Það voru aldeilis frábærar niðurstöður á Íslandsmóti Ungmenna og öldunga 2026 sem haldið var í Fagralundi í Kópavogi.
Um er að ræða tvö Íslandsmót sömu helgi. Íslandsmót U16 og U18 á laugardegi og svo Íslandsmót U21 og 50+ á sunnudegi. Bannað er að keppa í mörgum aldursflokkum á sama mótinu, en þar sem um er að ræða sitt hvort Íslandsmeistaramótið voru nokkir í yngri flokkunum (U16/U18) sem höfðu tækifæri og spreyttu sig á því að keppa einnig í U21 flokki, sem er almennt sterkasti ungmenna flokkurinn enda elsti aldursflokkur ungmenna.
Tveir keppendur sköruðu sérstaklega mikið fram í sínum keppnisgreinum/aldursflokkum Lóa og Magnús:
Lóa Margrét Hauksdóttir úr BFB Kópavogi í Berboga Kvenna U21 varð U21 Evrópubikarmeistari World Archery Europe fyrir um tveim vikum á Ítalíu og því var gert ráð fyrir að hún myndi koma sterk inn á Íslandsmót ungmenna. En kannski fáir sem gerðu ráð fyrir því að hún myndi taka báða Íslandsmeistaratitlana (U21 kvenna og U21 óháð kyni) og slá bæði Íslandsmetið í U21 kvenna með 24 stigum!! (552 stig á móti eldra meti 528 stigum) og slá Íslandsmetið í Meistaraflokki kvenna með 21 stigi!!! (552 stig á móti eldra meti 531 stig). Það væri því ekki rangt að segja að Lóa sé búin að setja sig í fremstu röð Íslendinga í meistaraflokki berboga kvenna. Sem er flokkur sem Íslendingar eru ekki veikir í, enda hefur Ísland átt marga verðlaunahafa á EM í U21 flokki og átt keppendur sem hafa reglubundið sett sig í topp 8 á EM í fortíðinni, og Íslandsmetin í þeim flokki engan veginn gefins.
og
Magnús Darri Markússon úr BFB Kópavogi í Trissuboga kom einnig gífurlega sterkur inn og vann bæði Íslandsmeistaratitil U16 karla og óháð kyni sem kom líklega fáum á óvart, enda drengurinn verið fremstur í þeim aldursflokki um árabil. En Magnús sló Íslandsmet U16 á mótinu með 86 stigum!!!!!!! (689 stig á móti eldra meti 603 stig af 720 mögulegum), sem er rosaleg framför, en vert er að nefna að Magnús átti eldra metið frá Íslandsmóti U16 í fyrra 2025!!! á einu ári búinn að vinna sig upp í nánast heimsklassa stig. Magnús tók svo einnig félagsliðatitilinn og Íslandsmetið í útsláttarleik með 6 stigum 138-132, á síðasta U16 mótinu sínu.
Magnús ákvað einnig að keppa á ÍM U21 á sunnudeginum þar sem hann var ekki talinn líklegastur til sigurs, en var talinn mögulega contender fyrir titilinn. Þar kom hann öllum á óvart og tók Íslandsmeistaratitil U21 karla gegn Ragnari Smára Jónassyni í bráðabana 9-8 eftir jafntefli í gull úrslitum 136-136 og tók svo Íslandsmeistaratitil U21 óháð kyni gegn Þórdísi Unni Bjarkadóttur 142-138. Svo bara til að bæta við flóð Magnúsar af árangri sló hann einnig Íslandsmetið U18 með 2 stigum á mótinu (668 á móti 666 stigum)
Þórdís (18 ára sem var 2 stigum frá Íslandsmetinu í U21 og meistaraflokki á mótinu) og Ragnar (20 ára) eru án vafa sterkustu trissuboga keppendur Íslands í dag óháð aldri og skoruðu bæði hærra en Magnús í undankeppni ÍM, en Magnús (15 ára) er í raun búinn að setja sig inn hóp þeirra allra sterkustu og er sá sem er án vafa að fara hraðast fram af öllum Íslendingum.
Magnús (15 ára) er yngsti keppenda til þess að vinna Íslandsmeistaratitil U21 í trissuboga í sögu íþróttarinnar.
- Yngsti Íslandsmeistari U21 Karla utandyra 18 ára (Nói)
- Yngsti Íslandsmeistari U21 óháð kyni utandyra 18 ára (Nói)
- Yngsti Íslandsmeistari U21 Karla innandyra 18 ára (Nói)
- Yngsti Íslandsmeistari U21 óháð kyni innandyra 16 ára (Freyja)
Eva, Baldur, Noah og Alfreð unnu einnig bæði Íslandsmeistaratitla í sínu kyni og í keppni um titilinn óháð kyni, og margir aðrir sem sýndu góða frammistöðu á ÍM ungmenna og öldunga með því að slá personal best eða skjóta nálægt Íslandsmetum. Ekki er verið að rýra árangur þeirra á nokkurn veg. En árangur þeirra fellur smá í skugga árangurs Lóu og Magnúsar á þessu ÍM, þar sem þau tvö voru í raun að ná sögulegum árangri í íþróttinni í sínum keppnisgreinum og því vel vert að fjalla sérstaklega um þann sögulega árangur. Fjallað verður sérstaklega um alla Íslandsmeistara í greinum sem var samkeppni í í einstaklingsfréttum á archery.is og þær fréttir ættu að koma út á næstu dögum.
Töluverð rigning var daginn fyrir ÍM U16/U18 og mótið byrjaði einnig á vægri rigningu sem bleytti keppendur, örvar og skotmörk. Það virkaði nánast eins og smurefni fyrir örvarnar og margir keppendur lentu í því að örvarnar þeirra byrjuðu að fara í gegnum skotmörkin og stoppa á fjöðrunum í fyrstu umferðum undankeppni. Mótshaldara voru þó tilbúnir fyrir það og hengdu upp króka og backstop’s sem hafa legið í kassa um langt skeið, enda er þetta í fyrsta sinn sem þeirra hefur verið þörf á Íslandsmóti. Það stytti upp seinni part dags, en var að mestu skýjað en samt nokkuð þægilegt hitastig með littlum vindi allt mótið.
Veðrið á ÍM U21/50+ var ákjósanlegt, sól, þægilegt hitastig og nánast enginn vindur fyrir utan stöku vindhviður á nokkrum tímum yfir daginn. Frábærar aðstæður til þess að slá Íslandsmet og keppa, enda mörg sterk Íslandsmet sem féllu á báðum ÍM þessa helgi. Völlurinn í Fagralundi í Kópavogi er vel varin fyrir vindi á öllum hliðum með háum trjám, ásamt því að vera djúpt í Fossvogsdalnum og því oftast meira skjól á vellinum en á opnum svæðum.
Íslandsmeistararar:
Á Íslandsmóti U16 og U18 á laugardeginum unnu eftirfarandi Íslandsmeistaratitla í sínum greinum og aldursflokkum:
- Sveigboga Íslandsmeistarar
- Eva Kristín Sólmundsdóttir ÍFA – U18 óháð kyni
- Eva Kristín Sólmundsdóttir ÍFA – U18 kvenna
- Elías Áki Hjaltason BFB – U18 karla
- Trissuboga Íslandsmeistarar
- Elísabet Fjóla Björnsdóttir BFB – U18 kvenna
- Sóldís Inga Gunnarsdóttir BFB – U18 óháð kyni
- Magnús Darri Markússon BFB – U16 óháð kyni
- Magnús Darri Markússon BFB – U16 karla
- BF Boginn – Félagslið U18
- Sóldís Inga Gunnarsdóttir
- Elísabet Fjóla Björnsdóttir
- BF Boginn – Félagslið U16
- Magnús Darri Markússon
- Birkir Björnsson
- Berboga Íslandsmeistarar
- Noah Hayhurst ÍFA – U18 óháð kyni
- Noah Hayhurst ÍFA – U18 kvenna
- Dagur Ómarsson BFHH – U18 karla
Á Íslandsmóti U21 og öldunga á sunnudeginum unnu eftirfarandi Íslandsmeistaratitla í sínum greinum og aldursflokkum:
- Sveigboga Íslandsmeistarar
- Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir BFB – U21 kvenna
- Baldur Freyr Árnason BFB – U21 karla
- Baldur Freyr Árnason BFB – U21 óháð kyni
- BF Boginn – Félagsliða U21
- Baldur Freyr Árnason
- Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir
- Trissuboga Íslandsmeistarar
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB – U21 kvenna
- Magnús Darri Markússon BFB – U21 karla
- Magnús Darri Markússon BFB – U21 óháð kyni
- BF Boginn – Félagsliða U21
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir
- Ragnar Smári Jónasson
- Alfreð Birgisson ÍFA – 50+ karla
- Alfreð Birgisson ÍFA – 50+ óháð kyni
- Berboga Íslandsmeistarar
- Lóa Margrét Hauksdóttir BFB – U21 Óháð kyni
- Lóa Margrét Hauksdóttir BFB – U21 kvenna
Íslandsmet sem slegin voru á ÍM Ungmenna og öldunga utandyra 2026
Sjö Íslandsmet voru slegin á ÍM-UÖ 2026, þar sköruðu Lóa og Magnús aftur fram úr og tóku Íslandsmetin í mörgum aldursflokkum oft með töluvert miklum mun.
- Magnús Darri Markússon – Íslandsmet undankeppni trissubogi U16 karla 689 stig! metið var áður 603 stig
- Birkir Björnsson sló einnig U16 metið með 610 stig á móti gamla metinu 603 stig. En Magnús sló það betur á sama degi þannig að hann fær metið.
- Magnús Darri Markússon – Íslandsmet útsláttarleikur trissubogi U16 karla 138 stig, metið var áður 132 stig
- Magnús Darri Markússon – Íslandsmet undankeppni trissubogi U18 karla 668 stig, metið var áður 666 stig
- Lóa Margrét Hauksdóttir – Íslandsmet berbogi Meistaraflokkur kvenna 552 stig, metið var áður 531 stig
- Lóa Margrét Hauksdóttir – Íslandsmet berbogi U21 kvenna 552 stig, metið var áður 528 stig
- BF Boginn – Íslandsmet Trissuboga U21 félagslið undankeppni 1360 stig, metið var áður 1348 stig
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir
- Ragnar Smári Jónasson
- BF Boginn – Íslandsmet Sveigbogi U21 félagslið 997 stig, en metið var áður 629 stig
- Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir
- Baldur Freyr Árnason
- Nálægt Íslandsmetinu Þórdís Unnur Bjarkadóttir skoraði 681 stig sem er personal best og líklega annað hæsta skor sem kona hefur skorað á Íslandi þar sem það er aðeins 2 stigum frá núverandi Íslandsmeti í U21 og meistaraflokki kvenna sem er 683 stig
Hægt er að finna niðurstöður mótsins á Ianseo.net og í mótakerfi BFSÍ . Myndir er hægt að finna á Smugmug BFSÍ, myndbönd og flesta úrslitaleiki er hægt að finna á Archery TV Iceland Youtube rásinni
Síðasta Bikarmót BFSÍ í meistaraflokki verður haldið næstu helgi 16 ágúst og er það síðasta utandyramót BFSÍ á tímabilinu. Þar verða krýndir Íslandsbikarmeistarar árins 2026 utandyra












