Heilbrigðisteymi BFSÍ

Þættir í heilbrigðisteymi BFSÍ eru m.a.:

  • Helgi Valur Pálsson íþróttasálfræðiráðgjafi
  • Geir Gunnar Markússon næringarfræðingur
  • Ýmsir sjúkraþjálfarar s.s.:
    • Sigurður Jón Sveinsson – Sjúkraþjálfari á höfuðborgarsvæðinu – Hæfi
    • Þórhallur Guðmundsson og Hannes Bjarni Hannesson – Tengiliðir Afreksfólks á Norðurlandi og sjúkraþjálfun í völdum landsliðsverkefnum – Efling
  • Nils Guðjón Guðjónsson nuddari o.fl. – Heilsustofa 105
  • Samstarf við Tyrkland/Bretland/Spán/Þýskaland að BFSÍ fái að halla sér á þeirra heilbrigðisteymi í landsliðsverkefnum þar sem eru fáir Íslendingar að keppa (samið hverju sinni).
  • Evrópska sjúkratryggingakortið, sjúkratryggingar í Evrópu – Sjúkratrygginar.
  • IMSSA (International Medical & Security Sports Assistance) – Sjúkratryggingar og aðgengi að læknaþjónustu á heimsvísu (utan Evrópu) í landsliðsverkefnum. (sjá nánari um tryggingar hér https://bogfimi.is/tryggingarmal/)
  • Mótshaldarar landsliðsverkefna þar sem venjan er að aðgengi sé að sjúkrabíl eða öðru sjúkrastaffi á keppnisvellinum á meðan á landsliðsverkefni stendur.

(Þörf íþróttamanna er mismunandi, og sem dæmi er sérhæfing sjúkraþjálfara mismunandi og staðsetning afreksmanna um landið gerir þeim oft auðveldara að sækja sér sjúkraþjálfun í heimabyggð. Því er ekki alltaf hægt að nota sama sérfræðing með öllum keppendum til langs tíma. Einnig er alltaf gott að vera með fleiri til taks, m.a. til að taka þátt í áherslu landsliðsverkefnum BFSÍ þegar þess reynist þörf.

Íþróttafólk í A/B landsliðsverkefnum BFSÍ stendur til boða að fá þjónustu heilbrigðisteymis BFSÍ niðurgreidda að fullu eða að hluta. Ákvörðun aðkomu BFSÍ að niðurgreiðslu kostnaðar er byggt á mati íþróttastjóra BFSÍ á æfingamagni, keppnisáætlun og þörf hvers íþróttamanns tengt undirbúningi fyrir landsliðsverkefni. En hér fyrir neðan er hægt að finna gróft viðmið:

Viðmið fyrir íþróttamenn sem eru að ná A-viðmiðum:

  • 6-12 tímar á ári í íþróttasálfræðiráðgjöf (viðmið er annan hvern mánuð til mánaðarlega eftir aðstæðum)
  • 12-24 tímar á ári hjá sjúkraþjálfara eða nuddara (viðmið er einu sinni til tvisvar í mánuði)
  • 1 tími á ári hjá næringarfræðingi BFSÍ

Viðmið fyrir íþróttamenn sem eru að ná B-viðmiðum:

  • 4 tímar á ári í íþróttasálfræðiráðgjöf (viðmið er á 3 mánaða fresti)
  • 6 tímar á ári hjá sjúkraþjálfara eða nuddara í fyrirbyggjandi eftirlit og/eða meðferð (viðmið er annan hvern mánuð)
  • 1 tími á ári hjá næringarfræðingi BFSÍ

Viðmið fyrir aðra íþróttamenn í landsliðsverkefnum:

  • 1 tími á ári í íþróttasálfræðiráðgjöf
  • 1 tími á ári hjá sjúkraþjálfara í fyrirbyggjandi eftirlit

(ATH viðmið eru viðmið ekki reglur, bara til að gefa dæmi)

Íþróttamönnum í landsliðsverkefnum er ekki skylt að notfæra sér heilbrigðisteymi BFSÍ, en þeir eru hvattir til þess að huga vel að andlegri og líkamlegri heilsu sinni tengt sinni iðkun og keppni. Ef verkir eru til staðar ekki fresta að leita aðstoðar

BFSÍ getur komið að niðurgreiðslu fleiri tíma. Aðkoma BFSÍ að kostnaði tengt viðbótar tímum er metið af íþróttastjóra BFSÍ hverju sinni í samstarfi við viðkomandi sérfræðing. Aðkoma BFSÍ að kostnaði annarra sérfræðinga sem eru ekki skilgreindir sérstaklega í heilbrigðisteymi sambandsins er metið af íþróttastjóra BFSÍ hverju sinni. (t.d. vegna slysa/meiðsla eða sérstakra þarfa eða annars)

Íþróttafólk sem áætlað er til þátttöku í landsliðsverkefnum BFSÍ getur bókað tíma með heilbrigðisteymi BFSÍ í gegnum íþróttastjóra BFSÍ.

Í landsliðsverkefnum er oftast leitast til að nota sjúkraþjálfara/heilbrigðisteymi í samstarfi við mótshaldara, heimaþjóð eða samstarfs þjóð, til að eiga við þau mál sem upp geta komið á mótum. En í þátttökumestu landsliðsverkefnum mun BFSÍ reyna að taka sjúkraþjálfara með í verkefnin.

BFSÍ getur einnig boðið af og til upp á fyrirlestra með sérfræðingum t.d. íþróttasálfræðingi eða næringafræðingi. Þegar það er mögulegt er almennum félagsmönnum aðildarfélaga BFSÍ einnig boðin þátttaka í slíkum verkefnum (t.d. netfyrirlestrum).