You are currently viewing Gummi stenst endurmat Evrópusambandsins sem heimsálfudómari til ársins 2030 með 96% í einkunn og Astrid fékk að sitja heimsálfudómararáðstefnuna

Gummi stenst endurmat Evrópusambandsins sem heimsálfudómari til ársins 2030 með 96% í einkunn og Astrid fékk að sitja heimsálfudómararáðstefnuna

Heimsálfudómara ráðstefna var haldin af World Archery Europe í Legnica Póllandi 30 október til 2 nóvember. Tveir Íslenskir dómarar sátu ráðstefnuna.

Gummi Guðjónsson sat ráðstefnuna sem dómari Evrópusambandsins World Archery Europe (heimsálfudómari / Continental Judge) og Astrid Daxböck landsdómari fékk að sitja inn á ráðstefnunni sem landsdómari, aðeins fjórir landsdómarar úr öllum 50 þjóðum innan Evrópusambandsins fengu að sitja inn á ráðstefnunni. Astrid hefur áralanga reynslu sem landsdómari og er að íhuga að taka heimsálfudómara námskeiðið næst þegar að prófið verður haldið. Dómaranefnd World Archery Europe mat sem svo að reynsla og þekking Astridar væri nægileg til þess að sitja inn á námskeiðinu með heimsálfudómurunum. Áætlað er að næsta námskeið/próf fyrir heimsálfudómara verði haldið af World Archery Europe seinni part ársins 2028, en það mun fara eftir því hvort að Evrópusambandinu vantar fleiri heimsálfudómara þá eða ekki.

Gummi Guðjónsson hefur verið heimsálfudómari World Archery Europe frá árinu 2018 og þurfti að ljúka endurtökuprófi (Re-accredidation test) í október 2026 fyrir dómararáðstefnuna. Ekkert official ranking var gefið á prófinu af dómurum, en Gummi lenti í hópnum sem fékk það sem kallast „highest marks“ með 96% í einkunn (einkunn reiknuð út byggt á niðurstöðum endurmats prófsins sem er sent hverjum þátttakanda fyrir sig). Prófið var sama próf og heimsdómarar (International judges) tóku fyrr á árinu til að endurnýja réttindi sín. Til að ná prófi þarf a.m.k. 80% á prófinu og nokkrir dómarar féllu á prófinu á þessu ári. Ítarleg þekking á reglum Evrópusambandsins og heimssambandsins er nauðsynleg til að vera dómari á heimsmælikvarða.

Landsdómarar sem hafa áhuga geta óskað eftir því að fá afrit af heimsálfudómara prófinu óútfylltu frá Gumma ef þeir hafa áhuga á því að spreyta sig á prófinu.

Sara Sigurðardóttir endurnýjaði ekki World Archery Youth Judge réttindi sín. Sara hefur ekki verði virk í dómgæslu í nokkur ár og hún er því ekki lengur með landsdómara, heimsálfudómarar né World Archery Youth Judge réttindi.

Margt áhugavert var rætt á ráðstefnunni að venju. Hér eru nokkur skjöl sem er áhugavert fyrir þá sem vilja skoða (bætum við glærum hér þegar að þeim hefur verið deilt með okkur)

Rætt var um ýmsan óvenjulegan búnað og hvort að skoðun dómara væri að búnaðurinn ætti að vera leyfilegur og hægt að sjá ýmislegt af því í skjalinu hér fyrir neðan, þó að sumt af því hafi klárlega verið brandari, enda góður andi milli heimsálfudómara 😉

Equipment – WAE Conference skjal með ýmsum búnaði