Heilbrigðisráðherra hefur nú gefið út nýja reglugerð með tilslökunum á fyrri takmörkunum sem tók gildi á mánudaginn 10. maí og gildir til 26. maí nk.
Helstu breytingar á reglunum sem hafa áhrif á okkar starf eru:
- Hámarksfjöldi þátttakenda í hverju rými á æfingu og keppni er nú 75 manns.
- Utan keppni og æfinga gildir 50 manna hámark.
Covid-19 Reglur BFSÍ hafa verið uppfærðar í samræmi við þessar breytingar.
Hægt er að nálgast reglurnar í heild sinni hér.
Hvert félag er með sóttvarnarfulltrúa sem hægt er að leita til ef einhverjar spurningar vakna varðandi reglugerðina.