Stjórn Bogfimisambands Íslands

Gummi Guðjónsson

Formaður

Gumma er hægt að kenna að mestu um vöxt bogfimi íþrótta á Íslandi. Gummi er stofnandi fjölmargra íþróttafélaga og fyrirtækja og sinnt fjölmörgum stöðum sem framkvæmdastjóri og formaður. Gummi var sjálfstætt starfandi um árabil áður en hann varð fyrir miklum veikindum. Gummi er einnig margfaldur verðlaunahafi í B og C landsliðsverkefnum ásamt því að vera fyrsti Íslendingur til þess að ná alþjóðlegum dómararéttindum og hæsta þjálfarastigi hjá heimssambandinu. Gummi starfar sem Íþróttastjóri BFSÍ

Haraldur Gústafsson

Varaformaður

Halli er margfaldur Íslandsmeistari, þjálfari og dómari í bogfimi íþróttum. Ásamt því hefur hann unnið til verðlaun á Smáþjóðaleikum og keppt með landsliði á nokkrum HM/EM og öðrum landsliðsverkefnum. Halli er einnig formaður bogfimideildar Skotfélags Austurlands og hefur verið í forsvari fyrir útbreiðslu íþróttarinnar á Austurlandi.

Haukur Hallsteinsson

Ritari

Haukur Albert er margfaldur Íslandsmeistari og hefur verið í forsvari þess að byggja upp Langboga og aðra hefðbundna bogaflokka innan BFSÍ. Ásamt því að hafa mikinn áhuga á útbreiðslu íþróttarinnar almennt.

Astrid Daxböck

Meðstjórnandi

Astrid er ein af fáum Íslendingum sem getur státað sig af því að hafa verið í top 90 á heimslista og top 40 á Evrópulista og að hafa unnið til verðlauna á heimslistamóti. Hún er einnig margfaldur Íslandsmeistari, þjálfari og dómari. Astrid lærði fornleifafræði um langt skeið við Hásskóla Íslands og hún starfar í dag sem rekstrarstjóri Bogfimisetursins

Oliver Ormar Ingvarsson

Gjaldkeri

Oliver hefur verið lykilmaður í þróun í útbreiðslu- og fræðslumálum BFSÍ þá sérstaklega tengt mótastarfi BFSÍ þar sem hann sér um bein streymi, ásamt því að sjá um að búa til alskonar fjölmiðla efni til framdráttar bogfimi íþrótta. Oliver er einnig afreksmaður í íþróttinni og var m.a. íþróttamaður ársins BFSÍ 2021.

Varamenn

Alfreð Birgisson – Varamaður 1
Ragnar Smári Jónasson – Varamaður 2
Heba Róbertsdóttir – Varamaður 3

Mögulegt er að senda póst til stjórnar með því að senda á netfangið bogfimi@bogfimi.is eða á formann BFSÍ með textanum “Berist til stjórnar BFSÍ”. Einnig er hægt að gera það sama ef óskað er eftir því að ná samskiptum eða senda skilaboð á ákveðinn stjórnarmann.