Fyrsta skrefið í átt að verða dómari er að skrá sig á dómaranámskeið hjá WA/BFSÍ. Skráningu á dómaranámskeiðið er hægt að finna hér. Öllum í aðildarfélögum BFSÍ er frjálst að taka dómara netnámskeiðið, það getur einnig gagnast íþróttamönnum sem vilja læra meira á íþróttina.
Ef þig vantar aðstoð eða frekari upplýsingar ekki hika við að hafa samband við BFSÍ eða aðildarfélagið þitt. Það vantar alltaf fleiri dómara og reglufróða 😊
Hér fyrir neðan er hægt að finna almennar upplýsingar um dómara, menntun og menntunarefni sem dómarar hafa aðgang að.
Landsdómari stig 1 kröfur
- Er 16 ára á árinu eða eldri.
- Hefur lokið dómaranámskeiði á vegum World Archery. Skráningu á námskeiðið er hægt að finna hér.
- Hefur náð dómaraprófi á vegum BFSÍ. Prófið er hægt að finna hér.
- Hefur lokið verklegu mati á vegum BFSÍ. (Gert á mótum með reyndum dómara)
- Hefur lokið viðeigandi endurmenntun til þess að halda réttindum vegna reglubreytinga.
Landsdómari stig 2 kröfur
- Hefur lokið landsdómarastigi 1.
- Hefur lokið námskeiði og verklegu mati á vegum BFSÍ á skipulags og skorskráningar kerfinu Ianseo. (Sem stendur eru fáir sem leita í það og því er sett upp „1 on 1“ námskeið fyrir það þegar einstaklingar óska eftir því)
Dómarar eru sífellt hvattir til þess að auka þekkingu sína á reglum. Hér er hægt að finna upplýsingar og hlekki á ýmislegt efni sem dómarar þurfa að þekkja.
- Reglubækur WorldArchery (Reglubækurnar er það sem allt snýst um, allt sem þú þarft að vita er í reglubókunum. Reglubók 3 í heild sinni og reglubók 2 kafli 7 er það sem dómarar þurfa að hafa ítarlega þekkingu á, ásamt reglugerðum BFSÍ um Íslensk mót.)
- Reglur Bogfimisambands Íslands – BFSÍ (Reglur BFSÍ)
- Námskeiðsefni WorldArchery fyrir dómaranámskeið (Ýmis konar slides o.fl. sem notað hefur verið á dómaranámskeiðum, varúð sumt af því getur verið úrelt vegna reglubreytinga)
- Vefsíða WA um dómara. https://worldarchery.org/Judging (Almennar upplýsingar og efnisveita um dómara/dómgæslu)
- Nýjustu túlkanir og Bylaws (Síða sem þú þarft ekki mikið að spá í þegar þú ert að byrja)
- Dómarahandbók WorldArchery (Handbók sem tengist hegðun og aðferðafræði fyrir dómara. Fjallar minna hreint um reglurnar sjálfar og meira um)
Eitt af þeim verkefnum sem dómarar eru mest kallaðir í er að dæma örvagildi örva í óvenjulegum aðstæðum. Því þurfa þeir að kunna að gera slíkt í öllum aðstæðum sem upp gætu komið. Hér er 5 skrefa kerfi sem Íslenskur heimsálfudómari bjó til, til þess að skora rétt í öllum tilfellum.
- Skora örvagildi margra skífa ef það eru margar skífur (í bókina þína).
- Skrifa örvagildin í röð, hæsta til lægsta (í bókina þína).
- Hringa utanum lægstu örvagildin (í bókina þína).
- Skrifa inn á skorblaðið frá hæsta til lægsta.
- Veita refsingar ef einhverjar eru með því að strika yfir hæsta örvagildið á skorblaðinu og skrifa M í staðin. (skotið fyrir eða eftir tíma og slíkt)
Hér fyrir neðan er markmiðið að búa til grunn kennslu myndskeið sem geta hjálpað verðandi og núverandi dómurum til að læra eða rifja upp grunn reglur. (Skor video-ið er á þeim tíma sem notað var 3 skrefa ferli, og kennarinn var að finna upp einfaldara 5 skrefa ferlið á meðan hann var að gera video-ið. En samt góðar upplýsingar sem er að finna þar)