kyni 1,2,3.

Það endaði því svo að í gull úrslitum um titilinn óháð kyni mættust Heba og Heike aftur, sömu keppendur og kepptu um titilinn í kvenna, þar sem karlarnir náðu ekki að stöðva þær.

Í úrslitaleiknum tók Heba fyrstu lotuna 24-22 og því 2-0 forystu. Heike jafnaði 2-2 með því að taka aðra lotu 22-20. Heike tók forystu í þriðju umferð 4-2 með 27-25 sigri í lotunni og Heike tók svo sigurinn í gull úrslitaleiknum 6-2 með sigri í fjórðu lotu 23-22. Heike tók því Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni 2026.

Ótrúlega vel af sér vikið hjá Heike sem átti frábæra útsláttarkeppni og tók sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil á íþróttaferlinum. Heike er á hraðri uppleið en var án vafa „underdog“ og fáir sem hefðu veðjað á að hún myndi vinna einstaklingstitil, því síður að hún væri að keppa um tvo! En staðreyndin er sú að maður tapar öllum mótum sem maður tekur ekki þátt í og „underdog“ sögurnar eru alltaf þær áhugaverðustu þar sem þær eru óvæntar og gerast sjaldan og því vel vert að fjalla um þær þegar þær gerast.

Í brons úrslitum vann Helgi Már Hafþórsson bronsleikinn 7-1 gegn Izaar Arnari Þorsteinssyni báðir úr ÍFA.

Íslandsmeistaratitill félagsliða á ÍM Meistaraflokki Berboga

Akureyringar og Kópavogsmenn áttust við í gull úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitil félagsliða.

  • ÍF Akur ÍFA á Akureyri – Liðsmenn
    • Izaar Arnar Þorsteinsson
    • Helgi Már Hafþórsson
    • Heike Viktoria Kristínardóttir
  • BF Boginn BFB í Kópavogi – Liðsmenn
    • Lóa Margrét Hauksdóttir
    • Heba Róbertsdóttir
    • Sveinn Sveinbjörnsson

Akureyringar voru taldir sigurstranglegri þar sem að í undankeppni ÍM voru þeir efstir og ekki langt frá Íslandsmetinu í félagsliðakeppni ásamt því að þeir unnu félagsliðatitilinn á ÍM á síðasta ári og voru því að verja titilinn til að halda honum á Akureyri.

Í gull úrslitaleiknum tóku Kópavogsmenn fyrstu lotu leiksins 46-35 og því 2-0 forystu í leiknum. Í annarri lotu jöfnuðu Akureyringar með 44-40 sigri í lotunni þrátt fyrir að lenda í tímaþröng vegna guls spjalds, og staðan 2-2. Akureyringar tóku þriðju lotu 45-38 og leiddu leikinn því 4-2. Í fjórðu og síðustu lotu leiksins þurftu Kópavogsmenn að vinna lotuna til að jafna úrslitaleikinn og knýja fram bráðabana um titilinn, en Akureyringarnir tóku það ekki í mál og tóku naumann sigur 43-41 í síðustu lotu leiksins og tóku því einnig sigurinn í úrslitum 6-2 og Íslandsmeistaratitill félagsliða til Akureyrar annað árið í röð.

Eftirfarandi unnu Íslandsmeistaratitla 

  • Heike Viktoria Kristínardóttir ÍFA – Íslandsmeistari (óháð kyni)
    • Fyrsti Íslandsmeistaratitill
  • Helgi Már Hafþórsson ÍFA – Íslandsmeistari karla
    • Fyrsti titill í berboga karla meistaraflokki
    • Annar titilinn í berboga meistaraflokki
  • Heba Róbertsdóttir BFB – Íslandsmeistari kvenna
    • Annar titilinn í berboga kvenna meistaraflokki
  • ÍF Akur – Íslandsmeistari félagsliða
    • Annar titilinn í röð fyrir félagið innandyra berboga
    • Liðsmenn
      • Heike Viktoria Kristínardóttir – Fyrsti titill í félagsliðakeppni
      • Helgi Már Hafþórsson – Annar titilinn í félagsliðakeppni berboga
      • Izaar Arnar Þorsteinsson – Annar titilinn í félagsliðakeppni berboga