Ef þú hefur áhuga á einhverjum af þeim störfum eða stöðum sem eru hér fyrir neðan endilega hafðu samband við BFSÍ bogfimi@bogfimi.is
Laus störf:
Þjálfarar í Afreksstarf BFSÍ
BFSÍ leitar eftir umsóknum í eftirfarandi störf í Afreksstarfi BFSÍ. Umsóknafrestur er til 31 maí 2022. Umsóknir sendist á bogfimi@bogfimi.is
- Þjálfari sem sér um hæfileikamótun og U18 landslið sveigboga 10% starfshlutfall – 12 mánaða samningur (endurnýjun samnings byggt á frammistöðu)
- Þjálfari sem sér um hæfileikamótun og U18 landslið trissuboga 10% starfshlutfall – 12 mánaða samningur (endurnýjun samnings byggt á frammistöðu)
Verksvið starfsmanns
- Skipuleggja þjálfun einstaklinga/liða sem þeir hafa umsjón með.
- Efla eiginleika og getu einstaklinga/liða, s.s. í formi, tækni og þekkingu.
- Fylgjast með og standa vörð um andlega og líkamlega heilsu þeirra.
- Að þróa einstaklinga í ungmennalandslið framtíðar
- Að taka við einstaklingum sem aðildarfélög mæla með í hæfileikamótun (miðast við 13-17 ára aldur) og bæta getustig þeirra.
- Ef ekki berst nægilegur fjöldi tilnefning frá aðildarfélögum ber starfsmanninum að skapa í samstarfi við aðildafélögin einstaklinga í hæfileikamótun BFSÍ.
- Starfsmaðurinn mun starfa undir íþróttastjóra.
Æskilegt er að viðkomandi hafi:
- Þjálfararéttindi stig 2 (WA/BFSÍ stig 2)
- Góða samskipta eiginleika.
- Góða tölvukunnáttu.
- Íslensku og ensku mælandi.
- Frumkvæði.