Íslandsmeistaramót Utandyra 2025 (ÍM25U) lauk núna um helgina 21-22 júlí. ÍM25U var haldið í Þorlákshöfn í fyrsta sinn.
Eins og óheppilega hefðin er á ÍM í bogfimi á Íslandi þá hrellti gul veðurviðvörun keppendur á laugardeginum og útlit í spám var fyrir að veðrið myndi versna seinni part dags. Því var undankeppni í trissuboga og berboga flokkum á laugardeginum stytt úr 72 örvum í 36 örvar í samráði við keppendur, svo að mögulegt væri að klára mótið áður en versta veðrið skylli á. Tíminn á mótinu var einnig lengdur úr 30 sekúndum í 40 sekúndur per ör, svo að keppendur hefðu betra tækifæri að ná einhverjum örvum á skífu á meðan vindurinn feykti þeim til.
Vindsokkur alþjóðabogfimisambandsins sem á að sýna styrk vindsins gerði lítið annað en að vera láréttur á laugardaginn. Óháð því hvað vindurinn breyttist var hann alltaf 100%+. Vindurinn beygði einnig standinn fyrir vindsokkinn.
En veður spár breyttust og veðrið róaðist lítillega seinni part laugardagsins í úrslitaleikjum mótsins í trissuboga og berboga, sem keppendur voru mjög fegnir. Þó að það væri langt frá því að mögulegt væri að kalla það gott veður var það nægilega gott til að keppendur gátu keppt nokkuð eðilega þó að það hafi verið vindur, rigning og kalt
Veðrið á seinni degi mótsins (sunnudeginum) þegar að sveigboga og langboga/hefðbundnir flokkar voru að keppa var mjög gott í samanburði við laugardaginn. Sólin lét meirað segja sjá sig og brenndi nokkra keppendur í undankeppni á sunnudaginn, þó að hluti af því gæti hafa verið vindbruni.
Mótið var fyrsta ÍM þar sem keppt var formlega um titil í langboga/hefðbundnum bogum utandyra. Þeim flokki var bætt formlega við seinni part 2024, eftir nokkra ára tilraunaferli þar sem keppt var í flokknum óformlega á Íslandsmeistaramótum (semsagt enginn formlegur titill gefinn)
Mótið gekk vel á heildina litið þrátt fyrir veðrið og smá töf á úrslitaleikjum á sunnudeginum þar sem veðrið á laugardeginum ákvað að aflífa eitthvað af streymis búnaðinum. Sýnt var beint frá úrslitum mótsins, sem voru oft mjög skrautleg vegna veðurs, á Archery TV Iceland Youtube rásinni.
„Íslenskt logn“ í úrslitum langboga á sunnudeginum, sem teldist rok af mörgum erlendis.
Fjöldi þátttakenda á ÍM25 utandyra var sambærilegur á milli ára 2024-2025, en þátttökutölur utandyra hafa ekki jafnað sig frá pre-Covid tölum af óþekktum orsökum.
Þátttaka á ÍM25 innandyra fyrr á árinu hafa hinsvegar jafnað sig og rúmlega það með nýju meti í þátttökufjölda á nánast hverju ári. Þrefalt fleiri kepptu á Íslandsmeistaramótinu innandyra 2025 í meistaraflokki en kepptu 2017 sem dæmi.
Met var sett í þátttöku samanalagt á Íslandsmeistaramótum í meistaraflokki 2025 með 95 þátttökur. Sem slær fyrri metin fyrir Covid frá 2019 – 83 þátttökur og 2020 – 86 þátttökur.
Íslandsmeistarar utandyra 2025 í einstaklingskeppni:
- Sveigboga karla – Ari Emin Björk – ÍFA
- Fyrsti titill Ara í meistaraflokki og fyrsti titill félagsins í sveigboga karla. A new hope.
- Sveigboga kvenna – Valgerður Hjaltested – BFB
- Þriðji titill Völu utandyra í röð. How does she do it?
- Sveigboga (óháð kyni) – Marín Aníta Hilmarsdóttir – BFB
- Marín hefur unnið alla titlana óháð kyni utandyra frá því að veiting þeirra hófst. Perfect record!
- Trissuboga karla – Alfreð Birgisson ÍFA
- Fjórði titill Alfreðs í röð utandyra og elsti Íslandsmeistarinn á mótinu 49 ára. Síðasti flokkurinn sem yngri kynslóðin hefur ekki náð að yfirtaka. Last man standing
- Trissuboga kvenna – Þórdís Unnur Bjarkadóttir – BFB
- Fyrsti titill Þórdísar utandyra. Vann einnig innandyra titilinn í mars. Rising star.
- Trissuboga (óháð kyni) – Alfreð Birgisson – ÍFA
- Fyrsti titill Alfreðs óháð kyni utandyra, annar í röð á þessu ári þar sem hann vann einnig óháð kyni innandyra. Double trouble.
- Berboga karla – Izaar Arnar Þorsteinsson – ÍFA
- Izaar vann fjóra utandyra titla í röð 2020-2024 en tapaði svo 2024 en endurheimti titilinn aftur núna 2025. Let the count recommence!
- Berboga kvenna – Guðbjörg Reynisdóttir – BFHH
- Áttundi utandyra titill Guðbjargar í röð 2018-2025. Unstoppable!
- Berboga (óháð kyni) – Izaar Arnar Þorsteinsson – ÍFA
- Þriðja árið sem titilinn er veittur og annað sinn sem Izaar vinnur titilin. Only the odd numbers
- Langboga karla – Haukur Hallsteinsson – LFF
- Fyrsti formlegi titill í longbow/traditional utandyra og fyrsti einstaklings titill Hauks. Hulk smash.
- Langboga kvenna – Tinna Guðbjartsdóttir – LFF
- Fyrsti formlegi titill í longbow/traditional utandyra. Fyrsti titill Tinnu í bogfimi. TinTin for the WinWin
- Langboga (óháð kyni) – Gummi Guðjónsson – BFB
- Fyrsti formlegi titill í longbow/traditional utandyra. En hann vann titilinn óformlega 2024. Dr. Strange
Íslandsmeistarar utandyra 2025 í félagsliðakeppni:
- Langboga – LF Freyja – Fyrsti titilinn utandyra
- Liðsmenn
- Tinna Guðbjartsdóttir
- Guðrún Þórðardóttir
- Haukur Hallsteinsson
- Liðsmenn
- Berboga – BF Boginn- Annar titill félagsins í röð utandyra
- Liðsmenn
- Astrid Daxböck
- Lóa Margét Hauksdóttir
- Heba Róbertsdóttir
- Liðsmenn
- Sveigboga – BF Boginn – Annar titillinn félagsins í röð utandyra (fjórði í röð inni og úti)
- Liðsmenn
- Marín Aníta Hilmarsdóttir
- Ragnar Þór Hafsteinsson
- Valgerður Hjaltested
- Liðsmenn
- Trissuboga – BF Boginn – Fyrsti titil félagsins utandyra
- Liðsmenn
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir
- Dagur Örn Fannarsson
- Ragnar Smári Jónasson
- Liðsmenn
Félagsliðakeppni var breytt úr kynjaðri keppni í óháð kyni árið 2024 og því aðeins annar titilinn sem veittur er í félagsliðakeppni óháð kyni. Það er því ekki hægt að lesa langt aftur í sögu titilsins og erfitt að gera samanburð milli ókynjaðra titla og kynjaðra titla fortíðar.
Tilgangur breytingarinnar var m.a. til þess að;
- Auðvelda minni félögum að ná að skipa liði (auðveldara að finna 3 í hvaða kyni sem er en 3 í sama kyni)
- Stytta skipulag Íslandsmóta og/eða búa til tækifæri á fleiri liða útsláttum (í stað þess að vera með 3 liðakeppnir (kk/kvk/bl) þá styttast mótin verulega með því að sameina allt í eina liðakeppni)
- Auka samkeppni (besta fólkið úr félaginu óháð kyni gerir sterkasta liðið, fleiri sterk lið gera meiri samkeppni)
- Gefa kynsegin fólki tækifæri á því að taka þátt (þeir passa ekki inn í venjulega formið af WA liðakeppni 3kk/3kvk/1kk+1kvk og gátu því ekki tekið þátt áður)
- Og fleira
Á heildina litið hefur þessi breyting gengið vel. Fjöldi liða á Íslandsmótum hefur aukist verulega að meðaltali, samkeppni um titlana er jafnari og allir fá að vera með.
Nei þó að þetta sé „2“ á mark númerinu þá færðu ekki 2 stig fyrir að hitta í það.
Topp 3 félög í heildarniðurstöðum (heildar fjöldi gull/silfur/brons í öllum greinum)
- BF Boginn Kópvogur – 7/8/7
- ÍF Akur Akureyri – 5/5/1
- LF Freyja Reykjavík – 3/2/1
BF Boginn tók flesta Íslandsmeistaratitla á ÍM25U í heild sinni, en ef bara er horft á einstaklings titla þá tók ÍF Akur flesta titla 5 á móti 4 frá BFB. Boginn, Akur og Freyja tóku topp 3 sæti bæði í fjölda verðlauna og vægi verðlauna (talið fyrst eftir gullum, svo silfrum svo bronsum)
Íslandsmet sem sett voru á mótinu:
- Gummi Guðjónsson BFB – Íslandsmet Langboga karla – 537 stig (metið var áður 488 stig)
- Haukur Hallsteinsson LFF sló metið í langboga karla með 491 stig á Íslandsbikarmóti síðustu helgi en það er ekki búið að uppfæra það í Íslandsmetaskrá, Haukur sló metið svo aftur á ÍM núna með 529 stig
- Tinna Guðbjartsdóttir LFF – Íslandsmet Langbogi kvenna – 324 stig
- LF Freyja – Íslandsmet Langboga undankeppni félagsliðakeppni – 1069 stig
- Tinna Guðbjartsdóttir
- Guðrún Þórðardóttir
- Haukur Hallsteinsson
- BF Boginn – Íslandsmet Trissuboga útsláttarkeppni félagsliða – 200 stig (metið var áður 199 stig)
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir
- Dagur Örn Fannarsson
- Ragnar Smári Jónasson
Næstu innlend mót á dagskrá hjá BFSÍ eru:
1. Íslandsbikarmót og lokamótið í Íslandsbikarmótaröðinni í meistaraflokki 19 júlí í Þorlákshöfn
2. Íslandsmót ungmenna og öldunga í Kópavogi 9-10 ágúst.
Íslandsmót ungmenna utandyra hefur hingað til verið reynt að halda í júní nálægt miðju sumars til að reyna að ná sem bestu veðri og stuttu fyrir NM ungmenna til að gefa ungmennum tækifæri á því að undirbúa sig fyrir NUM. En á þessu ári var það fært nær lok sumars, meðal annars til þess að sjá hvort að þátttaka nýrra ungmenna yrði meiri þegar fleiri ungmenni hafa náð að undirbúa sig fyrir lengri fjarlægðir, og til þess að koma á móts við félög út á landi sem fannst erfitt að ferðast tvær helgar í röð með stuttu milli bili með ungmenni.