Stjórn Bogfimisambands Íslands

Gummi Guðjónsson

Gummi Guðjónsson

Formaður

Gumma er hægt að kenna að mestu um vöxt bogfimi íþrótta á Íslandi. Gummi er stofnandi fjölmargra íþróttafélaga og fyrirtækja og sinnt fjölmörgum stöðum sem framkvæmdastjóri og formaður. Gummi var sjálfstætt starfandi um árabil áður en hann varð fyrir miklum veikindum. Gummi er einnig margfaldur verðlaunahafi í B og C landsliðsverkefnum ásamt því að vera fyrsti Íslendingur til þess að ná alþjóðlegum dómararéttindum og hæsta þjálfarastigi hjá heimssambandinu. Gummi starfar sem Íþróttastjóri BFSÍ

Haraldur Gústafsson

Haraldur Gústafsson

Varaformaður

Halli er margfaldur Íslandsmeistari, þjálfari og dómari í bogfimi íþróttum. Ásamt því hefur hann unnið til verðlaun á Smáþjóðaleikum og keppt með landsliði á nokkrum HM/EM og öðrum landsliðsverkefnum. Halli er einnig formaður bogfimideildar Skotfélags Austurlands og hefur verið í forsvari fyrir útbreiðslu íþróttarinnar á Austurlandi. Halli varð fyrir miklum veikindum og er öryrki í dag en tekur að sér smá verkefni þegar hann hefur heilsu til.

Albert Ólafsson

Albert Ólafsson

Gjaldkeri

Albert er margfaldur Íslandsmeistari og margfaldur heims- og Evrópumethafi. Albert starfar fyrir ríkisendurskoðun þar sem starf hans fellst í að hafa eftirlit með rekstri og fjármálum ríkisins, að fjármunum sé ráðstafað á hagkvæman og réttmætan hátt og í samræmi við ákvarðanir Alþingis. Albert er því gífurleg gersemi fyrir BFSÍ að hafa sem gjaldkera og stjórnarmann.

Astrid Daxböck

Astrid Daxböck

Meðstjórnandi

Astrid er ein af fáum Íslendingum sem getur státað sig af því að hafa verið í top 90 á heimslista og top 40 á Evrópulista og að hafa unnið til verðlauna á heimslistamóti. Hún er einnig margfaldur Íslandsmeistari, þjálfari og dómari. Astrid lærði fornleifafræði um langt skeið við Hásskóla Íslands og hún starfar í dag sem rekstrarstjóri Bogfimisetursins

Oliver Ormar Ingvarsson

Oliver Ormar Ingvarsson

Ritari

Oliver hefur verið lykilmaður í þróun í útbreiðslu- og fræðslumálum BFSÍ þá sérstaklega tengt mótastarfi BFSÍ þar sem hann sér um bein streymi, ásamt því að sjá um að búa til alskonar fjölmiðla efni til framdráttar bogfimi íþrótta. Oliver er einnig afreksmaður í íþróttinni og var m.a. íþróttamaður ársins BFSÍ 2021. Oliver starfar í dag hjá streymisveitunni uppkast.

Varamenn

Guðbjörg Reynisdóttir

Guðbjörg Reynisdóttir

Varamaður 1

Alfreð Birgisson

Alfreð Birgisson

Varamaður 2

Frost Ás Þórðarson

Frost Ás Þórðarson

Varamaður 3

Til að sjá stjórnarmenn BFSÍ og tímabil þeirra frá upphafi smellið hér. Uppfært 2023-03-17
Aðrar stöður í íþróttasamtökum sem núverandi stjórnarmenn BFSÍ sinna. Uppfært 2022-03-19

Mögulegt er að senda póst til stjórnar með því að senda á netfangið bogfimi@bogfimi.is eða á formann BFSÍ með textanum „Berist til stjórnar BFSÍ“. Einnig er hægt að gera það sama ef óskað er eftir því að ná samskiptum eða senda skilaboð á ákveðinn stjórnarmann.