Karla landslið
  • Oliver Ormar Ingvarsson – BF Boginn
  • Dagur Örn Fannarsson – BF Boginn
  • Guðmundur Guðjónsson – BF Boginn
  • Alfreð Birgisson – ÍF Akur
  • Nói Barkarson – BF Boginn
Kvenna landslið
  • Astrid Daxböck – BF Boginn
  • Anna María Alfreðsdóttir – ÍF Akur
  • Ewa Ploszaj – BF Boginn
  • Sigríður Sigurðardóttir – BF Hrói Höttur
  • Guðbjörg Reynisdóttir – BF Hrói Höttur

Kröfur fyrir landsliðshóp

Í stuttu máli er valið í landsliðshóp út frá reglugerðum BFSÍ. Til þess að komast í landsliðshóp þarf keppandi að ná viðeigandi útreiknuðum viðmiðum hér fyrir neðan í mótum BFSÍ á tímabilinu 1 Október 2019 til 30 September 2020. Viðmiðin miðast við meðaltal lægstu 15% keppenda á síðustu 3 viðeigandi EM. Þeir þurfa einnig að vera virkir þátttakendur í mótum BFSÍ og virða siðareglur og hegðunarviðmið ÍSÍ/BFSÍ.

Utandyra Kyn Skor Metrar Skífa
Sveigbogi KK 576 70 122cm
Sveigbogi KVK 532 70 122cm
Trissubogi KK 656 50 80cm
Trissubogi KVK 633 50 80cm
Innandyra Kyn Skor Metrar Skífa
Sveigbogi KK 548 18 40cm
Sveigbogi KVK 550 18 40cm
Trissubogi KK 575 18 40cm
Trissubogi KVK 566 18 40cm
Mánaðarleg staða íþróttafólks.

Einu sinni í mánuði þarf íþróttafólk sem skilgreint er í landsliðshóp að skila inn stöðu. Það sem skila þarf inn er:

  • Fjöldi örva sem skotið var í mánuðinum (gott að nota örva teljara)
  • Fjöldi æfinga í mánuðinum (t.d. ef þú æfir 2 á dag 30 daga í mánuði væru það 60 æfingar)
  • Skor tekið í Artemis lite og skill level fyrir skorið
  • 15 örvar skotið með Mantis X8
  • Styrktar mælikvarði SPT. SPT 30/60. 30 sek halda/60 sek afslöppun. (markmiðið er að mæla hve oft einstaklingur nær að klára það, þó ekki meira en 20 sinnum)

Þessir mælikvarðar eru fyrir BFSÍ til þess að fylgjast með virkni íþróttafólksins og halda utan um tölfræði. Þeir sem eru orðnir óvirkir og/eða skila ekki inn neinum upplýsingum um stöðu sína mánaðarlega (án ástæðu) er leyfilegt fjarlægja úr viðeigandi hópi.

Skilgreining á landsliði

Þeir sem eru skilgreindir í landsliðshóp geta keppt á kvótamótum á vegum BFSÍ eins og HM/EM, heims- og Evrópubikar mótum.

Þátttaka í mótum innan vébanda BFSÍ þar sem BFSÍ hefur ótakmarkaðann fjölda þátttakenda er opin öllum aðildarfélögum BFSÍ til þátttöku (t.d. Veronicas Cup).