Starfsmenn Bogfimisambands Íslands

Gummi Guðjónsson

Gummi Guðjónsson

Íþróttastjóri og starfandi framkvæmdastjóri - 100%

Gummi (Guðmundur) er íþróttastjóri BFSÍ og sér um allt sem kemur að afreksmálum innan BFSÍ, skipulagi, framkvæmd, vali, þjálfun o.s.frv.Gummi er með hæstu þjálfararéttindi innan WA (stig 3) og heimsálfudómari (CJ) Evrópusambandsins. Ásamt því hefur Gummi setið og haldið mörg önnur námskeið tengt þjálfun og dómgæslu á rúmum áratugsferli í íþróttinni. Gummi hefur einnig verið stærsti drifkraftur í uppbyggingu Bogfimiíþrótta á Íslandi síðustu tvo áratugi og var kjörinn formaður BFSÍ 2021.

Valgerður Einarsdóttir Hjaltested

Valgerður Einarsdóttir Hjaltested

Móta og fræðslustjóri - 100%

Valgerður sér meðal annars um skipulag og framkvæmd móta BFSÍ, skipulag og framkvæmd útbreiðslu og fræðslumála og skipulag og framkvæmd C landsliðsverkefna með opinni þátttöku í samstarfi við aðildarfélög BFSÍ (t.d. NUM). Valgerður var á íþrótta- og lýðheilsubraut í framhaldsskólanum í Mosfellsbæ, eftir að hún útskrifaðist úr FMOS hóf Valgerður störf hjá BFSÍ. Vala hefur lokið WACL3 þjálfararéttindum, hún var lærlingur í World Archery Excellence Center í Lausanne Sviss og hefur setið Technical Delegate námskeið á vegum World Archery Europe svo að eitthvað sé nefnt

Í lögum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands frá árinu 2013 í grein 5.a. um starfsskilyrði í íþróttahreyfingunni segir; Óheimilt er að velja einstaklinga sem vitað er til að hafi hlotið refsidóma vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 til starfa innan íþróttahreyfingarinnar. Þetta gildir bæði um þá einstaklinga sem starfa sem sjálfboðaliðar og sem launþegar.