Bikarmótaröð BFSÍ

Þessi síða er í vinnslu. Hér munu koma upplýsingar um Bikarmótaröð BFSÍ og saga bikarmóta og ýmissa mótaraða.

Bikarmótaröð BFSÍ er mótaröð Bogfimisambands Íslands. Formið á mótaröðinni er ekki ósvipað og heimsmótaröð World Archery innandyra (Indoor World Series) og heimsbikarmótaröð World Archery utandyra (Outdoor World Cup). Þó nokkur lönd eru einnig með sambærilegar mótaraðir til viðbótar við sín landsmeistaramót sem ganga almennt undir nöfnunum National Series eða National Cup.

Þó nokkrar mótaraðir höfðu verið haldnar fyrir formlega setningu formlegu Bikarmótaraðar BFSÍ, flestar ekki á vegum BFSÍ (þar sem BFSÍ var stofnað í desember 2019), sumar þeirra mótaraða voru tengdar þróun formlegrar Bikarmótaraðar framtíðar en einnig aðrar ótengdar. Fjallað er um sumar þeirra neðar á síðunni.

Bikarmótaraðir BFSÍ
Bikarmótaraðir BFSÍ er opnar öllum keppendum í aðildarfélögum BFSÍ. Mótaraðirnar samanstanda almennt af 3-6 mótum og sigurvegari mótaraðarinnar er almennt sá sem skorar hæsta samanlagða skorið í undankeppni tveggja til þriggja Bikarmóta tímabilsins. Einnig er heimilt að byggja sigurvegara á lokamót í stað þess að það byggist á skorum úr undankeppni, þá eru 2-4 efstu keppendur mótaraðarinnar á lokamóti í útsláttarkeppni þar til sigurvegarinn er ljós.

Bikarmótaröð BFSÍ innandyra 2023-Núverandi
Fyrsta formlega Bikarmótaröð BFSÍ innandyra hófst formlega árið 2022 fyrir vetur 2022-2023. Fyrstu formlegu Bikarmeistaratitlar innandyra voru veittir árið 2023.

Bikarmótaröð BFSÍ utandyra 2023-Núverandi
Fyrsta formlega Bikarmótaröð BFSÍ utandyra hófst formleg árið 2023. Fyrstu formlegu Bikarmeistaratitlar utandyra voru veittir árið 2023.

Vertu Memm!!! „Lýðheilsa“ 2025-núverandi
Tók við af Ungmennadeild BFSÍ. Fjarmótaröð… eða í raun lýðheilsuverkefni BFSÍ. Markmiðið er að gefa öllum iðkendum um allt land vettvang til þess að taka þátt mánaðarlegum í fjarmótum þar sem markmiðið er bara persónulegur vöxtur og virkni í íþróttinni.

——————————————————————

IceCup innandyra 2017-2020.
Búin til af Gumma Guðjóns. Mótaröðin var m.a. tilraun að forgjafarkerfi og móti á raunstað í Bogfimisetrinu með fjarmóta þátttöku valmöguleika. Mótaröðin heppnaðist vel upp á þátttöku/virkni að gera bæði á höfuðborgarsvæðinu og út á landi. Ingólfur og Tryggvi tóku svo við rekstri mótaraðarinnar. IceCup mótaröðin var oft kölluð „Íslandsbikarmótaröð“ og var að mestu mótaröð þar sem fólk mætti í Bogfimisetrið til að taka þátt, en einnig var mögulegt að skila skorum inn sem höfðu verið tekin utan þess tíma og staðs t.d. utan af landi. Hald mótaraðarinn féll upp fyrir þegar að kórónuveirufaraldurinn hófst.

Stóri Núps meistaramótaröðin utandyra 2021-2022 (og stök mót 2019/2020)
Haldin á Stóra Núpi nálægt Árnesi, þar sem Gunnar Þór Jónsson hafði sett upp utandyra bogfimisvæði á sveitabæ sínum og vildi byrja hald reglubundinna móta utandyra annarra en bara ÍM.

Bogfimisetrið Youth Series innandyra 2019-2020
Mótaröð sem búin var til af Gumma til þess að ungmenni hefðu tækifæri á því að taka reglubundið þátt á mótum, þar sem að fá ungmenna mót voru haldin á hverju ári (almennt bara 2 ÍMU inni og úti). Breyttist síðar í Ungmennadeild BFSÍ

Ungmennadeild BFSÍ 2020-2024
BFSÍ tók yfir hald Bogfimisetrið Youth Series og bætti við fjar þátttöku möguleika til þess að gefa félögum um allt land færi á því að taka þátt í mótaröðinni. Fjarmótaröð BFSÍ var einnig til að stuðla að reglubundinni þátttöku ungmenna. Mótaröðinni var breytt síðar í Vertu Memm fjarmótaröð þar sem að fullorðnir gátu einnig tekið þátt.

Mánaðarmót Bogfimisetrið 2012-2013
Eftir bestu vitund fyrsta mótaröð sem haldin var í íþróttinni sett á laggirnar af Gumma Guðjóns. Það fáir iðkendur og keppendur voru í íþróttinni á þeim tíma að allir bogaflokkar (trissubogi, sveigbogi og langbogi) og allir aldurflokkar í báðum kynjum kepptu á móti hvert öðru. Fjöldi keppenda var um 5-12 á hverju móti í heildina í öllum greinum og þetta var því eina leiðin til þess að fólk hefði tækifæri til þess að keppa í útsláttarkeppni með svo fáa keppendur og að allir fengju að taka þátt. Skotið var 30 örvum og svo útsláttarkeppni eftir það á sama degi. Til að reyna að jafna út muninn milli nákvæmnis bogaflokka var langbogi á 122cm skífu á 18 metrum, sveigbogi á 60cm skífu á 18 metrum og trissubogi fékk 40cm skífu. Það gekk nokkuð vel og oftast var einn úr hvorum bogaflokki sem tók eitt af topp 3 sætunum. Eins og nafni segir til þá voru mótin haldin um mánaðarmót (frumlegt nafn 😆)

Þessi listi er ekki endanlegur, en haldið verður áfram að reyna að safna saman upplýsingum um mótaraðir fortíðar til að varðveita sögu íþróttarinnar.

Með fyrirvara um villur sem gætu verið á síðunni.