Ísland vann fjóra Norðurlandameistaratitla, tók tvö silfur, eitt brons, jafnaði tv0 Norðurlandamet og setti tvö önnur Norðurlandmet. Á Norðurlandameistaramóti ungmenna sem haldið var í Tampere Finnlandi 2-5 júlí. Frábær niðurstaða hjá krökkunum okkar.
Í heildina voru 277 þátttakendur sem kepptu NM ungmenna (eða NUM) og 23 þeirra voru Íslenskir frá nánast öllum landshornum, með þeim fylgdu 8 manna stuðningsteymi og vaskt teymi af foreldrum.
- Myndir af mótinu eru hægt að finna á Smugmug BFSÍ
- Heildarniðurstöður er hægt að finna á Ianseo.net
- Streymi af úrslitum og mótinu í heild er hægt að finna á Archery TV Iceland
Fremst í för Íslendinga á mótinu Ragnar, Þórdís og Lóa
Ragnar Smári Jónasson úr Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi í Trissuboga U21. Vann báða titlana (liða og einstaklinga) og næstum öll fjögur Norðurlandamet einstaklinga og liða tekin á einu bretti á sínu síðasta Norðurlandamóti ungmenna.
- Norðurlandameistaratitil karla
- Norðurlandameistaratitil liða
- Norðurlandmet undankeppni liða
- Norðurlandmet útsláttarleikur liða
- Jafnaði Norðurlandamet undankeppni einstaklinga
- Jafnaði Norðurlandamet útsláttarleikur einstaklinga
Þórdís Unnur Bjarkadóttir úr Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi í Trissuboga U21. Vann báða titlana (liða og einstaklinga) og tvö Norðurlandamet á sínu fyrsta ári í U21 flokki. Hún vann titilinn í 2025 í U18 flokki einstaklinga og þetta er því annar einstaklingstitilinn hennar í röð.
- Norðurlandameistaratitil kvenna
- Norðurlandameistaratitil liða
- Norðurlandmet undankeppni liða
- Norðurlandmet útsláttarleikur liða
- Á enn Norðurlandametið í U18 útsláttarleik en það var jafnað á mótinu af Sænskri stúlku
Þórdís og Ragnar unnu semsagt Norðurlandameistaratitilinn í liðakeppni saman og unnu bæði einstaklings titilana í karla og kvenna. Basically Ísland vann alla Norðurlandameistaratitla í flokknum (karla, kvenna og liða) og af 6 norðurlandametum tóku þau 2 og jöfnuðu 2. Yfirgnæfandi frammistaða hjá þeim
Lóa Margrét Hauksdóttir úr Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi í Berboga U21. Þetta var fyrsta ár hennar í U21 flokki og hennar fyrsti Norðurlandameistaratitill, en hún vann einnig Evrópubikarmótið fyrir mánuði í fyrsta sinn.
- Norðurlandameistaratitil kvenna
Aðrir Íslendingar sem áttu markverða frammistöðu á NM ungmenna
- Maria Kozak úr SFÍ á Ísafirði vann silfur í einstaklingskeppni og silfur í liðakeppni sveigboga U21 Open á NUM, en hún varð Norðurlandameistari 2023, vann brons 2023 og einnig tvö silfur 2025
- Karólína Karlsdóttir úr BFB Kópavogi vann brons í einstaklingskeppni og silfur í liðakeppni á sínu fyrsta NM ungmenna í sveigboga U21 Open
- Dagur Ómarsson úr BFHH Hafnarfirði var í þriðja sæti í undankeppni en rétt missti af bronsinu í útsláttarleikjunum í berboga U18
- Eva Kristín Sólmundsdóttir úr ÍFA Akureyri var í þriðja sæti í undankeppni og talin líkleg til verðlauna en var óheppilega slegin út í 16 manna úrslitum í jafntefli og bráðabana gegn Finnskri stelpu í sveigboga U18
- Magnús Darri Markússon BFB Kópavogi var í þriðja sæti í undankeppni (þar sem nánast enginn munur skar af topp 5 keppendur í flokknum), en hann rétt missti af bronsinu í trissuboga U18 karla
- Elísabet Fjóla Björnsdóttir BFB Kópavogur var í fjórða sæti í undankeppni með personal best og talin líkleg til að keppa til verðlauna, en var óvænt slegin út í 8 manna úrslitum í trissuboga kvenna U18
Það er í raun erfitt að finna Íslenskann keppanda sem stóð sig illa á mótinu. En þetta listinn af þeim sem mætti segja að hafi „skinið bjartast“ á þessu Norðurlandameistaramóti.
Fjallað verður nánar um hvern og einn keppanda í sér fréttum á archery.is strax og gefst færi til að skrifa þær 😅
Áhugaverðir punktar frá mótinu
Sýnt var beint frá úrslitaleikjum í „The main events“ bæði í Finnska sjónvarpinu og á Archery TV Iceland Youtube rásinni. The main event eru sex úrslitaleikir U21 á NM í (trissuboga, berboga og sveigboga í karla og kvenna). Sex úrslitaleikir í sterkustu aldursflokkum og keppnisgreinum mótsins.
Ísland vann 3 af 6 erfiðustu titlunum á NM, sem var hreint út glæsilega gert hjá Íslandi. 50% af erfiðustu titlunum fóru til Íslands restin af Norðurlöndunum náðu hinum 50% og ekki verra að gera það í beinni.
Ísland var beðið um að sjá um útsendinginu á mótinu á síðustu stundu og Gummi tók með sér búnað og annað frá Íslandi sem þurfti til en það gekk brösulega vegna skamms fyrirvara, en heppnaðist samt.
Völlurinn sem keppt var á í Tampere var sér til gerður Bogfimivöllur og mótið heppnaðist almennt vel. Tafir voru í lágmarki enda verið að fara eftir skipulagsskjölum sem Gummi íþróttastjóri BFSÍ skapaði fyrir Norðurlandasambandið til þess að minnka óáreiðanleika skipulags NUM, sem hefur verið vandamál til margra ára núna. Veðrið var almennt frábært allt mótið enda mjög gott skjól í kringum völlinn og sólin skein á keppendur nánast allt móið með stöku regnskúrum.
Tvær stórar breytingar tóku gildi á þessu NM ungmenna, breyting úr U16 í U15 aldursflokk, til að stemma við aldursflokka skema alþjóðabogfimisambandsins og breytingin úr 3 manna í 2 manna liðakeppni. Gummi gerði könnun við lok mótsins sem var opin í 2 daga um álit þátttakenda á nýjum breytingum sem næstum helmingur þátttakenda svaraði. Útlit er fyrir að U15 flokkurinn og 2 manna liðakeppni verði aftur á árinu 2027 til að safna meiri reynslu áður en Norðurlandasambandið tekur loka afstöðu til þess hvort að haldið verður varanlega í þær tvær breytingar eða breytt aftur til baka í 3 manna lið og U16 flokk.
Íslenskir verðlaunahafar á NUM 2026 í Finnlandi
- Ragnar Smári Jónasson – BFB Kópavogur – Norðurlandmeistari U21 trissuboga karla
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir – BFB Kópavogur – Norðurlandameistari U21 trissuboga kvenna
- Lóa Margrét Hauksdóttir – BFB Kópavogur
- Ísland – Norðurlandameistari Trissuboga U21 lið
- Liðsmenn
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir – BFB Kópavogur
- Ragnar Smári Jónasson – BFB Kópavogur
- Liðsmenn
- Maria Kozak – SFÍ Ísafjörður – Silfur U21 sveigboga kvenna Opinn
- Karólína Karlsdóttir – BFB Kópavogur – Brons U21 sveigboga kvenna Opinn
- Ísland – Silfur U21 sveigboga kvenna Opinn lið
- Liðsmenn
- Karólína Karlsdóttir – BFB Kópavogur
- Maria Kozak – SFÍ Ísafjörður
- Liðsmenn
Tvö ný Íslensk Norðurlandamet og tvö Norðurlandmet jöfnuð
- Ísland – Norðurlandamet trissuboga U21 undankeppni liða 1344 stig
- Ragnar Smári Jónasson BFB
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB
- Ísland – Norðurlandamet trissuboga U21 útsláttarkeppni liða 151 stig
- Ragnar Smári Jónasson BFB
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB
- Ragnar Smári Jónasson jafnaði Norðurlandametið í undankeppni trissuboga karla U21 680 stig
- Ragnar Smári Jónasson jafnaði Norðurlandametið í útsláttarleik trissuboga karla U21 143 stig
Lokaniðurstöður allra Íslenskra á NM í einstaklingskeppni
- Elías Áki Hjaltason BFB – 16 sæti – Sveigboga U18 karla
- Axel Leví Marteinsson SFÍ – 21 sæti – Sveigboga U18 karla
- Eva Kristín Sólmundsdóttir ÍFA – 9 sæti – Sveigboga U18 kvenna
- Emma Rakel Björnsdóttir ÍFA – 25 sæti – Sveigboga U18 kvenna
- Baldur Freyr Árnason BFB – 15 sæti – Sveigboga U21 karla
- Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir BFB – 7 sæti – Sveigboga U21 kvenna
- Dagur Ómarsson BFHH – 4 sæti – Berboga U18 karla
- Henry Snæbjörn Johnston BFB – 6 sæti – Berboga U18 karla
- Auður Alma Viktsorsdóttir SFÍ – 10 sæti – Berboga U18 kvenna
- Lóa Margrét Hauksdóttir BFB – 1 sæti – Berboga U21 kvenna
- Kristjana Rögn Andersen SFÍ- 10 sæti – Berboga U21 kvenna
- Magnús Darri Markússon BFB – 4 sæti – Trissuboga U18 karla
- Bergur Freyr Geirsson BFB – 7 sæti – Trissuboga U18 karla
- Birkir Björnsson BFB – 13 sæti – Trissuboga U18 karla
- Sóldís Inga Gunnarsdóttir BFB – 6 sæti – Trissuboga U18 kvenna
- Elísabet Fjóla Björnsdóttir BFB – 7 sæti – Trissuboga U18 kvenna
- Eva María Einarsdóttir BFB – 10 sæti – Trissuboga U18 kvenna
- Ragnar Smári Jónasson BFB – 1 sæti – Trissuboga U21 karla
- Natan Eir Skov Jensen BFB – 5 sæti – Trissuboga U21 karla
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB – 1 sæti – Trissuboga U21 kvenna
- Maria Kozak SFÍ – 2 sæti – Sveigboga U21 Open kvenna
- Karólína Karlsdóttir – 3 sæti – Sveigboga U21 Open kvenna
- Salka Þórhallsdóttir – 6 sæti – Sveigboga U21 Open kvenna
Lokaniðurstöður allar Íslenskra liða á NM
Liðakeppni á NM ungmenna er mjög óhefðbundin miðað við önnur alþjóðleg mót. Hún virkar þannig að alla þjóðir mega skipa eins mörgum liðum og þau vilja. Efstu keppendur lands eru lið 1, næst efstu lið 2 og svo framvegis þar að allir keppendur eru skipaðir í lið. Ef að einhverjir verða afgangs eftir að búið er að skipa í lið landa þá eru þeir sameinaðir í Nordic Team svo að allir keppendur fái tækifæri á því að spreyta sig í liðakeppni.
Liðakeppni var breytt á NM Ungmenna á þessu ári úr 3 manna í 2 manna lið, m.a. til að auka samkeppni, fjölga liðum o.fl.
- Sveigboga U18 lið – Ísland 2 – 8 sæti
- Elías Áki Hjaltason
- Axel Leví Marteinsson
- Sveigboga U18 lið – Ísland 1 – 14 sæti
- Emma Rakel Björnsdóttir
- Eva Kristín Sólmundsdóttir
- Sveigboga U21 lið – Ísland 1 – 10 sæti
- Baldur Freyr Árnason
- Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir
- Sveigboga U21 Open lið – Ísland 1 – 2 sæti
- Karólína Karlsdóttir
- Maria Kozak
- Sveigboga U21 Open lið – Nordic Team – 4 sæti
- Salka Þórhallsdóttir ISL
- Berboga U18 lið – Ísland 1 – 6 sæti
- Dagur Ómarsson
- Auður Alma Viktorsdóttir
- Berboga U18 lið – Nordic Team – 11 sæti
- Henry Snæbjörn Johnston
- Berboga U21 lið – Ísland 1 – 6 sæti
- Kristjana Rögn Andersen
- Lóa Margrét Hauksdóttir
- Trissuboga U18 lið – Ísland 1 – 7 sæti
- Elíasbet Fjóla Björnsdóttir
- Magnús Darri Markússon
- Trissuboga U18 lið – Ísland 2 – 9 sæti
- Sóldís Inga Gunnarsdóttir
- Birkir Björnsson
- Trissuboga U18 lið – Ísland 3 – 12 sæti
- Eva María Einarsdóttir
- Bergur Freyr Geirsson
- Trissuboga U21 lið – Ísland 1 – 1 sæti
- Ragnar Smári Jónasson
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir
- Trissuboga U21 lið – Nordic Team – 6 sæti
- Natan Eir Skov Jensen
Næst á dagskrá hjá BFSÍ er Bikarmót BFSÍ í 18 júlí í Þorlákshöfn og svo EM ungmenna 20-26 júlí
















