Utandyra Markbogfimi Ungmenna

Lýsing á markbogfimi utandyra á síðu World Archery

Markbogfimi utandyra (C) landsliðsverkefni ungmenna með ótakmörkuðum þátttökukvóta (t.d. Norðurlandameistaramót ungmenna, Veronicas Cup o.s.frv.):

  • Öllu hlutgengu íþróttafólki sem mæta kröfum viðburðarins er heimil þátttaka í þeim verkefnum.
  • Skráning í slík landsliðsverkefni fer almennt fram í gegnum aðildarfélög BFSÍ.
  • Aðildarfélög skulu útvega þjálfara/liðsstjóra/fararstjóra eftir því sem við á fyrir sitt íþróttafólk í slík landsliðsverkefni.

Íþróttafólk (eða aðildarfélag íþróttafólksins) í slíkum landsliðsverkefnum bera sjálfir allan kostnað af þátttöku í slíkum landsliðsverkefnum (self funded), en þurfa að skila inn greiðslukvittunum fyrir kostnaði ferðarinnar til BFSÍ. Ef þig vantar upplýsingar, skýringar eða aðstoð um þetta ekki hika við að hafa samband við íþróttastjóra gummi@bogfimi.is.

Markbogfimi utandyra (B) landsliðsverkefni ungmenna með takmörkuðum þátttökukvóta (t.d. HM/EM ungmenna og Evrópubikarmót ungmenna):

Íþróttastjóri BFSÍ ræður vali íþróttafólks í landsliðsverkefni í samræmi við afrekstefnu BFSÍ.

Við valið horfir íþróttastjóri til eftirfarandi þátta:

Til þess að vera valinn þarf íþróttamaður að hafa sýnt með atferli og hegðun að hann hafi verið, sé og verði fyrirmyndar fulltrúi fyrir hönd BFSÍ og geti unnið með öðrum þátttakendum í verkefnum BFSÍ. Íþróttamenn þurfa að vera mjög virkir í þátttöku í þeim mótum sem standa þeim til boða. Íþróttamenn þurfa að gefa kost á sér til þátttöku í landsliðsverkefni með því að tilkynna íþróttastjóra um sinn áhuga á þátttöku í A/B ungmenna landsliðsverkefnum BFSÍ utandyra fyrir lok tímabilsins. Íþróttamenn þurfa einnig að mæta kröfum um hlutgengi í reglugerð BFSÍ um erlend mót.

Tímabil til þess að ná getustigs viðmiðum er 1 janúar til 30 september árið áður en viðkomandi landsliðsverkefni er haldið.

Við lok tímabilsins velur íþróttastjóri BFSÍ í landsliðsverkefni ungmenna næsta árs utandyra úr þeim sem hafa gefið kost á sér, gerir fjárhagsáætlun fyrir komandi ár m.v. þátttöku áætlun, lýkur öðrum gögnum sem þarf s.s. vegna skýrsluskila, lýkur drögum að umsóknum í Afrekssjóð ÍSÍ og annað sem BFSÍ mun sækja um styrki til þess að standa undir hluta af kostnaði afreksstarfi næsta árs. Íþróttastjóri leggur þá áætlun og gögn fyrir stjórn BFSÍ til yfirferðar og samþykktar, helst fyrir lok október árið áður, en þó aldrei síðar en viku fyrir umsóknarfresti í viðkomandi sjóði.

Íþróttastjóri skiptir íþróttamönnum sem gefa kost á sér innan frestsins í þrjá flokka:

  • A flokkur: Viðmið samsvarar meðaltali efstu 50% keppenda á EM.
  • B flokkur: Viðmið samsvarar meðaltali allra keppenda á EM.
  • C flokkur: Eru aðrir sem íþróttastjóri BFSÍ velur (t.d. til að fylla í lið) sem hafa ekki náð getustigsviðmiðum A eða B.

Æskilegt er að íþróttamaður hafi náð getustigs viðmiðum a.m.k. tvisvar á tímabilinu á Íslandsmetahæfum mótum.

Utandyra skor U21 A flokkur B flokkur
Sveigbogi KK (RU21M) 638 617
Sveigbogi KVK (RU21W) 622 592
Trissubogi KK (CU21M) 686 672
Trissubogi KVK (CU21W) 674 652
     
Utandyra skor U18 A flokkur B flokkur
Sveigbogi KK (RU18M) 649 624
Sveigbogi KVK (RU18W) 634 607
Trissubogi KK (CU18M) 684 669
Trissubogi KVK (CU18W) 668 648

Meðal skor á síðustu fjórum EM ungmenna í markbogfimi utandyra.

Í grunninn í mjög stuttu máli hafa þeir íþróttamenn forgang í vali íþróttastjóra í landsliðsverkefni sem:

  • Mæta almennum hlutgengis og val viðmiðum
  • Gefa kost á sér fyrir fresti
  • Ná viðmiðum fyrir hærri getustigs flokkun

Ef margir íþróttamenn gefa kost á sér í sama landsliðsverkefni sem hafa náð sama getustigs viðmiði ákvarðar íþróttastjóri endanlega val milli þeirra (t.d. ef fjórir íþróttamenn sem ná A viðmiðum gefa kost á sér en aðeins er þátttökukvóti fyrir þrjá í undankeppni mótsins þá ákvarðar íþróttastjóri hverjir 3 fara í verkefnið)

Val ferlið er sett upp á einfaldan veg þar sem afreksefni á hærra getu stigi m.v. alþjóðlegt getustig, sem fer eftir og nær viðmiðum, geti með mikilli vissu áætlað að þeir verði valdir í landsliðsverkefni, sem þeir hafa áhuga á því að taka þátt í, langt fram í tímann. Sem auðveldar því afreksfólki langtíma skipulag s.s. perónulega þátttöku-, æfinga- og fjárhagsáætlun. En á sama tíma gefur val ferlið íþróttastjóra svigrúm til þess að aðlaga þátttöku skipulag, fylla í lið, byggja upp keppnisreynslu efnilegra íþróttamanna o.fl. til þess að ná megin markmiði síns starfs, sem er að ná afreks markmiðum BFSÍ í afreksstefnu BFSÍ.

Áætluð áherslu ungmenna landsliðsverkefni BFSÍ í markbogfimi utandyra:

Til skýringar: Árlega eru haldin tvö Evrópubikarmót ungmenna. Annað hvert ár er EM einnig „seinna Evrópubikarmótið“.

2024

  • Evrópubikarmót ungmenna mót 1/2 (European Youth Cup Leg 1) (B) – Búlgaría
  • EM ungmenna & Evrópubikarmót ungmenna mót 2/2 (European Youth Championships/European Youth Cup Leg 2) (B) – Rúmenía

2025

  • Evrópubikarmót ungmenna mót 1/2 (European Youth Cup Leg 1) (B) – Búlgaría
  • Evrópubikarmót ungmenna mót 2/2 (European Youth Cup Leg 2) (B) – Holland
  • Heimsmeistaramót ungmenna (B) (og fyrsta undankeppni Ólympíuleika ungmenna) – Winnipeg

2026

  • Evrópubikarmót ungmenna mót 1/2 (European Youth Cup Leg 1) (B) – Búlgaría
  • EM ungmenna & Evrópubikarmót ungmenna mót 2/2 (European Youth Championships/European Youth Cup Leg 2) (B) (og síðari undankeppni Ólympíuleika ungmenna) – Holland
  • Ólympíuleikar ungmenna (B) – Senegal

2027

  • Evrópubikarmót ungmenna mót 1/2 (European Youth Cup Leg 1) (B)
  • Evrópubikarmót ungmenna mót 2/2 (European Youth Cup Leg 2) (B)
  • Heimsmeistaramót ungmenna (B)

Áhersla BFSÍ í markbogfimi ungmenna utandyra er almennt mest á liðakeppni. Því er almennt þátttökukostnaður íþróttamanna í landsliðum ungmenna utandyra niðurgreiddur til jafns óháð getustigs flokkun ákveðinni íþróttamanna í liðinu. En einnig eru ákveðin verkefni sum ár, t.d. HM ungmenna sum ár, þar sem aðeins er niðurgreiddur kostnaður fyrir þá sem ná A/B viðmiðum. BFSÍ áætlar að niðurgreiða eins mikið og mögulegt er hverju sinni. En þátttakendur geta gert ráð fyrir því að þurfa að greiða um 80-90% af kostnaði áherslu landsliðsverkefna.

Hæfileikamótun BFSÍ

BFSÍ starfrækir einnig hæfileikamótun þar sem BFSÍ tekur að sér þjálfun yngra íþróttafólks með því markmiði að auka getustig efnilegs ungs íþróttafólks, með því endanlega markmiði að full skipa ungmenna landsliðsverkefni BFSÍ með eins sterkum landsliðum og mögulegt er hverju sinni.

Aldursbilið sem lögð er mest áhersla á í hæfileikamótun er 13-17 ára (U18 flokkur), en hæfileikamótun getur einnig náð til U21 flokks (18-20 ára).

Skipulag hæfileikamótunar getur verið breytileg á milli ára t.d. eftir fjölda íþróttamanna í hópnum og fjölda verkefna. Íþróttastjóri velur árlega íþróttafólk í hæfileikamótun og horfir þar mest til áhuga, metnaðar og ástundunar þeirra á innlendum mótum. Einnig er horft á núverandi getustig viðkomandi, en engin föst getustigs viðmið eru fyrir hæfileikamótun BFSÍ, þar sem að tilgangurinn er að velja það íþróttafólk sem þjálfarar telja að geti náð hærra getustigi eða niðurstöðum fyrir BFSÍ í framtíðinni óháð núverandi skori. (Til að gefa eitthvað gróft viðmið til leiðbeiningar, þeir sem eru að skora undir sirka 600 stigum í trissuboga og undir 450 stig í sveigboga í sínum aldursflokki og fjarlægð utandyra eru ólíklegir til þess að vera valdir) 

Til að fá frekari upplýsingar um hæfileikamótun hafði samband við íþróttastjóra BFSÍ gummi@bogfimi.is. 

Upplýsingar á síðunni geta breyst án fyrirvara vegna breytinga sem gætu komið til t.d. vegna breyttra reglna World Archery/World Archery Europe, vegna lægri eða hærri styrkveitinga úr Afrekssjóði ÍSÍ, breytingar á reglum BFSÍ, o.s.frv..