Saga félagsliðakeppni í bogfimi á Íslandi

Form á félagsliðakeppni í keppnisgreinum á Íslandi var í þróun og tilraunaferli í um áratug til að aðlagast sem best Íslenskum aðstæðum. Því ferli lauk í raun með reglubreytingum sem tóku gildi áramótin 2023/2024 og því haldinn listi hér á síðunni af Íslandsmeisturum í félagsliðakeppni frá og með árinu 2024. Mögulegt er að fletta upp Íslandsmeisturum úr eldri Íslandmótum í niðurstöðum þeirra á ianseo.net.

Um þróun félagsliðakeppni í keppnisgreinum á Íslandi frá 2014-2024:

  • Til ársins 2020 var engin félagsliðakeppni og keppendum á ÍM var raðað í blönduð lið óháð félagi eða landi (þegar að erlendir aðilar tóku þátt í landsmótum).
  • Því var svo breytt seinni part 2020 í sama fyrirkomulag og heimssambandið notar fyrir keppni landsliða (þriggja manna lið í hverri keppnisgrein í öllum aldursflokkum í karla og kvenna og blandað lið (mixed team) utandyra).
  • 2021 var blönduðu liði innandyra svo bætt við til að samræmi væri í keppnisgreinum utandyra og innandyra (þó að slíkt sé ekki hjá WA) Á þeim tíma voru samtals 9 titlar í boði fyrir félagsliðakeppni á hverju Íslandsmeistaramóti (Lið í 3 keppnisgreinum í 2 kynjum og blandað lið í 3 keppnisgreinum)
  • Þar sem að minni félög á Íslandi náðu sjaldan að skipa fullu 3 manna liði, sérstaklega í U og + flokkum (öldunga og ungmenna) í hverri keppnisgrein, var lítil samkeppni í félagsliðakeppni. Því var 2021 félagsliðakeppni í U og + flokkum breytt í 2 manna lið til að búa til meiri samkeppni og tækifæri fyrir minni aðildarfélög að skipa liðum. (slíkt hefur t.d. tíðkast hjá heimssambandinu á University championships og Ólympíuleikum ungmenna og því gott fordæmi alþjóðlega til staðar fyrir 2 manna liðakeppni í ungmenna flokkum)
  • 2022 var íhugað að sameina félagslið í einn keppanda úr hverri keppnisgrein, svipað og gert er á HM/EM í víðavangsbogfimi og 3D bogfimi, en þar sem að aðildarfélög sérhæfa sig almennt í ákveðnum keppnisgreinum myndi það fækka fjölda liða töluvert og minnka samkeppni. Ásamt því að flækjustig eykst með viðbót keppnisgreina í framtíðinni (sem er reyndin hjá WA núna í field og 3D, tengt langboga og hefðbundnum bogum)
  • 2023 var staðan góð en minni aðildarfélög BFSÍ áttu samt erfitt með að skipa liðum, ásamt því að finna þurfti lausn fyrir þátttakendur með þriðju kynskráningu í þjóðskrá (kynsegin/annað) sem bætt var við í landslög 2021. Því var félagsliðakeppni breytt í kynlausa keppni og hætt með blandaða liðakeppni (mixed team). En haldið áfram með 2 manna lið í U og + flokkum, en þá nú óháð kyni. Það einfaldaði liðakeppni til muna og fækkaði félagsliðatitlum sem jók samkeppni, þar sem að þá er aðeins veittur einn Íslandsmeistaratitill í félagsliðakeppni í hverri keppnisgrein og aldursflokki. Það hámarkar einnig líkur á því að minni aðildarfélög nái að skipa liði, einfaldar skipulag ÍM sem styttir mótin og tryggir að allir geti tekið þátt óháð kyni og framtíðar þróunum á kynjaskilgreiningum.

Endanlega fyrirkomulagið er 3 manna félagsliðakeppni í hverri keppnisgrein og aldursflokki í meistaraflokki óháð kyni, en hvert félag getur skipað fleiri en einu liði í hverri keppnisgrein, svipað og er á NM ungmenna, Bundesliga í Þýskalandi (félagsliðakeppni) o.fl.:

  • Sveigbogi meistaraflokkur (3 manna lið óháð kyni)
  • Trissubogi meistaraflokkur (3 manna lið óháð kyni)
  • Berbogi meistaraflokkur (3 manna lið óháð kyni)
  • Langboga/hefðbundnir meistaraflokkur (3 manna lið óháð keppni)

Í aldursflokkum ungmenna og öldunga er liðakeppni eins og í meistaraflokki, nema 2 manna lið í stað 3 manna lið.

Eina annað sem væri mögulegt að gera væri að breyta í félagsliðakeppni væri að breyta meistaraflokki í 2 manna lið. En þar sem að allur aldur getur tekið þátt í félagsliðakeppni í meistaraflokki og þátttaka/samkeppni hefur verið þokkalega góð í meistaraflokki þá er ekki verið að stefna á slíka breytingu að svo stöddu. Einnig er ekki mikill áhugi sem stendur meðal íþróttafólks að breyta í 2 manna lið í meistaraflokki og mikilvægt er fyrir ákveðin félög gagnvart styrkjum að liðakeppni haldi sínu 3 manna formi (t.d. Hafnarfjörður). En ef að World Archery breytir úr 3 í 2 manna liðakeppni mun BFSÍ líklegast fylgja þeirri breytingu. (Sú breyting hefur verið til umræðu sem möguleiki tengt því að bæta við trissuboga á Ólympíuleika í framtíðinni). En í raun er búið að einfalda og sameina eins mikið og mögulegt er í félagsliðakeppni í hverri keppnisgrein til að gera samkeppni sem mesta um titlana.

Gaman er að geta þess að Svíþjóð er nú (2025) í sambærilegu ferli og BFSÍ var í 2021, að gera tilraunir með að breyta liðakeppni í 2 manna liðakeppni í ungmenna og öldunga flokkum á sínum landsmeistaramótum og einnig með jákvæðum niðurstöðum.